Fara í efni
Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir
„Fer svo heim að taka upp podcast þar sem hann titlar sig Ritstjórann“
Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir
Heimur

Kærastan fann dagbækurnar og sleit sambandinu við David Walliams

Fólk

„Ég er orðinn leiður á að vera veikur“

Fólk

Björgvin Franz fagnar eins árs sambands­afmæli með kærustunni

Innlent

Grun­semdir vöknuðu þegar sonurinn sagðist fá fría ferð til Taílands

Heimur

Prestur rifjar upp óþægilega reynslu úr æsku

Fólk

Fjórum árum eftir að heilinn hótaði uppsögn á Karl Ágúst tvö verk á sviði

Pólitík

Stefán Einar svarar Þorgerði með orðum Heiðu Kristínar

Heimur

Hin sænska Karin hvarf áður en hún átti að sækja börnin sín

Heimur

Lögregla fjarlægði mótmælanda eftir að hafa ruglast á áletrun á bol hans

Heimur

Kynþokka­fyllsti maður heims afskrifar 200 milljónir dala í læknis­skuldum

Ingibjörg og Esther tilnefndar til Blaðamannaverðlauna

Ingibjörg var tilnefnd fyrir viðtal þar sem Halla Tómasdóttir greinir frá kynferðis­ofbeldi sem hefur markað líf hennar.

Ingibjörg og Esther
Ingi­björg og Esther Hæfi­leik­a­ríkir blaða­menn þarna á ferð­inni Mynd: Samsett

Ingibjörg Dögg Kjartans­dóttir, ritstjóri Heimildarinnar, og Esther Jóns­dóttir, blaða­maður Heimildarinnar, hafa verið tilnefndar til Blaðamanna­verðlauna Íslands. Ingibjörg er tilnefnd í flokki viðtals ársins en Esther í flokki umfjöllunar ársins.

Tilnefning Ingibjargar byggir á viðtali sem hún tók við Höllu Tómasdóttur, forseta Íslands. Í umsögn nefndarinnar kemur fram að Ingibjörg hafi fylgt forsetanum í lífi og starfi í nokkra daga, sem veiti lesendum nýja og áhuga­verða innsýn í forsetann og manneskjuna á bak við embættið.

Esther hins vegar hlýtur tilnefningu fyrir lifandi og fræðandi umfjöllun um ferð sína með hópi vísinda­manna á einn af allra afskekktustu stöðum landsins, Esjufjöll í Vatna­jökli, eins og fram kemur í rökstuðningi nefndarinnar.

Viðtal ársins 2025

Ingibjörg Dögg Kjartansdóttir, Heimildin

Fyrir viðtal við Höllu Tómasdóttur, forseta Íslands. Ingibjörg Dögg fylgir Höllu í lífi og starfi um nokkurra daga skeið og gefur það lesandanum nýja og áhuga­verða sýn á forsetann Höllu og konuna á bak við embættið. Halla greinir frá sársauka­fullri reynslu í barnæsku og kynferðis­ofbeldi sem hefur markað líf hennar. Í viðtalinu felast mikilvæg skilaboð frá Höllu til þolenda um að kynferðis­ofbeldi þurfi ekki að skilgreina þá um ókomna tíð.
Hlekkur á viðtal Ingibjargar við Höllu

Jakob Bjarnar Grétarsson, Sýn

Fyrir viðtal á Vísir.is við Friðrik Ólafsson, stór­meistara í skák, í tilefni 90 ára afmælis hans. Jakob ávinnur sér traust þessa hlédræga og hógværa manns og úr verður skemmtilegt og fróðlegt viðtal þar sem Friðrik rekur lífshlaup sitt, viðurkennir að hafa verið undrabarn í skák, segir frá sambandi sínu við Bobby Fischer og ræðir breytingar sem hafa orðið á skák­íþróttinni. Viðtalið er fallegur og fróðlegur minnis­varði um glæstan feril þessa merka skákmanns.
Hlekkur á viðtal Jakobs við Friðrik

