Tónlistarmaðurinn bráðefnilegi, Kári Egilsson, er á fullu í tónlistinni og fljótlega heyrum við nýtt lag frá honum:
„17. maí kemur út glænýtt lag sem heitir In The Morning og er fyrsta lagið af væntanlegri plötu,“ segir Kári og bætti þessu við:

„Ég er mjög ánægður með þetta lag, skemmtilegt og sumarlegt og það hjálpar laginu að komast inn á spilunarlista, sem þarf víst að huga að í nútímanum,“ sagði Kári og nú er bara að bíða með tilhlökkun þangað til lagið In The Morning kemur út frá þessum flotta tónlistarmanni, Kára Egilssyni.
Veistu meira? Láttu okkur vita
Það tókst ekki að sækja formið. Reyndu aftur eftir augnablik.
































Athugasemdir