Glúmur Baldvinsson
„Þetta verða löng málaferli“
Glúmur Baldvinsson
Menning

Ris og fall Krumma

Fólk

Flug­freyja afhjúpar 15 hluti sem þú ættir aldrei að taka með í flug

Innlent

Hljóð­upp­tökur komu verk­stæði í Garðabæ í koll

Innlent

„Mig bara langar ekki í saur­gerla­bað“

Fólk

Selja fal­legt fjöl­skyldu­hreiður með heitum potti og stórum garði

Heimur

Hundruð reyndu að færa fræga lista­verkið til að bjarga manni

Heimur

Sam­göngu­yf­ir­völd rann­saka hesta­ferð í stræt­is­vagni

Fólk

Átta algeng mis­tök sem gælu­dýra­eig­endur gera

Heimur

Kenn­ingar uppi um að geim­skip hafi stöðvað flug­um­ferð í Banda­ríkj­unum

Innlent

Ísland sett í frystikist­una næstu daga

Björgunarsveitir á Gasasvæðinu segja níu börn meðal látinna í árás Ísraela á byggingu SÞ

Kalla eftir alþjóð­legum þrýst­ingi til að stöðva vax­andi hernað Ísraels.

Fórnarlamb Ísraela
Fórn­ar­lamb Ísraela Níu börn voru drepin í árásinni Mynd: AFP

Ísra­elski her­inn sagð­ist hafa ráð­ist á víga­menn Hamas í árás á bygg­ingu Sam­ein­uðu þjóð­anna í Jabalia-flótta­manna­búð­unum í dag. Samkvæmt borg­ara­legu varn­ar­sveit­inni á Gasa­svæð­inu lét­ust 19 manns í árásinni, þar á meðal níu börn.

Í yfir­lýs­ingu hers­ins kom fram að skot­markið hafi verið „skip­ana- og stjórn­stöð sem var notuð til að sam­ræma hryðju­verka­árásir.“ Ísra­els­her stað­festi sér­stak­lega við AFP að bygg­ingin hýsti heilsu­gæslu­stöð á vegum SÞ.

Tals­maður borg­ara­legrar varn­ar­sveitar, Mahmud Bassal, sagði að einnig að tugir hafi særst í árásinni, sem „beind­ist að bygg­ingu UNRWA þar sem starf­rækt var lækna­mið­stöð.“

Flótta­manna­að­stoð Sam­ein­uðu þjóð­anna fyrir Palest­ínu­menn (UNRWA) sagði í yfir­lýs­ingu að árásin hafi hæft „tvö her­bergi á fyrstu hæð eyði­lagðrar heilsu­gæslu­stöðvar UNRWA“, sem hafi verið notuð sem skjól fyrir 160 fjöl­skyldur á flótta.

„Margar fjöl­skyldur á flótta hafa ekki yfir­gefið svæðið, ein­fald­lega vegna þess að þær hafa engan annan stað til að fara á,“ sagði í yfir­lýs­ing­unni.

UNRWA bætti við að starfs­menn stofn­un­ar­innar „höfðu umsjón með skýl­inu þegar það varð fyrir árás í dag klukkan 10,“ og und­ir­strik­aði að stofn­unin hafði deilt stað­setn­ing­ar­gögnum bygg­ing­ar­innar með ísra­elska hernum.

Ísra­elski her­inn sagði að „svæðið hafi verið notað af Jabalia-deild Hamas til að skipu­leggja hryðju­verka­árásir“ og sak­aði sam­tökin um að „mis­nota borg­ara sem mann­leg skjöld.“

Utan­rík­is­ráðu­neyti Palest­ínu, sem er með aðsetur í Ramallah, for­dæmdi „fjöldamorðið í UNRWA-klíník­inni Jabalia“ og kall­aði eftir „alþjóð­legum þrýst­ingi“ til að stöðva vax­andi hernað Ísraels.

Íslamska Jihad-hreyf­ingin, banda­menn Hamas, kall­aði árás­ina „grófan stríðs­glæp.“

Ísrael hefur ítrekað gert loft­árásir á bygg­ingar UNRWA þar sem flótta­fólk í Gaza hefur leitað skjóls.

Árás á Al-Jawni-skól­ann, sem rekin er af Sam­ein­uðu þjóð­unum í Mið-Gaza, vakti alþjóð­lega hneykslun 11. sept­em­ber, eftir að UNRWA til­kynnti að sex starfs­menn stofn­un­ar­innar væru meðal hinna 18 látnu.

Ísra­elski her­inn sakar Hamas um að fela sig í bygg­ingum þar sem þús­undir íbúa Gaza hafa leitað skjóls – ásökun sem sam­tökin hafna.

Ísrael hóf aftur stór­felldar loft­árásir á Palest­ínu­svæðið 18. mars eftir að við­ræður um sex vikna vopna­hlé runnu út í sand­inn.

Í dag gerði Ísrael loft­árásir á suður- og mið­hluta Gaza, sem sam­kvæmt borg­ara­legri varn­ar­sveit drápu að minnsta kosti 15 manns, þar á meðal börn, í borg­inni Khan Yunis og Nuseirat-flótta­manna­búð­unum.

Frá 18. mars hafa að minnsta kosti 1.042 manns lát­ist í Gaza sam­kvæmt nýj­ustu tölum frá heil­brigð­is­ráðu­neyti Hamas, sem upp­færðar voru í gær.

Að minnsta kosti hafa alls 61,709 manns verið drepnir síðan stríðið hófst eftir árás Hamas í októ­ber 2023, sam­kvæmt tölum ráðu­neyt­is­ins, sem Sam­ein­uðu þjóð­irnar líta á sem áreið­an­legar.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

Innlent

Ökumenn í vímu og slags­mál í mið­bænum

Gangandi vegfarandi varð fyrir bíl en slapp með minniháttar meiðsli
Skoðun
Brynjar Birgisson

Það er ekki nægur mennta­hroki á Íslandi

Brynjar Birgisson
Heimur

Ók á hóp fólks og varð tveimur að bana en sleppur við ákæru

Heimur

Fimmtán ára drengur frá Palest­ínu laus úr fang­elsi í Ísrael

Innlent

Halldóra hæf­ari en Björn og Sigríður Elsa

Heimur

Heimur

Stefan Holm ákærður fyrir lík­ams­árás eftir árás á Emil Persson

Eftirlitsmyndir sýna Holm grípa í Persson á veitingastað í Gautaborg. Sá síðarnefndi hlaut áverka á hálsi og rispur á baki.
Heimur

Einka­dóttir leikkon­unnar Lisu Maxwell látin, 27 ára að aldri

Heimur

Móðir RJ Mitte minn­ist hans mán­uði eftir and­látið

Heimur

„Ég var ekki full­klæddur og fólk úti gat horft beint inn um svefn­her­berg­is­glugg­ann minn!“

Heimur

Rabbíni ferð­ast um Vest­ur­bakk­ann til að kynna sér ofbeldið

Heimur

Dán­ar­or­sök leik­ar­ans Anthony Clark komin fram