Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Lilja Dögg Alfreðsdóttir: „Við verðum að efla lestur. Börn niður í 9 mánaða nota spjaldtölvur!“

Lilja Dögg Alfreðsdóttir: „Við verðum að efla lestur. Börn niður í 9 mánaða nota spjaldtölvur!“

Lilja Dögg Alfreðs­dóttir, ferða-, menn­ingar- og við­skipta­ráð­herra, fædd­ist í Breið­holt­inu í Reykja­vík árið 1973. Hún er dóttir Guðnýjar Krist­jáns­dóttur, prent­ara, og Alfreðs Þor­steins­sonar, borg­ar­full­trúa, fram­kvæmda­stjóra og íþrótta­f­rétta­rit­ara.

For­eldrar hennar kynnt­ust á ráð­stefnu ungra Fram­sókn­ar­manna og sem barn stóð Lilja í þeirri trú að Fram­sókn­ar­flokk­ur­inn væri hinn póli­tíski armur Knatt­spyrnu­fé­lags­ins Fram, hvar faðir hennar var gall­harður stuðn­ings­maður.

Lilja sótti menntun sína í Fella­skóla og æfði fim­leika með Gerplu. Hún hélt þaðan í Mennta­skól­ann í Reykja­vík og nam þar við forn­mála­deild. Eftir útskrift fór hún sem skiptinemi til Suður-Kóreu en kom svo aftur heim og lagði stund á stjórn­mála- og hag­fræði­nám við Háskóla Íslands. Áður en hún svo lauk námi sínu við Columbia Uni­versity of New York gerð­ist hún einnig skiptinemi við háskól­ann í Minnesota.

Lilja starf­aði hjá Seðla­banka Íslands og var þar við störf þegar hrun íslenska banka­kerf­is­ins reið yfir.

Þegar hún lauk störfum hjá Seðla­bank­anum gekk hún til liðs við rík­is­stjórn Sig­mundar Davíðs Gunn­laugs­sonar og gerð­ist verk­efna­stjóri þar og kom að verk­efnum aðlút­andi losun fjár­magns­hafta í kjöl­far banka­hruns­ins, sem má segja að hafi verið loka­hnykk­ur­inn á fjár­mála­hrun­inu. Vog­un­ar­sjóð­irnir slepptu tökum sínum á íslenskum eignum gegn eignum í erlendri mynt. Þeir 690 millj­arðar sem skil­uðu sér í rík­is­kass­ann í kjöl­farið eru í raun þeir fjár­munir sem hafa nýst til að létta þær byrðar sem Rík­is­sjóður hefur þurft að taka á sig til að koma Íslandi í gegnum yfir­stand­andi Covid-tíma­bil.

Í kjöl­farið óskaði Sig­mundur Davíð svo eftir því að hún kæmi inn í stjórn­málin og kom hún inn í rík­is­stjórn hans sem utan­rík­is­ráð­herra til skamms tíma, þar sem langan tíma tók að mynda rík­is­stjórn árið 2016.

Hún fór svo í fram­boð og varð mennta- og menn­ing­ar­mála­ráð­herrra en margir útgef­endur telja hana einn mesta vel­gjörð­ar­mann bók­mennt­anna út af end­ur­greiðslu­kerf­inu sem komið var á í hennar tíð og fyrir hennar til­stilli. Hún lítur svo á að mennta­kerfið sé mesta jöfn­un­ar­tækið milli stétta og vilji maður hafa hreyf­an­leika milli stétt­anna þarf öfl­ugt mennta­kerfi, en þar skipti lest­ur­inn svo miklu máli. Lilja segir lest­ur­inn grunn­inn að öllu sem við gerum og því þurfi að vera til fjöl­breytt lestr­ar­efni.

Hún sá það þegar hún var að byrja í stjórn­málum að bóka­út­gáfa var að drag­ast saman. Upp­haf­lega hafði hún þá hug­mynd að lækka virð­is­auka­skatt á bókum en hún sá að til staðar var end­ur­greiðslu­kerfi í kvik­mynda­geir­anum. Eftir að þetta var sett á lagg­irnar hefur það haft í för með sér að bóka­út­gáfa hefur auk­ist um 37 pró­sent í heild­ina en hún hefur lagt sér­staka áherslu á efni fyrir börn og ungt fólk, og er aukn­ingin þar 50 pró­sent.

