InnlentStjörnumerki ráðherranna í nýju ríkisstjórninni – Bjarni er þrjóskur og Lilja sanngjörn2. desember 2021 Kara Kristel vakti athygli á dreifingu stjörnumerkja ráðherranna í nýrri ríkisstjórn Íslands á Twitter í gær. Hún bjó til skipulegan lista sem sýnir að í ríkisstjórn Vinstri grænna, Sjálfstæðisflokks og Framsóknar eru: 1 Hrútur 1 Naut 2 Meyjur 1 Vog 2 Sporðdrekar 2 Bogmenn 2 Vatnsberar 1 Fiskur Í ríkisstjórninni eru engir Krabbar, Tvíburar, Ljón eða Steingeitur. Þetta passar allt...
InnlentUppstokkun ráðuneytanna: „Þetta er í alvörunni blautasti draumur frjálshyggjunnar“30. nóvember 2021 Mikið hefur verið rætt um uppstokkun og breytingar á ráðuneytunum. Inn á síðu Menningarátökin á facebook, viðrar fólk skoðanir sínar og áhyggjur yfir því að viðskipta og menningarmál séu sett saman í eitt ráðuneyti. Í hópnum segir: „þetta er í alvörunni blautasti draumur frjálshyggjunnar, þar sem menning verður alfarið skilgreind eftir viðskiptahagsmunum, eftir því hvað hún skilar mörgum ferðamönnum til...
InnlentHvað á ríkisstjórnin að heita? „Fékk kvíðahnút í magann þegar ég sá hver fékk umhverfismálin“29. nóvember 2021 Vilhjálmur Árnason þingmaður Sjálfstæðisflokksins lék sér að eldinum á Facebook í gær með færslu þar sem hann spyr hvað fólki finnst um nafnið Aðventustjórnin á nýju ríkisstjórninni. Viðbrögðin voru sum hver stjórninni í hag en fékk hún einnig á baukinn hjá þó nokkrum. Kjartan nokkur stingur upp á Höfuðborgarstjórninni og vísar þar í þær gagnrýnisraddir sem heyrst hafa utan af...
InnlentSýður á Sjálfstæðismönnum í Suðurkjördæmi: „Vægi landsbyggðarinnar er vægast sagt fyrir borð borið“28. nóvember 2021 Eftir að nýja ríkisstjórnin leit dagsins ljós voru sumir sáttir en aðrir ekki. Í Suðurkjördæmi hafa Sjálfstæðismenn ýst yfir furðu og gríðarmiklum vonbrigðum með skipan ráðherra í nýrri ríkisstjórn; segja að Guðrún Hafsteinsdóttir, forystukona flokksins í Suðurkjördæmi hafi hreinlega verið hundsuð. Í ályktun frá flokksmönnum Sjálfstæðisflokksins í kjörfæminu má lesa þetta: Ekki landsbyggð tækifæranna? „Vægi landsbyggðarinnar er vægast sagt fyrir...
InnlentSvona er nýja stjórnin: Willum tekur við heilbrigðisráðuneytinu – Áslaug Arna ráðherra nýsköpunar28. nóvember 2021 Ríkisstjórnin nýja var kynnt til sögunnar áðan og hér að neðan má sjá hvernig ráðherralistarnir flokkanna líta út: Ráðherralisti Sjálfstæðisflokksins: Bjarni Benediktsson verður áfram fjármálaráðherra og Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir tekur við af Guðlaugi Þór Þórðarsyni í utanríkisráðuneytinu; Guðlaugur Þór verður ráðherra umhverfis- og loftslagsmála. Þá tekur Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir við sem ráðherra nýsköpunar, iðnaðar og háskóla. Gamli refurinn Jón...
InnlentKapallinn gekk upp hjá VG, Sjálfstæðisflokki og Framsókn: Svona raðast ráðuneytin28. nóvember 2021 Sigurvegari síðustu kosninga, Framsóknarflokkurinn, fær fjögur ráðuneyti: heilbrigðisráðuneyti; innviðaráðuneyti og glænýtt ferða- og menningarmálaráðuneyti; einnig skólamálaráðuneyti. Eins og við mátti búast mun VG halda forsætisráðuneytinu og VG fær félagsmálaráðuneytið sem og og matvæla-, sjávarútvegs og landbúnaðarráðuneytið. Mynd: Róbert Reynisson Stærsti flokkur landsins, Sjálfstæðisflokkurinn, kemur til með að stýra flestum ráðuneytum í nýrri ríkistjórn; flokkurinn fær fimm ráðuneyti sem og forseta...
