Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Sigmar lét Sjálfstæðisflokkinn sjá svart í Silfrinu: „Þú getur ekki svarið stefnu flokksins af þér“

Sigmar lét Sjálfstæðisflokkinn sjá svart í Silfrinu: „Þú getur ekki svarið stefnu flokksins af þér“

Það var hart tek­ist á í Silfrinu, þar sem gamli fjöl­miðla­ref­ur­inn Sigmar Guð­munds­son, lét Sjálf­stæð­is­flokk­inn fá það óþvegið.

Í þætti dags­ins tók þátta­stjórn­and­inn Egill Helgason á móti þeim Sigmari Guð­munds­syni, nýkjörnum þing­manni Við­reisnar, Lilju Dögg Alfreðs­dóttur, mennta­mála­ráð­herra og þing­manni Fram­sóknar, Kristrúnu Frosta­dóttur, nýkjörnum þing­manni Sam­fylk­ing­ar­innar og Guðrúnu Haf­steins­dóttur, nýkjörnum þing­manni Sjálf­stæð­is­flokks­ins.

Rætt var stutt­lega um rík­is­stjórn­ar­mynd­un­ina; sam­mælt­ust gestir um að athyglin væri að mestu á hver myndi fara með heil­brigð­is­málin.

Orðrómur þess efnis að Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn muni taka þau að sér hefur farið hátt, og hefur nafn Guðlaugs Þórs Guð­laugs­sonar verið nefnt í því sam­hengi.

Guð­laugur Þór Þórð­ar­son. Mynd / EPA

Guð­laugur hefur áður tekið þann slag, en hann var  heil­brigð­is­mála­ráð­herra  árin 2007 til 2009.

En nafn Guðlaugs Þórs er ekki eina nafnið sem skotið hefur upp koll­inum nýverið í tengslum við skipan ráð­herra í næstu rík­is­stjórn; Guðrúnar Haf­steins­dóttir hefur einnig verið nefnt í þessum sömu umræðum.

Aðspurð út í hvort Guðrún muni gera kröfu um ráð­herra­stól sagði hún ríka kröfu í Suð­ur­kjör­dæmi um að ekki yrði gengið fram hjá kjör­dæm­inu á nýjan leik.

Þar vís­aði Guðrún til þess að mörgum þótti Bjarni Bene­dikts­son, for­maður Sjálf­stæð­is­flokks­ins, hafa gengið fram hjá Páli Magn­ús­syni, for­vera Guðrúnar í odd­vita­sæti Sjálf­stæð­is­manna í Suð­ur­kjör­dæmi, við val á ráð­herrum eftir kosn­ing­arnar fyrir fjórum árum.

Greini­legt er á öllu að heil­brigð­is­málin eru fyr­ir­ferða­mikil um þessar mundir; mála­flokk­ur­inn er fyr­ir­ferða­mestur í fjöl­miðlum og sá sem tekur ráðu­neytið að sér á mik­ið­verk­efni fyrir höndum. Þegar talið barst svo að því hvernig leysa ætti vanda­mál íslenska heil­brigð­is­kerf­is­ins fór allt í bál og brand og áður­nefndur Sigmar lét Sjálf­stæð­is­flokk­inn heyra það, sér­stak­lega eftir að Guðrún benti á að ein lausnin gæti verið að dreifa álagi af Land­spít­al­anum yfir á heil­brigð­is­stofn­anir utan Reykja­víkur og nágrennis:

„Af hverju hefur það þá ekki verið gert?,“ spurði Sigmar Guðrúnu ákveð­inn, og bætti í:

„Þinn flokkur er búinn að fara með for­ræði í rík­is­stjórn ótrú­lega lengi. Þegar það leggst inn fjöldi sem sam­svarar þing­flokki Sjálf­stæð­is­flokks­ins verða tak­mark­anir út um allt í sam­fé­lag­inu. Þetta er ástand sem er ekki boð­legt.“

Guðrún svar­aði Sigmari með því að benda á að hún hafi ekki setið í rík­is­stjórn í fjögur ár.

Þetta þótti Sigmari ekki boð­legt svar og sagði ákveð­inn:

„Já en þú getur ekki svarið stefnu flokks­ins af þér! Þegar það leggj­ast tutt­ugu ein­stak­lingar inn á spít­al­ann þá fer allt á hlið­ina. Við þurfum að taka mann­rétt­indi af fólki, við þurfum að segja við fólk þú getur ekki sinnt vinn­unni þinni núna í ein­hvern tíma. Við erum ríg­bund­inn við kerfi sem annar því ekki sem það á að anna. Það er ein­hver skýr­ing á því sem nær langt aftur í tím­ann og veltur ekki bara á Covid,“ sagði Sigmar.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Plönturnar fundust í tveimur gróðurkössum í farangursrýminu
Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Peningar

Samkaup semja um kaup á Fjarð­ar­kaupum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Innlent

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina