Fara í efni
Grímur Grímsson
„Afleiðingar ofbeldis og hótana um slíkt eru þær að óöryggi eykst"
Grímur Grímsson
Innlent

Stór nöfn vilja upp á RÚV

Frétt

Allir skip­verjarnir hífðir upp úr sjónum

Fólk

Rán Flygenring opnar sig um krabbameins­greiningu

Fólk

Selja risa einbýli á spottprís

Fólk

Sex hlutir sem sérfræðingar mæla með að þrífa fyrir jóla­hátíðina

Frétt

Kapp­sigling til hjálpar skip­verjum

Pólitík

Öll teppi voru búin á bráða­móttökunni á Akureyri

Fólk

Fimm svefn­herbergi og bílaplan fyrir ættar­mótið

Heimur

Tveir menn hafa látist við íbúðar­skoðun í sama turni á sex árum

Innlent

Fangi kvartaði eftir að sambýlis­konu hans var bannað að heimsækja hann

Bæjarstjóri ákærður fyrir íkveikju

Sagður bera ábyrgð á umfangs­miklum skógar­eldi

Slökkvilið að störfum í Grikklandi
Slökkvi­lið að störfum í Grikk­landi Mynd: ARIS OIKONOMOU / AFP

Grísk yfirvöld hafa úrskurðað bæjar­stjóra og tvo aðra menn í gæslu­varðhald vegna gruns um að bera ábyrgð á umfangs­miklum skógar­eldi sem geisaði skammt frá Aþenu í síðustu viku. Mennirnir hafa verið ákærðir fyrir íkveikju og skemmdir á opinberum innviðum.

Rann­sakendur telja að eldurinn hafi kviknað 31. júlí þegar neisti myndaðist í rafmagns­línum við vind­orkuver nærri sjávar­þorpinu Agios Vasileios, um 85 kílómetra norð­vestur af Aþenu.

Giannis Apostolou, bæjar­stjóri Stylida, er einn hinna ákærðu. Hann á fyrirtæki sem sérhæfir sig í raflögnum og hefur tengsl við vind­orkuverið. Auk hans sæta verktaki hjá fyrir­tækinu og eigandi vind­orkuversins ákæru. Verði þeir fundnir sekir gætu þeir átt yfir höfði sér meira en tíu ára fangelsi.

Gríska frétta­stofan ANA greindi frá því á föstudag að yfirvöld hefðu ákveðið að stöðva starfsemi vind­orkuversins meðan málið væri rannsakað.

Miklar vind­hviður, sem náðu allt að 130 kílómetra hraða á klukku­stund, urðu til þess að eldurinn breiddist hratt út frá rafmagns­línunni í átt að suður­hlíðum Kithairon-fjalls. Eldurinn náði að bæ í um 40 kílómetra fjarlægð frá Aþenu.

Eigandi vind­orkuversins er meðal annars sakaður um að hafa ekki hreinsað gróður á svæðinu. Eldur hafði áður kviknað við sömu rafmagns­línu 27. júní.

Skógur, kjarr­lendi og ólífu­lundir urðu eldinum að bráð. Þá skemmdust meira en 120 hús og aðrar byggingar í strand­bænum Porto Germeno við Korintuflóa.

Tugir gróður­elda hafa geisað í Grikk­landi frá lokum júlí og hafa að minnsta kosti fimm manns látið lífið, þar á meðal þrír slökkviliðs­menn.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Innlent

Innkalla eitt þekktasta prótín­stykki landsins

Neytendur sem eiga umrædda vöru eru beðnir um að neyta hennar ekki heldur farga henni
Innlent

Þingmenn risu úr sætum til að heiðra sjómennina á Jökli

Innlent

Tvær konur höfðu betur gegn fyrr­verandi vinnu­veitanda

Innlent

Gleymdi klukkunni og fékk að finna fyrir tímans tönn

Innlent

Góðkunningi lögreglu tvívegis með vopn á sér í Reykjavík

Heimur

Prestur kom konu til bjargar á flótta undan kalkúnum

Taryn Laprade og presturinn urðu vör við atvikið þegar þau beygðu inn á rangan veg á heimleið eftir blakleik.

Ný UFO-skjöl afhjúpa áform um neðan­jarðar­hvelfingu fyrir „framandi efni“

Bæjar­kötturinn skrópaði á athöfn

Mette hafnar tengslum við hægri­öfgamenn eftir ummæli um „útskiptin miklu“

Ferð fyrr­verandi klám­stjörnu til Sýrlands vakti deilu

Spákona varar við alheims­rafmagns­leysi í lok árs