InnlentSunneva Ósk ráðin gæðastjóri hjá Samherja13. maí 2020 Sunneva Ósk Guðmundsdóttir hefur verið ráðin gæðastjóri landvinnslu Samherja og Útgerðarfélags Akureyringa (ÚA). Hún tekur við starfinu af Elvari Thorarensen sem lætur af störfum af heilsufarsástæðum. Kemur þetta fram í tilkynningu á vef Samherja. Sunneva er sjávarútvegsfræðingur frá Háskólanum á Akureyri og hefur starfað við gæðamál hjá Samherja og ÚA undanfarin þrjú ár. Hún er búsett á Akureyri, er í...
InnlentErlend auglýsingastofa fær það verkefni að kynna Ísland – 1,5 milljarður úr landi13. maí 2020 Í apríl greindi Mannlíf frá markaðsherferðinni Saman í sókn, sem kynna mun Ísland sem áfangastað. Herferðin er ein af sjö aðgerðum sem kynntar voru á fyrsta viðbragðsfundi ríkisstjórnarinnar við COVID-19 10. mars. Eftir auglýst útboð, sem auk þess var sett í flýtiferli, er ljóst að erlend auglýsingastofa mun sjá um verkefnið, en niðurstöður útboðsins voru kynntar í gær. „Það er...
InnlentRöntgen opnar aftur í dag með breyttu sniði – Grilluð samloka til bjargar13. maí 2020 Ásgeir Guðmundsson, einn eigenda barsins Röntgen, segir að með breyttu sniði verði hægt að opna Röntgen aftur í dag, miðvikudag, en staðurinn hefur verið lokaður síðan 23. mars, frá því að hert samkomubann tók gildi og eigendum kráa og skemmtistaða var gert að loka þeim. Þetta breytta fyrirkomulag felur í sér að nú verður boðið upp á grillaðar samlokur á...
InnlentCovid-19Össur endurgreiðir Vinnumálastofnun 20 milljónirnar13. maí 2020 Össur hf. fylgir í fótspor Skeljungs og endurgreiðir Vinnumálastofnun þá upphæð sem starfsmenn fyrirtækisins hafa fengið greidda í hlutabætur á móti skertu starfshlutfalli. Fjárhagslega vel stæð fyrirtæki sem hafa nýtt sér hlutabótaleið ríkisstjórnarinnar hafa sætt gagnrýni. Í fréttatilkynningu sem Össur hf. sendir frá sér í gær kemur fram að ákveðið hafi verið að hætta að nota hlutabótaleiðina og endurgreiða Vinnumálastofnun...
InnlentHildur starfaði sem flugfreyja Icelandair í 21 ár: „Sárt að heyra að það sé mín stétt sem er að stefna fyrirtækinu í gjaldþrot“12. maí 2020 Hildur Stefánsdóttir er ein fjölmargra fyrrum flugfreyja Icelandair, sem hafa tjáð sig á samfélagsmiðlum, um launakjör stéttarinnar. Tilefnið er bréf Boga Nils Bogasonar, forstjóra Icelandair, sem hann birti á innri vef félagsins til starfsmanna þess. Þar sagði Bogi starfsmenn vera „helstu fyrirstöðuna“ fyrir að hægt sé að bjarga rekstrinum, en farið hefur verið fram á að flugfreyjur og -þjónar, auk...
InnlentÞjónustuaðilum Hörpu tilkynnt að samningar verði ekki endurnýjaðir12. maí 2020 Hluta þjónustuaðila í Hörpu hefur verið tilkynnt að þjónustusamingar þeirra fáist ekki endurnýjaðir. Stjórnendur tónlistarhússins hafa ekki tekið ákvörðun um hvort einhverjir þjónustuaðilanna fái framlengingu en lokadrög stefnumótunar Hörpu liggur nú fyrir. Svanhildur Konráðsdóttir, forstjóri Hörpu, staðfestir að nú verði skoðaðar mögulegar breytingar á þjónustu jarðhæðarinnar. Hún segir þá vinnu hafa staðið til um nokkurt skeið en aðstæður sem skapast...