Sunna Sæmundsdóttir, Sýn

Fyrir viðtal í Kompás við Birgi Karl Óskarsson og Iðunni Eiríks­dóttur, foreldra Bryndísar Klöru sem lést eftir stungu­árás á menningar­nótt 2024. Birgir og Iðunn deila sögu sinni og harmi á erfiðustu stundu lífs síns. Þau draga ekkert undan í frásögn af atburðum hinnar örlaga­ríku nætur en á sama tíma veita þau þjóðinni innsýn í fallegt lífshlaup Bryndísar Klöru. Viðtalið er áhrifa­mikið og stuðlaði að umræðum og aðgerðum sem beinast að því að vinna að öryggi og velferð ungmenna.
Hlekkur á viðtal Sunnu við foreldra Bryndísar Klöru

Umfjöllun ársins 2025

Esther Jónsdóttir, Heimildin

Fyrir lifandi og afar fræðandi umfjöllun um ferð hennar með hópi vísinda­manna á einn afskekktasta stað landsins, Esjufjöll í Vatna­jökli. Esther tekst einstak­lega vel að hrífa lesendur með sér, veita innsýn og vekja áhuga á vísinda­legum uppgötvunum og sérhæfðum smáatriðum um gróðurfar og áhrif loftslags­breytinga á samspil jökla og náttúru.
Hlekkur á umfjöllun Estherar

Kristín Sigurðardóttir og Ingvar Haukur Guðmundsson, RÚV

Fyrir vandaða og yfirgrips­mikla umfjöllun í Kveik um afleiðingar alvarlegrar e.coli matar­sýkingar sem upp kom í leik­skólanum Mánagarði í Reykjavík. Kristín fylgir málinu eftir af festu, varpar nýju ljósi á bæði ástæður og afleiðingar smitsins, talar við fjölda fólks, spyr óvæginna spurninga og sýnir áður óbirt myndbönd og ljós­myndir. Umfjöllunin er skýr, vel fram sett og nýtir kosti mynd­miðilsins vel.
Hlekkur á umfjöllun Kristínar og Ingvars

Kristján Guðjónsson og Lóa Björk Björnsdóttir, RÚV

Fyrir hlaðvarps­þáttaröðina í Kísildal sem fjallar um uppruna þeirra hugmynda­fræðilegu sviptinga sem nú eiga sér stað í Banda­ríkjunum. Þættirnir eru fræðandi og afhjúpandi og ljóst að þátta­stjórnendur hafa lagt í mikla heimilda­vinnu. Þetta marg­slungna og flókna umfjöllunar­efni er sett fram í lifandi samtals­formi sem gerir efnið aðgengilegt og spennandi.
Hlekkur á hlaðvarps­þætti Kristjáns og Lóu

Rannsóknarblaðamennska ársins 2025

Freyr Gígja Gunnarsson og Helgi Seljan, RÚV

Fyrir umfjöllun í Speglinum um umfangs­mikil viðskipti embættis ríkis­lögreglu­stjóra við ráðgjafa­fyrirtæki sem vann  afar fjöl­breytileg verkefni fyrir embættið og fékk háar upphæðir greiddar. Með mikilli upplýsinga­öflun var dregin upp skýr mynd af málinu. Umfjöllunin varpaði ljósi á  meðferð á opinberu fé hjá stórri ríkis­stofnun og leiddi til atburða­rásar sem endaði með því að ríkis­lögreglu­stjóri hætti störfum.

Gunnar Gunnarsson og Viðar Guðjónsson, Austurglugginn og Morgunblaðið

Fyrir umfjöllun um stöðu geðheil­brigðis­mála sem unnin var í samstarfi  Morgun­blaðsins og  Austur­gluggans og birtist á báðum. Upplýst var að maður sem banaði hjónum í Neskaupstað árið 2024 átti að vera í gæslu. Umfjöllunin beindi kast­ljósinu að stöðu geðheil­brigðis­þjónustu á lands­byggðinni og leiddi til þess að yfirvöld ákváðu að fjölga úrræðum fyrir einstaklinga sem hvorki áttu heima í fangelsi né á hefð­bundinni geðmeðferðarstofnun.

