Fara í efni
Grímur Grímsson
„Afleiðingar ofbeldis og hótana um slíkt eru þær að óöryggi eykst"
Grímur Grímsson
Innlent

Stór nöfn vilja upp á RÚV

Frétt

Allir skip­verjarnir hífðir upp úr sjónum

Fólk

Rán Flygenring opnar sig um krabbameins­greiningu

Fólk

Selja risa einbýli á spottprís

Fólk

Sex hlutir sem sérfræðingar mæla með að þrífa fyrir jóla­hátíðina

Innlent

Innkalla eitt þekktasta prótín­stykki landsins

Frétt

Kapp­sigling til hjálpar skip­verjum

Pólitík

Öll teppi voru búin á bráða­móttökunni á Akureyri

Fólk

Fimm svefn­herbergi og bílaplan fyrir ættar­mótið

Heimur

Tveir menn hafa látist við íbúðar­skoðun í sama turni á sex árum

Telur þingmenn Miðflokksins ýta undir hatur

„Þarna er verið að endurtaka í rauninni allan þann vonda áróður sem ég kynntist fyrir áratugum síðan“

Bergþór Ólason
Bergþór Ólason Er einn af þing­mönnum Mið­flokks­ins Mynd: Víkingur

Þorvaldur Kristinsson, rithöfundur og fyrr­verandi formaður Samtak­anna '78, segir orðræðu sem nú beinist gegn trans fólki á Íslandi minna mjög á þá fordóma sem samkyn­hneigt fólk varð fyrir á níunda áratug síðustu aldar.

Þorvaldur, sem tók virkan þátt í réttinda­baráttu hinsegin fólks á fyrstu árum hennar hér á landi, ræðir málið í þættinum Meiningu í umsjón Önnu Gyðu Sigur­gísladóttur.

Í þættinum eru meðal annars leikin brot úr útvarps­þætti frá árinu 1983 þar sem hlustendur hringdu inn og lýstu skoðunum sínum á samkyn­hneigðu fólki. Þorvaldur segir margt í umræðunni í dag minna sig á orðræðu þess tíma.

„Þarna er verið að endurtaka í rauninni allan þann vonda áróður sem ég kynntist fyrir áratugum síðan. Það er sama orðræðan, sömu viðbrögð. Þetta ótta­blandna hatur við það sem við ekki þekkjum,“ segir Þorvaldur.

Hann segir þó mikil­vægan mun vera á stöðunni nú og þá. Trans fólk eigi fjölmarga samherja, bæði innan hinsegin samfélagsins og meðal gagn­kynhneigðra.

Þorvaldur telur bakslagið tíma­bundið en segist hafa áhyggjur af því að orðræðan hafi ratað inn á Alþingi. Hann gagnrýnir sérstak­lega þingmenn Miðflokksins og sakar þá um að ýta undir grun­semdir og neikvæða orðræðu í garð trans fólks.

Hann rifjar jafnframt upp umræðuna þegar lög um staðfesta samvist voru samþykkt árið 1996. Þá hafi sambærileg orðræða beinst gegn samkyn­hneigðum og meðal annars verið tengd barna­giftingum og pedófílíu.

„Það sem er sárast er að horfa upp á það hatur, þann fjandskap og þá heimsku sem beinist að trans fólki á Íslandi,“ segir Þorvaldur.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Innlent

Börnin geta faðmað pabba sinn á ný

Eftir sjóslysið lýsir Patrícia Mikulová þakklæti fyrir björgun sambýlismanns síns en segir hug sinn jafnframt hjá þeim sem misstu ástvin.
Innlent

Blaða­maður fær ekki gögn um fund Tony Blair með sendi­herra Íslands

Heimur

Missti heims­metið í eyrnalengd en vann nýtt með halanum

Innlent

Þingmenn risu úr sætum til að heiðra sjómennina á Jökli

Innlent

Tvær konur höfðu betur gegn fyrr­verandi vinnu­veitanda

Innlent

Gleymdi klukkunni og fékk að finna fyrir tímans tönn

Konan segir synjunina tefja nám sitt um að minnsta kosti ár.

Fréttir af Jökli minntu Sigurð á biðina við símann á jóladag

Góðkunningi lögreglu tvívegis með vopn á sér í Reykjavík

Mosfellingur fékk ársfangelsi fyrir ítrekuð brot eftir flótta

Útgerð Jökuls heitir skip­verjum og aðstand­endum stuðningi

Rauði krossinn veitir sálrænan stuðning