Glúmur Baldvinsson
„Þetta verða löng málaferli“
Glúmur Baldvinsson
Menning

Ris og fall Krumma

Fólk

Flug­freyja afhjúpar 15 hluti sem þú ættir aldrei að taka með í flug

Innlent

Hljóð­upp­tökur komu verk­stæði í Garðabæ í koll

Innlent

„Mig bara langar ekki í saur­gerla­bað“

Fólk

Selja fal­legt fjöl­skyldu­hreiður með heitum potti og stórum garði

Heimur

Hundruð reyndu að færa fræga lista­verkið til að bjarga manni

Heimur

Sam­göngu­yf­ir­völd rann­saka hesta­ferð í stræt­is­vagni

Fólk

Átta algeng mis­tök sem gælu­dýra­eig­endur gera

Heimur

Kenn­ingar uppi um að geim­skip hafi stöðvað flug­um­ferð í Banda­ríkj­unum

Innlent

Ísland sett í frystikist­una næstu daga

Kona drekkti hundi sínum á Orlando-flugvelli

Skorti papp­íra til að taka hann með í flug.

Alison Agatha Lawrence
Alison Agatha Lawrence Alison er grunuð um hrotta­legt dýra­níð. Mynd: Lake County Sheriff´s Office

Farþegi er sagður hafa drekkt hundi sínum á flug­velli eftir að hafa verið sagt að hún gæti ekki farið um borð í flug­vél með gælu­dýrið, sem fannst síðar í rusla­tunnu.

Alison Agatha Lawrence, 57, frá Clermont, Flórída, var að sögn á alþjóða­flug­vell­inum í Orlando þegar henni var ekki leyft að kom­ast í flug þar sem hún var ekki með papp­íra fyrir hund­inn sinn. Því er haldið fram að þann 16. des­em­ber síð­ast­lið­inn hafi hún ákveðið að ná vél­inni þrátt fyrir að mega ekki taka hund­inn með og hafi framið hrylli­legt grimmd­ar­verk og drepið hund­inn.

Lawrence og hund­ur­innStuttu síðar er talið að Lawrence hafi drekkt hund­inum.

Yfirvöld hafa sagt að hún hafi drekkt púðlu­hund­inum á kló­setti á flug­vell­inum og setti síðan lík hans í rusla­tunnu.

Dauði hund­ur­inn fannst af starfs­manni á flug­vell­inum og lög­reglan í Orlando var kölluð út með hand­töku­skipun á Lawrence síðar. Hún var svo hand­tekin á heim­ili sínu síð­ast­lið­inn þriðju­dag ákærð fyrir grimmd­ar­verkið.

Lög­reglan í Orlando sagði ekki hvers konar dýr það var sem dó og engar aðrar upp­lýs­ingar voru gefnar upp. Fimm tímum eftir að hafa verið bókuð í fang­elsi Lake-sýslu var Lawrence lát­inn laus gegn 5.000 doll­ara trygg­ingu, sam­kvæmt fang­els­is­gögnum.

Ekki hefur verið gefið upp hvers vegna Lawrence var á ferð með hund­inn og ástæðan fyrir öfga­fullum gjörðum hennar. Nágrannar hennar hafa sagt að hún væri með hvítan púðlu­hund og sást stundum út að ganga með hund­inn.

Þeir sögðu að hvorki hund­ur­inn né Lawrence hefðu sést nýlega en einn nágrann­inn var á því að konan hlyti að vera and­lega veik: „Sá sem gerir svona hlut hlýtur að vera trufl­aður í hausnum.“

Nágrann­arnir Roy og Janet Fern­andes sögð­ust hafa fylgst með þegar lög­reglan kom að heim­ili Lawrence til að hand­taka hana. „Ég hélt áfram að horfa út og velti því fyrir mér hvað væri í gangi,“ sagði Janet Fern­andes.

„Svo fóru þeir, svo komu þeir aftur. Hann sagð­ist hafa heyrt læti í gangi fyrir utan. Það hlýtur að hafa verið þegar þeir hand­tóku hana.“ Á meðan vissi systir Lawrence ekk­ert um ásak­an­irnar, né hvar systir hennar var, sagði hún við frétta­mið­il­inn WFTV. Hún bætti við að Lawrence væri ekki með síma.

Eftir að hafa heyrt um atvikið sagði öld­unga­deild­ar­þing­mað­ur­inn Tom Leek, sem lagði nýlega fram frum­varp um dýra­níð, á öld­unga­deild þings­ins: „Þetta er enn eitt hræði­legt dæmi um það hvers vegna ég lagði fram [frum­varpið] sem teng­ist dýra­níð, sem styrkir refs­ingar fyrir þá sem skaða sak­laus dýr.“

Hann sagði einnig, sam­kvæmt ClickOrlando: „Það er skuld­bind­ing mín að fá þetta góða frum­varp sam­m­þykkt í öld­unga­deild Flórída og full­trúa­deild Flórída og sent til rík­is­stjór­ans Ron DeSantis til und­ir­skriftar hans.“

Banda­rísk yfir­völd leyfa litlum gælu­dýrum að ferð­ast með eig­endum í far­þega­rými flug­vél­ar­innar sé fólk með rétta papp­íra. Þeir þurfa að vera í búri og það þarf að leita að sprengi­efnum áður en þeim er hleypt um borð.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

Innlent

Ökumenn í vímu og slags­mál í mið­bænum

Gangandi vegfarandi varð fyrir bíl en slapp með minniháttar meiðsli
Skoðun
Brynjar Birgisson

Það er ekki nægur mennta­hroki á Íslandi

Brynjar Birgisson
Heimur

Ók á hóp fólks og varð tveimur að bana en sleppur við ákæru

Heimur

Fimmtán ára drengur frá Palest­ínu laus úr fang­elsi í Ísrael

Innlent

Halldóra hæf­ari en Björn og Sigríður Elsa

Heimur

Heimur

Stefan Holm ákærður fyrir lík­ams­árás eftir árás á Emil Persson

Eftirlitsmyndir sýna Holm grípa í Persson á veitingastað í Gautaborg. Sá síðarnefndi hlaut áverka á hálsi og rispur á baki.
Heimur

Einka­dóttir leikkon­unnar Lisu Maxwell látin, 27 ára að aldri

Heimur

Móðir RJ Mitte minn­ist hans mán­uði eftir and­látið

Heimur

„Ég var ekki full­klæddur og fólk úti gat horft beint inn um svefn­her­berg­is­glugg­ann minn!“

Heimur

Rabbíni ferð­ast um Vest­ur­bakk­ann til að kynna sér ofbeldið

Heimur

Dán­ar­or­sök leik­ar­ans Anthony Clark komin fram