Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Röntgen opnar aftur í dag með breyttu sniði – Grilluð samloka til bjargar

Ásgeir Guð­munds­son, einn eig­enda bars­ins Röntgen, segir að með breyttu sniði verði hægt að opna Röntgen aftur í dag, mið­viku­dag, en stað­ur­inn hefur verið lok­aður síðan 23. mars, frá því að hert sam­komu­bann tók gildi og eig­endum kráa og skemmti­staða var gert að loka þeim.

Þetta breytta fyr­ir­komu­lag felur í sér að nú verður boðið upp á grill­aðar sam­lokur á Röntgen og þannig verður hægt að hefja rekstur á nýjan leik. „Með því að breyta starf­sem­inni og setja upp popup-veit­inga­stað með ein­földum mat­seðli þá getum við opnað aftur“. Hann segir mat­seð­il­inn vera ein­faldan en „geggj­aðan“ en á honum er grilluð sam­loka.

Hann segir að það sjái varla fyrir end­ann á ástand­inu og því hafi góð ráð verið dýr. Þess vegna hafi verið ráð­ist í breyt­ingar á rekstr­inum. „Yfir­leitt er ekki hollt fyrir svona ungan stað að ráð­ast í breyt­ingar en núna eru góð ráð dýr.“

Hann tekur fram að Röntgen er með veit­inga­húsa­leyfi en stað­ur­inn hefur verið rek­inn sem bar hingað til.

Sjóður og samvinnuþýðir birgjar komið sér vel

Ásgeir segir að Röntgen hafi notið mik­illa vin­sælda síðan hann var opn­aður í nóv­em­ber í fyrra og að rekst­ur­inn hafi gengið vel frá fyrsta degi. „Við áttum smá­sjóð til að lifa þetta sam­komu­bann af en núna þurfum við að vera krea­tífir,“ segir Ásgeir. Hann tekur fram að þegar Röntgen verður opn­aður aftur með breyttu sniði þá verður áhersla lögð á að fram­fylgja öllum sótt­varn­ar­reglum.

Ásgeir segir birgja og sam­starfs­að­ila Röntgen hafa sýnt ástand­inu skiln­ing og það hafi komið sér vel. „Flestallir hafa verið sam­vinnu­þýðir, örugg­lega af því að þeir sjá bjarta fram­tíð fyrir þennan stað og við höfum vandað til verka.”

Róleg stemning fyrir miðnætti

Nokkrir rekstr­ar­að­ilar skemmti­staða og kráa hafa gagn­rýnt það að í sam­komu­banni fái veit­inga­hús að halda starf­semi sinni áfram með ákveðnum tak­mörk­unum en það sama á ekki við um staði sem eru skil­greindir sem krár eða skemmti­staðir.

Sjá einnig: „Fólk er ekk­ert örugg­ara á veit­inga­stöðum en á skemmti­stöðum og krám“

„Ég hef fulla samúð með þeim sem sjá ekki fram á að opna rekst­ur­inn sinn á næst­unni. Ég við­ur­kenni að það er erfitt að skilja rökin fyrir að skemmti­staðir eru teknir út fyrir sviga. Ég skil mark­miðið og hætt­una við að það sé erf­ið­ara að fram­fylgja sótt­varn­ar­lögum þegar ölv­un­ar­stigið er orðið meira. En maður sér ekki mun­inn á því að drekka bjór á krá eða veit­inga­stað. Það er líka jafnan lengri við­vera fólks á veit­inga­stöðum heldur en á börum, fólk fær sér kannski for­drykk, vín með matnum og svo kok­teil í eft­ir­rétt á veit­inga­stöðum,“ segir Ásgeir.

„Það byrjar nefni­lega eng­inn að dansa fyrir mið­nætti.”

„Svo hef ég heyrt út undan mér að fólk sé hrætt um að smit­hætta auk­ist þegar fólk fer að stíga dans á skemmti­stöðum, en ef krár og skemmti­staðir myndi verða lokað klukkan 23.00 líkt og veit­inga­stöðum þá er engin hætta á að þetta verði vanda­mál. Það byrjar nefni­lega eng­inn að dansa fyrir mið­nætti,” segir Ásgeir og hlær.

Hann segir stemn­ing­una á Röntgen alla jafna vera rólega fyrir mið­nætti. „Fólk situr yfir­leitt í mak­indum sínum fyrir mið­nætti og gæðir sér á kampa­víni, fal­legum kok­teil eða ísköldum bjór. Það er ekki fyrr en eftir mið­nætti sem það mynd­ast meiri skemmti­staða­stemn­ing og svo­lítið dans­gólf.“

Sjá einnig: „Óskilj­an­legt“ að fólk fái að drekka bjór á veit­inga­stöðum en ekki á krám

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Plönturnar fundust í tveimur gróðurkössum í farangursrýminu
Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Peningar

Samkaup semja um kaup á Fjarð­ar­kaupum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Innlent

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina