InnlentEndurfjármögnun getur lækkað vaxtakostnað um hundruð þúsunda15. febrúar 2020 Lífeyrissjóðirnir hafa margir snarlækkað vexti á húsnæðislánum undanfarin misseri, samhliða lækkandi stýrivöxtum. Á allra síðustu árum hefur húsnæðisverð á höfuðborgarsvæðinu hækkað hratt umfram verðlag. Þetta hefur skapað góð skilyrði til endurfjármögnunar, sem ýmist getur haft í för með sér lægri vaxtagreiðslur eða styttri lánstíma.
InnlentBrynhildur ráðin leikhússtjóri Borgarleikhússins14. febrúar 2020 Brynhildur Guðjónsdóttir hefur verið ráðin leikhússtjóri Borgarleikhússins. Brynhildur er í hópi fremstu leikhúslistamanna á Íslandi um þessar mundir. Hún hefur yfir tuttugu ára reynslu sem leikari, höfundur, listrænn ráðunautur og leikstjóri. Hún hefur starfað við Borgarleikhúsið síðastliðin átta ár en hún er leikstjóri sýninganna Ríkharður III, sem var valin leiksýning árins 2019, og Vanja frændi, sem enn er í sýningu....
InnlentKristín um starfslokin sem leikhússtjóri: „Finn í hjarta mínu að það er komið að tímamótum“14. febrúar 2020 Kristín Eysteinsdóttir leikhússtjóri Borgarleikhússins hefur óskað eftir að láta af störfum sem fyrst hjá leikhúsinu, einu og hálfu ári áður en starfstímabili hennar á að ljúka.
InnlentKristín vill hætta sem fyrst13. febrúar 2020 Kristín Eysteinsdóttir leikhússtjóri hefur óskað eftir að láta af störfum hjá Borgarleikhúsinu sem fyrst, einu og hálfu ári áður en starfstímabili hennar á að ljúka. Vísir greinir fyrst frá þessu. Þar segir að Kristín hafi sent samstarfsfólki sínu tölvupóst þar sem hún greinir frá ákvörðun sinni. Í tölvupósti Kristínar til starfsfólks leikhússins segir hún að hana langi í meira frelsi...
InnlentÍslenskur loðdýrabóndi dapur yfir banni í Noregi: „Þá er bara spurning hvaða búgreinar þeir ná til næst“13. febrúar 2020 „Mér finnst þessi niðurstaða mjög döpur,“ segir Einar E. Einarsson, formaður Sambands íslenskra loðdýrabænda um þá staðreynd að eftir fimm ár tekur gildi algjört bann við loðdýrarækt til skinnaframleiðslu í Noregi. Norska ríkisútvarpið, NRK, hefur undanfarna daga fjallað um þær bætur sem norsk stjórnvöld hafa samþykkt að greiða loðdýrabændum sem er gert að hætta starfsemi fyrir 1. febrúar árið 2025....
InnlentSkoða möguleikann á að fara út í kjötræktun12. febrúar 2020 ORF Líftækni, sem er einna þekktast fyrir húðvörurnar BIOEFFECT, skoðar nú möguleikana á að selja frumuvaka sína til kjötræktunarfyrirtækja. Björn Lárus Örvar, framkvæmdastjóri rannsókna og nýsköpunar, hjá ORF Líftækni. Mynd / Rakel Ósk Frosti Ólafsson, forstjóri félagsins, og Björn Lárus Örvar, einn af stofnendum fyrirtækisins, segja frá þessu verkefni í viðtali við ViðskiptaMoggann í dag. Þeir hafa átt í viðræðum...
HeimurFékk bleyju senda í pósti – „Er þetta ekki full langt gengið?“11. febrúar 2020 Í vikunni hafa einhverjum nýbökuðum foreldrum borist bleyjur frá Libero í pósti. Dagur Bollason er einn þeirra en hann vekur athygli á þessari markaðsherferð á Twitter. Hann setur spurningarmerki við aðferð Libero á Íslandi sem honum þykir heldur ósvífin. „Þetta fékk ég sent í pósti í morgun. Eru sem sagt markaðsfyrirtæki að skrapa saman kennitölum nýfæddra barna úr þjóðskrá og...
InnlentUndirbúa stofnun nýs flugfélags fyrir norðan10. febrúar 2020 Hópur fjárfesta á Eyjafjarðarsvæðinu skoðar nú hvernig hægt sé að koma á reglubundnu áætlunarflugi milli Akureyrar og tveggja til þriggja áfangastaða í Evrópu. „Við erum sannfærð um að grundvöllur sé fyrir ætlunarflugi milli Evrópu og Íslands um Akureyrarflugvöll,“ segir Þorvaldur Lúðvík Sigurjónsson, sem leiðir verkefnið fyrir hönd fjárfesta, í samtali við Fréttablaðið í dag. Þar kemur fram að verkefnið beri...
Innlent„Rafbílarnir“ í fyrsta sinn í meirihluta seldra bíla8. febrúar 2020 Sprenging hefur orðið í sölu rafbíla. Í janúar voru nýskráðir fólksbílar sem að öllu leyti eða hluta til voru knúnir rafmagni í fyrsta sinn fleiri en hefðbundnir bensín- og dísilbílar samanlagt. Forstjóri Brimborgar á von á enn meiri sölu rafbíla á þessu ári. Fjölmargir valkostir eru að koma á markað. Páll Þorsteinsson hjá Toyota segir að framleiðandinn standi öðrum framar...
InnlentHagnaður Landsbankans 18,2 milljarðar6. febrúar 2020 Hagnaður Landsbankans var 18.235 milljarðar króna, samanborið við 19.260 milljarða króna árið 2018. Þetta kemur fram í uppgjöri Landsbankans sem birt var á vef bankans í dag. Arðsemi eigin fjár eftir skatta var 7,5% á árinu 2019, samanborið við 8,2% arðsemi árið áður. Rekstrartekjur bankans á árinu 2019 námu 51,5 milljörðum króna samanborið við 53,9 milljarða króna árið áður. Rekstrarkostnaður...
InnlentSegir áherslu lagða á að finna lausnir sem henta namibísku samfélagi6. febrúar 2020 Útgerðarfyrirtækið Samherji hefur undanfarið unnið að því að draga úr starfsemi sinni í Namibíu með það að markmiði að hætta öllum rekstri í landinu. Þetta kemur fram í nýrri tilkynningu á vef Samherja. Þar segir að áhersla sé lögð á að finna lausnir sem henta namibísku samfélagi. Af þeim þremur skipum sem hafa stundar veiðar í namibískri lögsögu undanfarið ár,...
InnlentHið íslenzka reðasafn á Hafnartorg5. febrúar 2020 Hið íslenzka reðasafn mun opna á Hafnartorginu innan nokkurra mánuða. Þessu er sagt frá á vef Vísis. Safnið er núna til húsa á Laugavegi 116 en í frétt Vísis er haft eftir safnstjóranum Hirti Gísla Sigurðssyni að það húsnæði standi tæplega lengur undir starfseminni. Húsnæðið við Laugarveg 116 er 590 fermetrar og skiptist í 250 fermetra verslunarhúsnæði og 340 fermetra...