Glúmur Baldvinsson
„Þetta verða löng málaferli“
Glúmur Baldvinsson
Fólk

Eitt eft­ir­minn­an­leg­asta hús lands­ins sett á sölu

Menning

Ris og fall Krumma

Innlent

Móðir á Íslandi í laga­legri sjálf­heldu vegna föður sem eng­inn finnur

Pólitík

Inga Sæland hjólar í borg­ar­stjórn

Innlent

Kóka­ín­farm­ur­inn komst ekki lengra en til Kefla­víkur

Heimur

„Ég var ekki full­klæddur og fólk úti gat horft beint inn um svefn­her­berg­is­glugg­ann minn!“

Fólk

Fjórar ástæður fyrir því að þú færð auð­veld­lega mar­bletti

Heimur

Einka­dóttir leikkon­unnar Lisu Maxwell látin, 27 ára að aldri

Heimur

Dán­ar­or­sök leik­ar­ans Anthony Clark komin fram

Innlent

Fluttur ælandi með sjúkra­bíl

Vill breyta fyrirkomulagi á ákæruvaldi Alþingis: „Breyting á því myndi leysa mörg þau álitamál“

Katrín Jakobsdóttir.
Katrín Jak­obs­dóttir. Mynd: Instagram.

Katrín Jak­obs­dóttir vill ekki að Alþingi sjálft fari með ákæru­vald þegar kemur að ráð­herra­á­byrgð.

Á dög­unum var Katrín Jak­obs­dóttir, fyrr­ver­andi for­sæt­is­ráð­herra og nú for­seta­fram­bjóð­andi, í við­tali í Íslandi í dag á Stöð 2, að hún sæi eftir fram­göngu sinni í Lands­dóms­mál­inu svo­kall­aða, en hún kaus með því að Geir H. Haarde, þáver­andi for­sæt­is­ráð­herra yrði sóttur til saka í Lands­dómi fyrir afglöp í starfi. „Ég get alveg sagt þér það að ég myndi aldrei gera þetta svona aftur,“ sagði Katrín meðal ann­ars í við­tal­inu.

Helga Vala Helga­dóttir, fyrr­ver­andi þing­maður Sam­fylk­ing­ar­innar og lög­maður, skrif­aði færslu á Facebook þar sem hún sagði eft­ir­far­andi spurn­ingar hafa vantað í við­tal­inu:

1. Ef fyrir liggur skýrsla rann­sókn­ar­nefndar Alþingis og skýrsla nefndar sem fjall­aði um málið sem komst að þeirri nið­ur­stöðu að lög hefðu verið brotin af til­teknum ráð­herra – telur þú að nið­ur­staða þess­ara nefnda hafi verið efn­is­lega röng? Ef já, að hvaða leyti?

2. Er þing­mönnum stætt á að láta per­sónu­leg tengsl við ráð­herr­ann ráða því hvort horft sé til nið­ur­stöðu rann­sókn­ar­nefndar þegar greidd eru atkvæði?3. Ef þú sérð eftir að hafa greitt atkvæði með ákærunni, er það af því að þú telur ráð­herra aldrei eiga að sæta öðru en svo­kall­aðri póli­tískri ábyrgð í kosn­ingum?4. Hefur þú á þeim rúmu tíu árum sem liðin eru lagt fram frum­varp til að afnema þá laga­á­byrgð sem finna má í gild­andi lögum um ráð­herra­á­byrgð?5. Sam­bæri­leg lög gilda í Danmörku og eru að auki brúkuð þegar þurfa þykir. Þá sækjum við fjöl­margar aðrar fyr­ir­myndir þangað. Á annað að gilda um ráð­herra og ábyrgð þeirra?

Mannlíf sendi spurn­ing­arnar á Katrínu þann 2. maí og fékk svörin rétt í þessu.

„Öll verk mín frá tíma mínum í stjórn­málum eru skrá­sett og liggja fyrir, þar á meðal þau atriði sem fyr­ir­spurnin bein­ist að. Ráð­herrar þurfa að sæta ábyrgð en ég hef talið að það fyr­ir­komu­lag að Alþingi sjálft fari með ákæru­vald vegna ætl­aðra emb­ætt­is­brota ráð­herra sé ekki gott. Breyting á því fyr­ir­komu­lagi myndi leysa mörg þau álita­mál sem reifuð eru í fyr­ir­spurn þinni.“ Þannig hljóðar svar Katrínar en hún seg­ist enn fremur hafa lagt fram til­lögu til breyt­inga á stjórn­ar­skrá fyrir nokkrum árum:

„Ég hef því sagt að ég myndi ekki vilja end­ur­taka ferlið með sama hætti og gert var og þess vegna lagði ég fram til­lögu til breyt­inga á stjórn­ar­skrá vet­ur­inn 2020-2021. Þá liggja fyrir drög að frum­vörpum sem ég lét vinna í tengslum við stjórn­ar­skár um breyt­ingar á lögum um ráð­herra­á­byrgð og lands­dóm, óháð breyt­ingum á stjórn­ar­skrá.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

1
Minning

Lárus Heið­ars­son lát­inn

Lárus Heið­ars­son, skóg­ar­bóndi og fyrr­ver­andi odd­viti Fljóts­dals­hrepps, var bor­inn til grafar á föstu­dag. Hann lést 28. októ­ber síð­ast­lið­inn eftir skamma en erf­iða bar­áttu við bráða­hvít­blæði. Aust­ur­frétt greindi frá and­lát­inu. Lárus gegndi fjöl­mörgum trún­að­ar­störfum fyrir Fljóts­dals­hrepp og sat í sveit­ar­stjórn frá árinu 2010, fyrst sem vara­odd­viti og síðar odd­viti. Hann kom einnig að mótun Svæð­is­skipu­lags Aust­ur­lands og var í stjórn Sambands...

Mest lesið í vikunni

Heimur

Sam­göngu­yf­ir­völd rann­saka hesta­ferð í stræt­is­vagni

Hestarnir fóru inn um fremri dyr vagnsins og út um þær aftari
Heimur

Hundruð reyndu að færa fræga lista­verkið til að bjarga manni

Minning

Guðjón Þórð­ar­son er fall­inn frá

Innlent

Hljóð­upp­tökur komu verk­stæði í Garðabæ í koll

Innlent

„Mig bara langar ekki í saur­gerla­bað“

Innlent

Innlent

Kom með ólög­legan grænan varn­ing í far­angrinum

Fíkniefnin vógu 11.720 grömm og voru ætluð til söludreifingar
Innlent

Gunnar Smári segir frá sárs­auka­fullum dögum og svefn­lausum nóttum

Innlent

Morg­un­blaðið aftur gagn­rýnt fyrir mynda­notkun við frétt

Innlent

Trufl­anir hjá Microsoft hafa áhrif á starf­semi MAST

Innlent

Nýtt trú­fé­lag skráð á Íslandi

Innlent

Reykja­vík breytt­ist í risa­stórt bíla­stæði