Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Guðni ræðir við Svandísi: „Það eru miklar áskoranir – en okkur hefur tekist að halda í húmorinn“

Guðni ræðir við Svandísi: „Það eru miklar áskoranir – en okkur hefur tekist að halda í húmorinn“

„Það eru miklar áskor­anir og þá ekki síst hjá sauð­fjár­bændum, afkoman er ekki góð. Fólk býr jafn­vel við lítil efni og sumt hvert hrein­lega við fátækt og það er ekki ásætt­an­legt og við verðum að horfa til þess þegar við leggjum grunn að nýjum búvöru­samn­ingi og öllu því sem fylgir því.

Við erum núþegar komin með lít­inn inn­an­hús­hóp þar sem við ætum að byrja á því að leggja grunn­inn að því hvert við viljum stefna með land­bún­að­inn og hvert við viljum stefna í því að setja hvatann á réttan stað bæði í sókn í lofts­lags­málum, við höfum metn­að­ar­full mark­mið þar, og þar finnum við að bændur vilja leggj­ast á árar.

Sama gildir um skógrægt og land­græslu. Þetta er allt einn vefur. Gæta vel að land­bún­að­ar­landi, mögu­leikum þess, kort­leggja það allt vel og nýta landið sem best fyrir sam­fé­lagið allt,” segir Svandís Svav­ars­dóttir sem lauk kjör­tíma­bili sem heil­brigð­is­ráð­herra á dög­unum og tók við sem sjáv­ar­út­vegs-, land­bún­aðar- og mat­væla­ráð­herra Íslands.

Guðna Ágústs­sonar Land­bún­að­ar­ráð­herra Mannlífs ræddi við Svandísi um heil­brigð­is­málin, nýja ráðu­neytið og sam­starfið í rík­is­stjórn­inni.

Heilbrigðiskerfið sterkt og öflugt

Svandís fer yfir heil­brigð­is­málin og segir að:

„Þessi mála­flokkur snerti okkur öll frá vöggu til grafar, bók­staf­lega. Þetta er mála­flokkur sem snýst um almanna­þjón­ustu hvar sem búum, hvers kyns sem við erum og á öllum aldri. Þess vegna höfum við öll skoðun á honum og heyrum þegar fólk verður fyrir von­brigðum. Þó minna af því þegar vel gengur, sem er betur fer almenna reglan hjá okkur.

Á alla mæli­kvarða er heil­brigð­is­kerfið okkar sterkt og öfl­ugt og búið alveg ein­stak­lega öfl­ugu og góðu fólki. Þessi mála­flokkur er í sjálfu sér flók­inn og þungur en svo kemur heims­far­ald­ur­inn ofan á það í kjöl­farið sem er mikil glíma.

Mitt mat var það að reyna í lengstu lög að halda í sam­stöðu þjóð­ar­innar og það myndum við ekki gera með því að vera stöðugt í for­grunni sjálf [stjórn­mála­menn­irnir] því þá fer að mynd­ast þessi spenna milli stjórnar og stjórn­ar­and­stöðu. Það má ekki verða póli­tískt hvort við gætum að fjar­lægð, notum grímu og hugum að bólu­setn­ingum því það er það ekki í grunn­inn,” segir Svandís.

Ættuð úr Dölunum

Svandís er alin upp í Reykja­vík en er ættuð úr Borg­ar­firði og Dölum en móður hennar úr Breiða­firði og af Ströndum og á því djúpar rætur í land­bún­aði.

Átján ára gömul tók hún að sér kennslu í Hríesy sam­hliða því að stunda nám utan skóla við Mennta­skól­ann við Hamra­hlíð. Eftir að hún lauk námi við MH lærði hún almenn mál­vís­indi við Háskóla Íslands, svo íslenska mál­fræði byggt á því og að lokum íslenskt tákn­mál. Að námi loknu fór hún svo að vinna á Sam­skipta­mið­stöð Heyrn­ar­lausra þar sem hún vann við frum­kvöðla­verk­efni í tengslum við sam­fé­lag þeirra sem nota tákn­mál sem sitt fyrsta tungu­mál eins og tákn­máls­menntun við Háskól­ann og túlkun. Hún var svo kenn­ari við þá deild í fjöl­mörg ár á eftir.

