MenningKeyptu sígarettur og niðursoðið nautakjöt af þýskum kafbáti við Ísland í stríðinu15. janúar 2022 Sjóarinn hitti Svavar Benediktsson um borð í varðskipinu Óðni. Svavar er fæddur árið 1931 í Hafnarfirði og var ekki nema átta ára þegar hann fór fyrst til sjós. Hann hefur frá mörgu að segja af löngum ferli sínum og segir meðal annars frá því þegar karl faðir hans, sem þá var skipstjóri á Maí, lenti í útistöðum við þýskan kafbát...
MenningEinlæg Linda Pé fann gleðina aftur eftir gjaldþrot Baðhússins: „Þetta var dimmur dalur“14. janúar 2022 „Ég missti öryggi mitt. Ég er náttúrlega einstæð móðir. Menn bankandi upp á heima hjá mér næstum því frá morgni til kvölds með einhverjar kröfur og birtandi mér einhverja pappíra. Þetta var ofboðslega erfitt tímabil,“ segir Linda Pétursdóttir, heilsufrömuður og fegurðardrottning í Mannlífinu með Reyni Traustasyni sem er einnig ævisöguritari hennar. Þau ræddu um gerð bókarinnar Ljós og skuggar þar...
MenningGuðni ræðir við Svandísi: „Það eru miklar áskoranir – en okkur hefur tekist að halda í húmorinn“9. janúar 2022 „Það eru miklar áskoranir og þá ekki síst hjá sauðfjárbændum, afkoman er ekki góð. Fólk býr jafnvel við lítil efni og sumt hvert hreinlega við fátækt og það er ekki ásættanlegt og við verðum að horfa til þess þegar við leggjum grunn að nýjum búvörusamningi og öllu því sem fylgir því. Við erum núþegar komin með lítinn innanhúshóp þar sem...
MenningBirna Einarsdóttir bankastjóri: Greindist með krabbamein og grét þegar hún missti hárið7. janúar 2022 Birna Einarsdóttir, bankastjóri Íslandsbanka, hefur staðið af sér alla storma hrunsins og eftirhrunsáranna. Hún er með lengstan starfsaldur bankastjóra stóru bankanna. Hún gestur Mannlífsins með Reyni Traustasyni þar sem hún lítur um öxl og fram á við. Hún rifjar upp skelfileg tíma þegar hún greindist með brjóstakrabbamein, 45 ára, og tilveran fór á hvolf. Hún tók þessu þó eins og...
MenningGuðni ræðir við Jóhannes Kristjánsson eftirhermu: ,,Davíð Oddson hefur ekki skemmtanagildi.”2. janúar 2022 Í fyrsta þætti Guðna Ágústssonar ársins 2022 fékk hann til sín hinn þjóðþekkta skemmtikraft Jóhannes Kristjánsson frá Brekku á Ingjaldssandi. Jóhannes hefur meðal annars brugðið sér í líki Guðna sjálfs við fjölmörg tækifæri og gert honum manna best skil. Inntur eftir því hver hann væri sagði Jóhannes “Ég er svo margur maður ef ég vil. En ég heiti Jóhannes Kristjánsson...
MenningYrsa skáldaði upp Sóldísi á Hvarfi: „Það kom póstur til útgefandans“1. janúar 2022 „Það kom póstur til útgefandans míns frá fólki sem býr á bæ sem heitir Hvarf. Bókin gerist á Hvarfi og dóttir hjónanna á þessu raunverulega Hvarfi heitir Sóldís og það er Sóldís í bókinni,“ segir Yrsa Sigurðardóttir, rithöfundur og verkfræðingur, í hlaðvarpinu Mannlífinu með Reyni Traustasyni. Yrsa segir þarna frá einstakri tilviljun sem varð þegar hún skapaði persónuna Sóldísi og...
