Glúmur Baldvinsson
„Þetta verða löng málaferli“
Glúmur Baldvinsson
Fólk

Eitt eft­ir­minn­an­leg­asta hús lands­ins sett á sölu

Menning

Ris og fall Krumma

Innlent

Móðir á Íslandi í laga­legri sjálf­heldu vegna föður sem eng­inn finnur

Pólitík

Inga Sæland hjólar í borg­ar­stjórn

Innlent

Kóka­ín­farm­ur­inn komst ekki lengra en til Kefla­víkur

Heimur

„Ég var ekki full­klæddur og fólk úti gat horft beint inn um svefn­her­berg­is­glugg­ann minn!“

Fólk

Fjórar ástæður fyrir því að þú færð auð­veld­lega mar­bletti

Heimur

Einka­dóttir leikkon­unnar Lisu Maxwell látin, 27 ára að aldri

Heimur

Dán­ar­or­sök leik­ar­ans Anthony Clark komin fram

Innlent

Fluttur ælandi með sjúkra­bíl

Grétar segir íbúa Laugardals svikna: „Vanvirðing borgaryfirvalda við hverfið“

Laugalækjarskóli –
Lauga­lækj­ar­skóli – Mynd: Reykjavíkurborg

Eins og Mannlíf fjall­aði um í gær hefur Reykja­vík­ur­borg breytt áætlun sinni um upp­bygg­ingu skóla­starfs í Laug­ar­dalnum sem sam­þykkt var árið 2022 eftir ítar­legt sam­ráð fyrir íbúa og skóla­stjórn­endur hverf­is­ins. Upp­runa­lega sam­þykktin snérist um að skóla­starf í Laug­ar­nes­skóla, Lauga­lækj­ar­skóla og Lang­holts­skóla myndi að mestu leyti hald­ast óbreytt en byggt yrði við skól­anna til að mæta auknum þörfum og fjölda nem­enda.

Í fyrra­dag var sam­þykkt á fundi skóla- og frí­stunda­ráðs Reykja­vík­ur­borgar að hætta við þá áætlun og byggja frekar nýjan safn­skóla í Laug­ar­dalnum og yrðu því skól­arnir þrír aðeins ætl­aðir fyrir nem­endur í 1. – 7. bekk en var þetta ákveðið án sam­ráðs við íbúa og skóla­stjórn­endur og kom í ljós að skóla­stjórn­endur vissu ekki að málið væri yfir­höfuð í end­ur­skoðun.

Grétar Már Axelsson, full­trúi for­eldra­fé­lag í íbúa­ráði Laug­ar­dals, segir borg­ina svíkja íbúa Laug­ar­dals í pistli sem hann birti á Vísi í dag.

„Reykja­vík­ur­borg hyggst ganga á bak eigin lof­orða um að fram­tíð­ar­upp­bygg­ing skóla­starfs í Laug­ar­dal verði á grund­velli far­sælu skól­anna okkar og óbreyttum hverf­is­brag. Þegar borg­ar­yf­ir­völd ákváðu á haust­mán­uðum 2022 að ganga í takt með íbúum hverf­is­ins fögn­uðu full­trúar meiri­hlut­ans eftir „þverpóli­tískt sam­ráð við hag­að­ila, stjórn­endur, starfs­menn, for­eldra og börn“. Í kjöl­farið hafa borg­ar­yf­ir­völd dregið íbúa hverf­is­ins á asna­eyrum í tæp tvö ár á meðan þeir biðu eftir fram­gangi mála. Ítrek­uðum óskum um upp­lýs­ingar varð­andi stöðu og þróun mála var mætt með ærandi þögn,“ og skrifar Grétar að þessi u-beygja borg­ar­innar sé ísköld gusa og þvert á allt sam­ráð sem staðið hefur verið fyrir.

„Borgin hefur van­hirt að við­halda hús­næði skól­anna um ára­tuga skeið. Stefna sem er algjör­lega gjald­þrota. Börnin okkar og starfs­menn skól­anna þurfa að sækja nám og vinnu í heilsu­spill­andi hús­næði. Svör um end­ur­bætur og við­gerðir eru þoku­kennd og óáþreif­an­leg. Það er hægt að gera svo marg­falt betur,“ heldur Grétar áfram.

Breyttar for­sendur eru aðal­á­stæða fyrir stefnu­breyt­ingu borg­ar­innar en gefur Grétar lítið fyrir þá afsökun og segir að það sé æpandi skortur á heild­stæðri áætlun.

„Það er morg­un­ljóst að borg­ar­yf­ir­völd ætl­uðu aldrei að fram­kvæma neitt af því sem ákveðið hafði verið, ekk­ert hefur verið gert til að und­ir­búa fram­kvæmdir. Borg­ar­yf­ir­völd eru grímu­laust að snúa baki við óskum íbú­anna og henda öllu sam­ráði út í veður og vind. Svikin eru stór og von­brigðin eru mikil. Samtal borg­ar­innar við íbúa Laug­ar­dals er brotið, van­traustið verð­skuldað og van­virð­ing borg­ar­yf­ir­valda við hverfið áþreif­an­leg,“ skrifar Grétar að lokum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

1
Minning

Lárus Heið­ars­son lát­inn

Lárus Heið­ars­son, skóg­ar­bóndi og fyrr­ver­andi odd­viti Fljóts­dals­hrepps, var bor­inn til grafar á föstu­dag. Hann lést 28. októ­ber síð­ast­lið­inn eftir skamma en erf­iða bar­áttu við bráða­hvít­blæði. Aust­ur­frétt greindi frá and­lát­inu. Lárus gegndi fjöl­mörgum trún­að­ar­störfum fyrir Fljóts­dals­hrepp og sat í sveit­ar­stjórn frá árinu 2010, fyrst sem vara­odd­viti og síðar odd­viti. Hann kom einnig að mótun Svæð­is­skipu­lags Aust­ur­lands og var í stjórn Sambands...

Mest lesið í vikunni

Heimur

Hundruð reyndu að færa fræga lista­verkið til að bjarga manni

Auglýsingar um borgina og á samfélagsmiðlum hvöttu fólk til að taka þátt
Minning

Guðjón Þórð­ar­son er fall­inn frá

Innlent

Hljóð­upp­tökur komu verk­stæði í Garðabæ í koll

Innlent

„Mig bara langar ekki í saur­gerla­bað“

Innlent

Kom með ólög­legan grænan varn­ing í far­angrinum

Innlent

Innlent

Morg­un­blaðið aftur gagn­rýnt fyrir mynda­notkun við frétt

Gauti B. Eggertsson gagnrýnir að fánar Palestínu og hinsegin fólks hafi fylgt frétt um ofbeldi gegn stúlkum í Reykjanesbæ.
Innlent

Ung­lingur stakk mann í síð­una og réðst á annan með járn­röri

Innlent

Trufl­anir hjá Microsoft hafa áhrif á starf­semi MAST

Innlent

Nýtt trú­fé­lag skráð á Íslandi

Innlent

Reykja­vík breytt­ist í risa­stórt bíla­stæði

Innlent

Gunnar Smári segir frá sárs­auka­fullum dögum og svefn­lausum nóttum