Innlent„Fólk er ekkert öruggara á veitingastöðum en á skemmtistöðum og krám“12. maí 2020 „Það er ekkert grín að vera í þvingaðri rekstrarstöðvun í lengri tíma.“ Þetta segir Þórhallur Viðarsson, rekstrarstjóri og einn eigenda skemmtistaðarins B5 í Bankastræti 5 í samtali við Mannlíf. Þeim stöðum sem eru skilgreindir sem krár og skemmtistaðir hefur verið gert að loka á meðan kórónuveirufaraldurinn gengur yfir og óvissa er uppi um hvenær þessir staðir fá að hefja rekstur...
InnlentCovid-19„Óskiljanlegt“ að fólk fái að drekka bjór á veitingastöðum en ekki á krám12. maí 2020 „Þetta er algjör mismunun,“ segir Arnar Þór Gíslason sem rekur ásamt fleirum staðina Kalda bar, Den Danske Kro, Enska barinn, The Irishman Pub og Lebowski bar. Honum, líkt og öðrum rekstraraðilum skemmtistaða, var gert að loka öllum stöðum sínum af sóttvarnarástæðum að undanskildum Lebowski bar en þar eru seldar veitingar. „Veitingastaðir eru algjörlega pakkaðir af fólki. Fólk situr þar inni...
InnlentSegja fólk ekki tilbúið að taka á sig varanlega launalækkun en meiri vinnu12. maí 2020 Sigrún Jónsdóttir, formaður samninganefndar Flugfreyjufélags Íslands og Guðlaug Líney Jóhannsdóttir, formaður Flugfreyjufélagsins, segja tillögur Icelandair að nýjum kjarasamningi við Flugfreyjufélag Íslands vera óásætanlegar. Sigrún og Guðlaug ræddu tillögurnar í samtali við morgunútvarp Rásar 2 í morgun. Meðal tillagna Icelandair er að flugfreyjur yrðu án launahækkana til minnst 2023, þá yrði hægt að skoða launahækkanir en hækkanir yrðu háðar því að...
InnlentFagnar niðurstöðunni og vonar að félagsmenn Eflingar samþykki samninginn11. maí 2020 Stéttarfélagið Efling og Samband íslenskra sveitarfélaga undirrituðu nýjan kjarasamning laust fyrir miðnætti þar sem samið var fyrir hönd félagsmanna sem starfa hjá Kópavogsbæ, Seltjarnarnesbæ, Mosfellsbæ, Sveitarfélaginu Ölfusi og Hveragerðisbæ. Verkfallið náði til um 260-270 félagsmanna sem margir vinna við þrif í grunnskólum og heimaþjónustu. Ásgerður Halldórsdóttir, bæjarstjóri Seltjarnarness, er fegin að samningar náðust og vonar að félagsmenn Eflingar samþykki samninginn....
InnlentBiður starfsfólk Icelandair um að láta ekki kúga sig út í stórfelldar launalækkanir11. maí 2020 Ragnar Þór Ingólfsson, formaður VR, segir stjórnendur Icelandair hafa toppað sig sem árásum á eigin starfsfólk. Ragnar fjallar um ummæli Noga Nils Bogasonar, forstjóra Icelandair, um að starfsmenn Icelandair séu „helsta fyrirstaðan“ fyrir að hægt sé að bjarga rekstrinum. „Þeir náðu þó að toppa sig, ótrúlegt en satt, með árásum á sitt eigið starfsfólk sem er hið raunverulega verðmæti fyrirtækisins,“...
InnlentSegir flugfreyjur og flugmenn Icelandair þurfa að taka á sig 50-60 prósenta launalækkun11. maí 2020 Til að forða flugfélaginu Icelandair frá gjaldþroti verða flugfreyjur og flugmenn félagsins að taka á sig launalækkun á bilinu 50-60%. Stjórnendur félagsins þurfa að gera starfsmönnum grein fyrir alvarleika þeirrar stöðu sem upp er komin vegna kórónuveirufaraldursins. Þetta er haft eftir ráðgjafa eins af stóru hluthöfum Icelandair í Morgunblaðinu. Ef ekki næst að skera niður launakostnað er ekkert annað í...