Fara í efni
Grímur Grímsson
„Afleiðingar ofbeldis og hótana um slíkt eru þær að óöryggi eykst"
Grímur Grímsson
Innlent

Stór nöfn vilja upp á RÚV

Frétt

Allir skip­verjarnir hífðir upp úr sjónum

Fólk

Rán Flygenring opnar sig um krabbameins­greiningu

Fólk

Selja risa einbýli á spottprís

Fólk

Sex hlutir sem sérfræðingar mæla með að þrífa fyrir jóla­hátíðina

Frétt

Kapp­sigling til hjálpar skip­verjum

Pólitík

Öll teppi voru búin á bráða­móttökunni á Akureyri

Fólk

Fimm svefn­herbergi og bílaplan fyrir ættar­mótið

Heimur

Tveir menn hafa látist við íbúðar­skoðun í sama turni á sex árum

Innlent

Fangi kvartaði eftir að sambýlis­konu hans var bannað að heimsækja hann

Sex handteknir þegar mótmæli gegn hælisleitendum fóru úr böndunum

Um 200 manns höfðu safnast saman

Bretlandsströnd
Bret­lands­strönd Myndin teng­ist frétt­inni ekki beint. Mynd: Bresk stjórnvöld

Sex mótmælendur voru hand­teknir í bænum Gosport í suður­hluta Englands í gær eftir að mótmæli gegn komu hælis­leitenda urðu fjandsamleg í garð lögreglu. Um 200 manns höfðu safnast saman í bænum í þeirri trú að bátur með hælis­leitendum væri á leið þangað.

Samkvæmt breskum fjöl­miðlum voru nokkrir mótmælenda svart­klæddir og með andlit sín hulin. Lögregla segir að sex hafi verið hand­teknir eftir að hópurinn varð fjandsamlegur í garð lögreglu­manna á vettvangi.

Mótmælendur höfðu komið saman vegna báts sem flutti 51 farþega yfir Ermarsund frá Frakk­landi. Báturinn kom hins vegar ekki að landi í Gosport heldur í Dover, mun austar á suður­strönd Englands.

Ferðin yfir sundið tók óvenju­langan tíma. Samkvæmt frönskum yfir­völdum höfðu farþegarnir verið meira en 33 klukku­stundir á sjó við erfiðar og hættulegar aðstæður en breska sjálfboða­liða­strand­gæslan sagði ferðina hafa tekið um 36 klukku­stundir.

Frönsk yfirvöld sögðu bátinn illa hæfan til siglingarinnar. Fólkið um borð hefði hins vegar hafnað aðstoð þar sem það væri staðráðið í að komast til Bretlands þrátt fyrir áhættuna.

Aukin gæsla franskra og breskra yfirvalda hefur orðið til þess að fólk sem reynir að komast yfir Ermarsund hefur leitað nýrra leiða. Meðal annars hefur orðið vart við stærri báta og tilraunir til að leggja af stað vestar á frönsku ströndinni, þar sem eftirlit er minna.

Fyrr í september komu hundruð mótmælenda saman í Portsmouth í Hampshire og reyndu að koma í veg fyrir að hælis­leitendur, sem komið höfðu yfir Ermarsund á smábátum, kæmust áfram. Yfirvöld óttast að Hampshire, þar sem slíkar komur hafa hingað til verið sjaldgæfar, geti orðið nýr áfanga­staður.

Flestir bátanna hafa hingað til komið að landi í Kent, þar sem vega­lengdin milli Frakk­lands og Bretlands er styttri.

Samkvæmt gögnum breska innan­ríkis­ráðuneytisins höfðu 17.480 manns komið til Bretlands á smábátum yfir Ermarsund frá áramótum fram á sunnudag. Yfirvöld hafa jafnframt orðið vör við að fleiri farþegar séu að jafnaði um borð í hverjum báti.

Komum yfir Ermarsund fækkaði þó verulega í ágúst. Breska innan­ríkis­ráðuneytið sagði í byrjun september að fjöldi slíkra ferða hefði þá verið sá lægsti í ágúst­mánuði frá því skráningar hófust árið 2018. Flestir sem flytja til Bretlands koma þó til landsins eftir löglegum leiðum, samkvæmt opinberum gögnum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Innlent

Innkalla eitt þekktasta prótín­stykki landsins

Neytendur sem eiga umrædda vöru eru beðnir um að neyta hennar ekki heldur farga henni
Innlent

Þingmenn risu úr sætum til að heiðra sjómennina á Jökli

Innlent

Tvær konur höfðu betur gegn fyrr­verandi vinnu­veitanda

Innlent

Gleymdi klukkunni og fékk að finna fyrir tímans tönn

Innlent

Góðkunningi lögreglu tvívegis með vopn á sér í Reykjavík

Heimur

Prestur kom konu til bjargar á flótta undan kalkúnum

Taryn Laprade og presturinn urðu vör við atvikið þegar þau beygðu inn á rangan veg á heimleið eftir blakleik.

Ný UFO-skjöl afhjúpa áform um neðan­jarðar­hvelfingu fyrir „framandi efni“

Bæjar­kötturinn skrópaði á athöfn

Mette hafnar tengslum við hægri­öfgamenn eftir ummæli um „útskiptin miklu“

Ferð fyrr­verandi klám­stjörnu til Sýrlands vakti deilu

Spákona varar við alheims­rafmagns­leysi í lok árs