Svandís byrj­aði seint í stjórn­málum því það var aldrei hannar fyr­ir­ætlun. Hún var 42 ára þegar hún sett­ist á þing.

Spurð út í samt­arf hennar og for­manns­ins, Katrínar Jak­obs­dóttur, segir hún: „Við höfum unnið saman og talað saman upp á hvern ein­asta dag frá því árið 2009, í raun og veru sam­fleytt í tólf ár. Við tvær erum þær einu sem eru enn á svið­inu eftur rík­is­stjórn Jóhönnu og Stein­gríms fyrir utan Oddnýju Harð­ar­dóttur.

Við erum í raun í annað sinn að ljúka fjög­urra ára kjör­tíma­bili innan rík­is­stjórnar. Við erum ekki bara póli­tískir banda­menn heldur erum við líka vinir og nágrannar. En það er mögnuð sam­staða sem hefur verið á milli okkar allan tím­ann og ég þakka það því að hún er nátt­úru­lega eit­ur­snjöll og mjög skörp.

Okkur hefur tek­ist að halda í húmor­inn og gleð­inni allan tím­ann. Hún er ein­stak­lega far­sæl í að leiða saman ólík sjón­ar­mið og koma fólki að niðu­stöðu og tala saman.”

Fyrst kvenna sem landbúnaðarráðherra Íslands

Svandís er nú fyrst kvenna til að skipa stöðu land­bún­að­ar­ráð­herra á Íslandi „Mér hefur fund­ist skipta mjög miklu máli, fyrir utan það að land­bún­að­ur­inn er fyrst og fremst mat­væla­fram­leiðslu­grein, þá er hann líka partur af okkar menn­ing­ar­sögu og hann er partur af okkar byggða­sögu og sam­fé­lags­legu og félags­legu kyn­slóð­anna í gegnum aldir.Það skiptir mjög miklu máli að við séum með­vitum um þennan þátt en ekki bara fram­leiðslu­þátt­inn. Þetta sér maður svo vel þegar það verða tækni­breyt­ingar því þá er hætt við að það verði ákveðið rof í ákveð­inni tækni­þekk­ingu; ákveðnu sam­hengi frá einni kyn­slóð til ann­arar.

Við ætlum að byggja upp mat­væla­ráðu­neyti þar sem land­bún­aður er í önd­vegi, þar sem að sjáv­ar­út­vegur snýst um gæða fram­leiðslu á sjáv­ar­fangi, þar sem við horfum ennþá meira til þess sem er grænt og vænt heldur en við höfum áður getað gert og þar sem við horfum meira til fæðu­ör­yggis sem snýst um aþað að landið sé sjálf­bært um mat­væla­fram­leiðslu í hæsta gæða­flokki fyrir íbúa þess.

Það getum við meðal ann­ars gert með því að efla líf­ræna fram­leiðslu og áburð­ar­fram­leiðslu inn­an­lands og þarna eru fjölda­mörg sókn­ar­tæki­færi. Það skiptir máli að við séum sjálf­bær um aðföng,” segir Svandís að lokum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Plönturnar fundust í tveimur gróðurkössum í farangursrýminu
Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Peningar

Samkaup semja um kaup á Fjarð­ar­kaupum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Menning

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Hrósar lýsingum Laxness á íslenskri náttúru og árstíðunum
Myndband
Menning

Luthers­son frum­sýnir blóð­uga ást­ar­sögu í eyði­mörk Kali­forníu

Menning

Sendu sím­ann í svefn­poka og fáðu smá frið

Menning

Ást, missir og barn­þrá í upp­seldri skáld­sögu Mar­grétar

Menning

Frá Rocky og Springsteen til aftöku í Sádi-Arabíu