Hún telur að við stöndum frammi fyrir þeim vanda að ung börn í dag fái spjald­tölvu til afnota jafn­vel 9 mán­aða gömul og það hafi í för með sér að börnin heyri strax tvö tungu­mál, sem svo skilar sér í að mál­taka barna ger­ist seinna og þetta hefur áhrif á mál­þroska þeirra. Þess vegna sé mik­il­vægt að halda íslensk­unni sem mest að börnum. Ekki síst eigi þetta við börn inn­flytj­enda sem oft fái ekki þann stuðn­ing við íslensku­námið heima við sem þörf er á.

Lilja hefur mik­inn metnað til þess að tengja ferða­þjón­ust­una við menn­ing­una og hinar skap­andi greinar því hún telur að hér á landi sé svo margt að sjá; bók­mennt­irnar, kvik­mynd­irnar, leik­húsin og forn­sög­urnar.

Lilja vill svo efla söfnin okkar og segir „Það verður gaman að móta ferða­þjón­ust­una á næstu árum og það þarf að leggja meira í söfnin okkar. Nú í fyrsta sinn er að rísa nátt­úru­vís­inda­safn sem ég vil að sé nátt­úruvís­inda­safn frekar en nátt­úru­minja­safn. Ég vil sjá að við séum með söfn og afþr­ey­ingu sem er á heims­mæli­kvarða. Að fólk komi á svona safn og fræð­ist um allt sem teng­ist jarð­vís­indum og nátt­úru. Jarð­vís­indin hér á Íslandi eru svo heill­andi; þetta er ein stór til­rauna­stöð. Að fólk sem hefur komið til lands­ins geti fræðst um jarð­vís­indin, eldsum­brot og margt fleira.“

,,Söfnin þurfa að vera lif­andi, skemmti­leg og barn­væn. Þegar þér tekst að fá börnin inn á söfnin þá munu þau svo koma með börnin sín í fram­tíð­inni.  Mik­il­vægt að vera með safn sem tengir börn, vís­indi og sög­una. Fólk sem kemur til lands­ins hefur áhuga á að börn þeirra fræð­ist. Svo má til dæmis líta til sögu­sýn­ing­ar­innar „1238“ á Sauð­ár­króki þar sem verið er fara yfir Örlygs­staða­bar­daga. Þarna erum við að kynn­ast sög­unni í gegnum sýnd­ar­veru­leika sem er rosa­lega flott. Við eigum að gera meira af þessu.“

Lilja telur að við eigum að nýta þau sókn­ar­færi sem finn­ast í gæðum íslensk hrá­efnis. „Ég sé það fyrir mér að við höldum áfram að efla ferða­þjón­ust­una og byggð­ina hér í kringum allt landið með því að kynna íslenskan mat og íslenskt hrá­efni. Þetta er í hæsta gæða­flokki og líf­rænt ræktað. Ullin okkar fer áfram sig­ur­för um heim­inn og er aftur komin í tísku. Það sem við eigum að gera er að nýta íslenska hönnun og íslenska fram­leiðslu og lyfta þannig því upp sem við erum að gera hér og skapa okkur sér­stöðu.

Við eigum að vera að fram­leiða miklu meira af græn­meti hér á Íslandi. Frekar en að vera að flytja inn græn­meti þá ættum við að vera að fltyja út græn­meti. Við eigum alltaf að vera að hugsa það hvernig við getum aukið verð­mæta­sköpun og hvernig við getum fram­leitt með hag­kvæm­ari hætti og til þess líka að land­bún­að­ur­inn eflist þarf það líka að eiga sér stað að ungt fólk vilji fara inn í grein­ina og að það geti lifað vel af henni.“

Að lokum segir Lilja: „Það er ekki spurn­ing að fólk vill í auknum mæli búa á lands­byggð­inni og það hefur verið að breyt­ast í Covidinu. Fólk vill aðra búsetu og það er inn­byggt í okkur að vilja vera nálægt nátt­úr­unni. Ég er ekki í nokkrum vafa um að þarna eru sókn­ar­færi í að byggja lands­byggð­ina og því er mik­il­vægt að við stöndum fram­ar­lega í tækn­inni, því fólk þarf að geta haft fær­an­lega atvinnu.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Plastbiti fannst í 200 gramma dós af jógúrt
Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Menning

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Hrósar lýsingum Laxness á íslenskri náttúru og árstíðunum
Myndband
Menning

Luthers­son frum­sýnir blóð­uga ást­ar­sögu í eyði­mörk Kali­forníu

Menning

Sendu sím­ann í svefn­poka og fáðu smá frið

Menning

Ást, missir og barn­þrá í upp­seldri skáld­sögu Mar­grétar

Menning

Frá Rocky og Springsteen til aftöku í Sádi-Arabíu