MenningGuðni Ágústsson ræðir við eftirhermu sína – Jóhannes Kristjánsson hjartaþegi í einstöku viðtali:31. desember 2021 Guðni Ágústsson, fyrrverandi landbúnaðarráðherra, heldur úti vinsælu hlaðvarpi og VefTv á mannlif.is undir yfirskriftinni Landbúnaðarráðherra Mannlífs. Seinasti gestur hans var Lilja Alfreðsdóttir, ráðherra menntamála, sem fór á kostum í spjalli við fyrrverandi formann Framsóknarflokksins. En næsti gestur hans er sjálfur Jóhannes Kristjánsson, eftirherma og skemmtikraftur, sem reyndar hefur sérhæft sig í rödd og líkamstöktum Guðna. Þátturinn verður frumsýndur á nýársdag...
MenningEyþór Arnalds í Mannlífinu: „Hnignun Sjálfstæðisflokksins hófst með Icesave“26. desember 2021 Eyþór Arnalds er nýjasti gesturinn í Mannlífinu með Reyni Traustasyni. Eyþór kom mörgum á óvart þegar hann tilynnti óvænt að hann hygðist ekki gefa kost á sér sem leiðtogi borgarstjórnarflokks Sjálfstæðisflokksins. Hann fer af einlægni í gegum fjölbreyttan feril sinn á sviði lista, viðskipta og stjórnmála. Hann telur núverandi dapra stöðu Sjálfstæðisflokksins vera ákveðna þróun sem hófst með afstöðu flokksins...
MenningVeikindin, rokkið, neyslan og frægðin24. desember 2021 Gunnar Þórðarson er einn ástælasti tónlistarmaður þjóðarinnar. Hljómar og Trúbrot eru hljómsveitir sem voru þær þekktustu á landinu. Síðan hann hóf feril sinn hefur hann samið 800 lög, mörg þeirra eru sannkallaðr perlur. Upp á síðkastið hefur hann samið óperur. Gunnar segir hér sögu sína. Hann sger frá kannbisneyslunni og því þegar Trúbrot var nánast bannfærð eftir að upp komst...
MenningLilja Dögg Alfreðsdóttir: „Við verðum að efla lestur. Börn niður í 9 mánaða nota spjaldtölvur!“19. desember 2021 Lilja Dögg Alfreðsdóttir, ferða-, menningar- og viðskiptaráðherra, fæddist í Breiðholtinu í Reykjavík árið 1973. Hún er dóttir Guðnýjar Kristjánsdóttur, prentara, og Alfreðs Þorsteinssonar, borgarfulltrúa, framkvæmdastjóra og íþróttafréttaritara. Foreldrar hennar kynntust á ráðstefnu ungra Framsóknarmanna og sem barn stóð Lilja í þeirri trú að Framsóknarflokkurinn væri hinn pólitíski armur Knattspyrnufélagsins Fram, hvar faðir hennar var gallharður stuðningsmaður. Lilja sótti menntun sína...
MenningGestur vikunnar í Mannlífinu er Gréta María Grétarsdóttir: „Lífið er stutt“18. desember 2021 Gestur Mannlífsins að þessu sinni er athafnakonan og Flateyringurinn Gréta María Grétarsdóttir sem heldur um stjórnartauma Brims og áður Krónunnar. Gréta María er ein skærasta stjarna viðskiptalífsins. Hún hikar ekki við að skipta um starf þegar tækifærin bjóðast. Nú síðast hætti hún í stjórnunarstöðu hjá Brim til að verða framkvæmdastjóri Artic Adventures um áramót. Gréta ólst upp á Flateyri en...
MenningLandbúnaðarráðherra Mannlífs: Útflutningsverðmæti merarblóðs tveir milljarðar12. desember 2021 Gestur Guðna Ágústssonar í þættinum Landbúnaðarráðherra Mannlífs að þessu sinni var Vigdís Häsler, framkvæmdastjóri Bændsamtaka Íslands. Vigdís er fyrsta konan sem gegnir stöðunni en áhugavert er að á sama tíma í fyrsta sinn er kona í stöðu Landbúnaðarráðherra, Svandís Svavarsdóttir. Vigdís er lögfræðingur að mennt og hefur áður starfað sem aðstoðarmaður samgöngu- og sveitarstjórnarráðherra og fyrir Sjálfstæðisflokkinn. Vigdís tók við...