Glúmur Baldvinsson
„Þetta verða löng málaferli“
Glúmur Baldvinsson
Menning

Ris og fall Krumma

Fólk

Flug­freyja afhjúpar 15 hluti sem þú ættir aldrei að taka með í flug

Innlent

Hljóð­upp­tökur komu verk­stæði í Garðabæ í koll

Innlent

„Mig bara langar ekki í saur­gerla­bað“

Fólk

Selja fal­legt fjöl­skyldu­hreiður með heitum potti og stórum garði

Heimur

Hundruð reyndu að færa fræga lista­verkið til að bjarga manni

Heimur

Sam­göngu­yf­ir­völd rann­saka hesta­ferð í stræt­is­vagni

Fólk

Átta algeng mis­tök sem gælu­dýra­eig­endur gera

Heimur

Kenn­ingar uppi um að geim­skip hafi stöðvað flug­um­ferð í Banda­ríkj­unum

Innlent

Ísland sett í frystikist­una næstu daga

Gunnar Smári sakar Karl um loddaraskap

„Hann leggur per­sónu­lega fæð á mig,“ segir rit­stjóri Sam­stöðv­ar­innar um fyrr­ver­andi starfs­mann.

Gunnar Smári Egilsson
Gunnar Smári Egilsson Sakar Karl Héðinn um lodd­ara­skap Mynd: Sósíalistaflokkurinn

Gunnar Smári Egilsson, rit­stjóri Sam­stöðv­ar­innar og for­maður fram­kvæmda­stjórnar Sós­í­alista­flokks Íslands, segir að fyrr­ver­andi starfs­maður stöðv­ar­innar og flokks­ins, leggi fæð á hann.

Starfs­mað­ur­inn, Karl Héðinn Krist­jáns­son, sagði sig úr kosn­inga­stjórn flokks­ins og sak­aði Gunnar Smára um and­legt ofbeldi, launa­þjófnað og ofríki.

Gunnar Smári Egilsson svar­aði fyr­ir­spurn Mannlífs með því að saka Karl Héðin um „lodd­ara­skap“, en sjálfur hafði Gunnar Smári sakað Karl um vald­sækni með því að hafa sem for­seti ungra sós­í­alista reynt að hækka ald­urs­tak­mark í ung­liða­hreyf­ing­una úr 30 árum í 35 ár, til að tryggja sér áfram­hald­andi valda­setu.

„Karl studdi til­lög­una sem ég nefndi á fund­inum, að ald­urs­tak­mark yrði hækkað svo hann gæti verið áfram „for­seti“ Roða. Ég tók þetta sem dæmi um vald­sækni, álíka og ef ég reyndi að fá átta ára hámarks­setu for­manns Fram­kvæmda­stjórnar breytt,“ segir Gunnar Smári. „Nú segir hann mig hafa logið að hann hafi breytt þess­ari reglu. En segir um leið að hann hafi breytt regl­unni með atkvæði sínu og þátt­töku á fund­inum. Þetta er í takt við aðrar ásak­anir frá Karli. Ef fólk les í orð Karls sést fljótt að fátt gengur í raun upp af því sem hann segir. Hann leggur per­sónu­lega fæð á mig, virð­ist kenna mér um að hans til­lögur hafi ekki allar náð fram í flokks­starf­inu og hans frami ekki orðið nægur. Flokk­ur­inn hefur tekið sínar ákvarð­anir á lýð­ræð­is­legan máta eftir miklar umræður þar sem Karl hefur haft öll tæki­færi til að koma sínum sjón­ar­miðum fram og nýtt þau óspart. Nú brýst óánægja hans með að hans hug­myndir hafi ekki fengið braut­ar­gengi fram í árásum hans og vina hans á mig en bein­ast þó fyrst og fremst á Sós­í­alista­flokk­inn, sem Karl lýsir sem ein­hvers konar óreiðu­kenndu rugli. Það er skrítin lýs­ing á flokki sem hefur náð miklum árangri og haft mikil áhrif í sam­fé­lag­inu. Karl vill með þessu hátta­lagi að fólk velji sig til sér­stakrar for­ystu­starfa, að allar stjórnir flokks­ins verði sam­ein­aðar í eina sem hann ætlar sér lík­lega að leiða. Flokks­menn munu auð­vitað skoða þessa til­lögu hans, en ég trúi því að þeir sjái í gegnum þennan lodd­ara­skap.“

Nánar er fjallað um átökin í Sós­í­alista­flokki Íslands hér:

Hvað kom fyrir hjá Sós­í­alistum?

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

Innlent

Ökumenn í vímu og slags­mál í mið­bænum

Gangandi vegfarandi varð fyrir bíl en slapp með minniháttar meiðsli
Skoðun
Brynjar Birgisson

Það er ekki nægur mennta­hroki á Íslandi

Brynjar Birgisson
Heimur

Ók á hóp fólks og varð tveimur að bana en sleppur við ákæru

Heimur

Fimmtán ára drengur frá Palest­ínu laus úr fang­elsi í Ísrael

Innlent

Halldóra hæf­ari en Björn og Sigríður Elsa

Pólitík

Pólitík

Inga Sæland hjólar í borg­ar­stjórn

„Hrein og klár mannvonska og borgarstjórn til ævarandi skammar“
  • Pólitík

    „Ef það má bjóða ein­hverjum bit­urð og kven­fyr­ir­litn­ingu, endi­lega lesið Moggann í dag“

  • Pólitík

    Segir fyr­ir­spurnir Guðlaugs Þórs eðli­legar en hafnar sam­an­burð­inum við Pírata

  • Pólitík

    Jódís segir Sverri snúa út úr orðum sínum

  • Pólitík

    Daði Már segir svar um fundi án for­stjóra hafa verið óná­kvæmt

  • Pólitík

    Vill stofna sann­girn­is­bóta­sjóð vegna illrar með­ferðar á börnum í vistun