InnlentEndurnýjað samstarf Sjálfstæðisflokks, Framsóknar og VG: Heilbrigðisráðuneytið til Framsóknar27. nóvember 2021 Nú er lokið flokksfundum VG, Framsóknarflokks og Sjálfstæðisflokks, og samþykktu flokkarnir þrír að endurnýja ríkisstjórnarsamstarfið. Í dag var fundað á fullu: Miðstjórn Framsóknarflokks og flokksráð Sjálfstæðisflokks og Vinstri grænna funduðu stíft í allan dag; farið var yfir stjórnarsáttmála flokkanna. Miðstjórn Framsóknarflokks og flokksráð Sjálfstæðisflokks samþykktu stjórnarmyndunina um á sjötta tímanum í dag; flokksráð VG samþykkti stjórnarmyndunina rétt um sjö. Í...
InnlentPíratinn Björn Leví Gunnarsson: „Hlakka til að heyra rök á móti þessu“26. nóvember 2021 Píratinn Björn Leví Gunnarsson ákvað að skella „áskorun út í cosmosið.“ Segir: „Ég var ítrekað ásakaður um það í umræðunni í gær að misskilja eitthvað eða vera farinn út af sporinu með greiningu mína á að uppkosningar þýddu „nýjar“ kosningar.“ Bætir við: „En þeim ásökunum fylgdi aldrei rökstuðningur. Bara einfalt „ég er ósammála“ eða eitthvað annað óhjálplegt fyrir umræðuna.“ Björn...
InnlentSigmar lét Sjálfstæðisflokkinn sjá svart í Silfrinu: „Þú getur ekki svarið stefnu flokksins af þér“21. nóvember 2021 Það var hart tekist á í Silfrinu, þar sem gamli fjölmiðlarefurinn Sigmar Guðmundsson, lét Sjálfstæðisflokkinn fá það óþvegið. Í þætti dagsins tók þáttastjórnandinn Egill Helgason á móti þeim Sigmari Guðmundssyni, nýkjörnum þingmanni Viðreisnar, Lilju Dögg Alfreðsdóttur, menntamálaráðherra og þingmanni Framsóknar, Kristrúnu Frostadóttur, nýkjörnum þingmanni Samfylkingarinnar og Guðrúnu Hafsteinsdóttur, nýkjörnum þingmanni Sjálfstæðisflokksins. Rætt var stuttlega um ríkisstjórnarmyndunina; sammæltust gestir um að...
InnlentBaldur gefst upp á Vigdísi Hauks: „Ég tilkynni hér með úrsögn mína úr Miðflokknum“17. nóvember 2021 Baldur Borgþórsson sendi frá sér yfirlýsingu á Facebook-síðu sinni þar sem hann tilkynnir að hann sé hættur í Miðflokknum.Eftir öllum sólarmerkjum að dæma er Baldur búinn að gefast upp á samstarfi við hinn kollega sinn úr Miðflokknum í stjórn Reykjavíkurborgar, Vigdísi Hauksdóttur – um aðra manneskju getur varla verið um að ræða þótt Baldur vissulega nafngreini ekki Vigdísi í yfirlýsingunni.Hér...
InnlentBirgir Ármannsson sakar Karl Th. um falsfréttamennsku: „Karl er bara að skemmta sér með þessu“14. nóvember 2021 Formaður undirbúningsnefndar kjörbréfanefndar Alþingis, Sjálfstæðismaðurinn og þingmaðurinn Birgir Ármannsson, segir gögn sem blaðamaðurinn Karl Th. Birgisson birti á vefsíðu sinni Herðubreið, vera falsfrétt og einfaldlega hugarburð áðurnefnds Karls. Herðubreið segir að þeim hafi borist í hendur drög að áliti Birgis um kosningaklúðrið í Norðvesturkjördæmi. Birgir segir að gögnin sem Herðubreið birti séu heimasamin; ekkert sé til í þeim: „Þetta er...
InnlentGetur verið að rikistjórnarviðræðurnar sigli í strand út af Covid-aðgerðunum?13. nóvember 2021 Ríkisstjórnin samþykkti í gær nýjar og hertar samkomutakmarkanir vegna COVID-19. Fimmtíu mega framvegis koma saman en 500 þar sem hraðprófa er krafist. Afgreiðslutími veitingastaða verður styttur um klukkustund. Sundstaðir og líkamsræktarstöðvar mega taka á móti 75 prósentum af leyfilegum hámarksfjölda. Aðgerðirnar taka gildi á miðnætti og gilda í þrjár vikur.Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir iðnaðarráðherra og varaformaður Sjálfstæðisflokksins segir að það...