Fara í efni
Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir
„Fer svo heim að taka upp podcast þar sem hann titlar sig Ritstjórann“
Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir
Heimur

Kærastan fann dagbækurnar og sleit sambandinu við David Walliams

Fólk

„Ég er orðinn leiður á að vera veikur“

Fólk

Björgvin Franz fagnar eins árs sambands­afmæli með kærustunni

Innlent

Grun­semdir vöknuðu þegar sonurinn sagðist fá fría ferð til Taílands

Heimur

Prestur rifjar upp óþægilega reynslu úr æsku

Fólk

Fjórum árum eftir að heilinn hótaði uppsögn á Karl Ágúst tvö verk á sviði

Pólitík

Stefán Einar svarar Þorgerði með orðum Heiðu Kristínar

Heimur

Hin sænska Karin hvarf áður en hún átti að sækja börnin sín

Heimur

Lögregla fjarlægði mótmælanda eftir að hafa ruglast á áletrun á bol hans

Heimur

Kynþokka­fyllsti maður heims afskrifar 200 milljónir dala í læknis­skuldum

Ragnheiður tekur foreldra á Íslandi á beinið

„Þjóðirnar í kringum okkur eiga ekki við þetta vandamál að stríða.“

Barn í skóla
Barn í skóla Myndin teng­ist frétt­inni ekki beint. Mynd: Stjórnarráðið/Hari

Ragn­heiður Stephensen grunn­skóla­kennari segir að sífellt stærri hópur foreldra taki skóla­göngu barna sinna ekki nægilega alvarlega og að það hafi neikvæð áhrif bæði á náms­árangur og skóla­starf í heild. Þetta kemur fram í pistli, sem birtist á Vísi, sem hún skrifaði þar sem hún gagnrýnir aukna fjarveru nemenda og minnkandi þátttöku foreldra í námi barna sinna.

Í skrifum sínum bendir Ragn­heiður á að skóla­skylda sé lögbundin af ástæðu og að tíð leyfi frá skóla, hvort sem um sé að ræða lengri ferðalög eða staka daga, hafi bein áhrif á framvindu náms. „Þjóðirnar í kringum okkur eiga ekki við þetta vandamál að stríða. Þar eru börn ekki stans­laust í leyfi frá skóla, hvort sem er í lengri tíma eða í stökum tímum. Það einfald­lega má ekki og þau fá ekki leyfi. Þar er ekki litið á skóla sem eitthvað sem er fyrir í fjölskyldu­lífinu. Þar er skóli hluti af fjölskyldu­lífinu.“

Hún segir að fjarvera nemenda geti einnig haft áhrif á gæði kennslu fyrir þá sem eftir sitja í skóla­stofunni.

Að hennar mati virðist skóla­starf í auknum mæli þurfa að víkja fyrir tómstundum og öðru fjölskyldu­lífi hjá sumum foreldrum. Hún nefnir sérstak­lega að andstaða hafi komið fram við einföld heima­verkefni fyrir yngstu nemendur, sem áður hafi verið talin mikilvæg leið til að efla tengsl foreldra við nám barna sinna.

Hún leggur áherslu á að samvera, samræður og þátttaka foreldra séu lykil­atriði í að byggja upp virðingu barna fyrir námi.

Ragn­heiður telur einnig að íslenskt samfélag sé orðið of upptekið af hraða og þátttöku í fjöl­breyttum verkefnum, á kostnað þess að njóta og fylgja börnum sínum í gegnum skóla­gönguna.

Að lokum hvetur hún foreldra til að nýta þann mikla aðgang sem þeir hafa í dag að upplýsingum um skóla­starf og samskiptum við kennara. Hún segir mikilvægt að foreldrar fylgist með skóla­göngu barna sinna og taki virkan þátt í henni.

„Þegar þú velur að eiga barn þá er skóla­ganga hluti af því og henni þarf að sinna,“ segir Ragn­heiður Stephensen.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Heimur

Ný UFO-skjöl afhjúpa áform um neðan­jarðar­hvelfingu fyrir „framandi efni“

Gögnin eru hluti af 43 skjölum sem voru birt nýlega. Þar er einnig fjallað um óútskýrðar ratsjármælingar frá árinu 2023.
Menning

Tvenns konar bað í boði og aðeins annað þeirra er blautt

Pólitík

Kristrún segir hallalaus fjárlög sleggjuna sem þurfi til að ná vöxtum niður

Heimur

Samsæris­kenningar spretta upp eftir undarlegt augnablik á blaðamanna­fundi

Innlent

Sendi saksóknara falsað læknis­vottorð og hlaut ársfangelsi

Innlent

Innkalla vinsælt jólasmáköku­deig vegna aðskotahluts

Neytendur eru beðnir um að farga vörunni eða skila henni.

Kökuboð á Patreks­firði endaði fyrir dómi

Hrafn­hljóð flýgur inn á manna­nafnaskrá

Sverrir spyr hvað heilli karla við ofbeldið í Grand Theft Auto

Sakar ríkis­stjórnina um að gera lítið úr vinnu láglauna­fólks og foreldra