Helgi Seljan og Árni Þór Theodórsson, RÚV

Fyrir umfjöllun í Kveik um umfangs­miklar njósna­aðgerðir sem stóðu yfir vikum saman haustið 2012 að undirlagi Björgólfs Thors Björgólfs­sonar. Afhjúpað var hvernig fylgst var með fólki sem hugðist leita réttar síns gagnvart Björgólfi, það hlerað og elt af fyrr­verandi og þáverandi lögreglu­mönnum. Umfjöllunin leiddi til athugunar eftirlits­nefndar um störf lögreglu, persónu­verndar, dómsmála­ráðherra og stjórn­skipunar- og eftirlits­nefndar á verklagi lögreglu.

Blaðamannaverðlaun ársins 2025

Kjartan Kjartansson, Sýn

Fyrir frétta­skýringar um lofts­lagsmál á Vísir.is. Flókin umfjöllunar­efni skýrð á mannamáli án þess að afsláttur sé gefinn af fagmennsku. Kjartan hefur sýnt elju við öflun gagna og fylgt málum vel eftir. Hann afhjúpaði misskilning stjórn­valda á losunar­markmiði Íslands í samstarfi við Evrópu­sambandið sem varð til þess að íslensk stjórn­völd  þurftu að endur­skoða markmið sín vegna Parísar­samningsins.

Sólrún Lilja Ragnarsdóttir, Morgunblaðið

Fyrir ítarlega umfjöllun á mbl.is um neyðar­ástand í málefnum barna í viðkvæmri stöðu. Sólrún Lilja hefur sýnt einstaka þraut­seigju við að vekja athygli á þessum vanda með ítrekuðum afhjúpunum, viða­mikilli umfjöllun og eftir­fylgni með málum. Hún hefur krafið stjórn­völd svara og þannig stuðlað að löngu tímabærum breytingum í þessum viðkvæma mála­flokki. Nokkrar greinar úr umfjöllun Sólrúnar Lilju: Börnin sem kerfið brást - Svona smygla börnin inn fíkni­efnum - Það er galið að barnið mitt sé dáið

Þóra Tómasdóttir, RÚV

Fyrir frétta­skýringar í þættinum Þetta helst. Þóra er næm á frétta­efni sem öðrum sést yfir og beitir ríkulegri frásagnar­gáfu við fram­setningu þess. Dæmi um þetta er saga írska fiðlu­leikarans  Sean Bradley sem hvarf sporlaust frá Íslandi,  hálf­íslensku drag­drottningarinnar Heklínu sem fannst látin við dular­fullar aðstæður í Lundúnum, Sofiu Kolesnikovu sem fannst látin á Selfossi og unglings­stúlku sem varð fyrir barðinu á ofbeldis­hópnum 764.

Fyrirvari um hagsmuni: Sameinaða útgáfu­félagið ehf. á bæði Heimildina og Mannlíf

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Heimur

Ný UFO-skjöl afhjúpa áform um neðan­jarðar­hvelfingu fyrir „framandi efni“

Gögnin eru hluti af 43 skjölum sem voru birt nýlega. Þar er einnig fjallað um óútskýrðar ratsjármælingar frá árinu 2023.
Menning

Tvenns konar bað í boði og aðeins annað þeirra er blautt

Pólitík

Kristrún segir hallalaus fjárlög sleggjuna sem þurfi til að ná vöxtum niður

Heimur

Samsæris­kenningar spretta upp eftir undarlegt augnablik á blaðamanna­fundi

Innlent

Sendi saksóknara falsað læknis­vottorð og hlaut ársfangelsi

Innlent

Innkalla vinsælt jólasmáköku­deig vegna aðskotahluts

Neytendur eru beðnir um að farga vörunni eða skila henni.

Kökuboð á Patreks­firði endaði fyrir dómi

Hrafn­hljóð flýgur inn á manna­nafnaskrá

Sverrir spyr hvað heilli karla við ofbeldið í Grand Theft Auto

Sakar ríkis­stjórnina um að gera lítið úr vinnu láglauna­fólks og foreldra