Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fjölbreytileiki í sveitinni

Fjögur systk­ini reka fyr­ir­tækið Efstadal í upp­sveitum Árnes­sýslu. Þar er til staðar mynd­ar­legt kúa- og naut­gripabú, ísbúð, veit­inga­staður, hótel og hesta­leiga. Býlið hefur verið í eigu sömu ætt­ar­innar í meira en þrjár aldir. Gest­gjaf­inn var þar á ferð í sumar og hitti fyrir systk­inin og kynnti sér þá starf­semi sem þar fer fram.

Fjölbreytileiki í sveitinni

Gott er að koma inn í hlýj­una í Efstadal og nota­legt and­rúms­loft í hlöð­unni sem nú er mót­taka og ísbúð. Á meðan við bíðum eftir Höllu Rós, elstu syst­ur­inni, lítum við í kringum okkur á staðnum. Fólk streymir inn og stendur í röðum eftir ís, svo eru það kýr og kálfar sem fanga athygli okkar en inni í ísbúð­inni er stór gluggi þar sem gestir geta horft inn í fjósið.

Við njótum þess að horfa á og fylgj­ast með þessum kunn­ug­legu skepnum og ekki annað en hægt að dást að þessum stað sem þau systk­ini hafa skapað. Það er ein­stakt að geta séð með berum augum hvaðan rjóm­inn sem er í ísnum kemur, sem keyptur er á sama stað. Hjónin Björg Ingv­ars­dóttir og Snæbjörn Sig­urðs­son hafa búið á jörð­inni Efstadal frá því árið 1991 en nú hafa börnin þeirra fjögur, Halla Rós, Sölvi, Guðrún Karitas og Linda Dögg og makar þeirra (Björgvin Jóhann­es­son, Kristín Ingunn Har­alds­dóttir, Árni Ben­ón­ýs­son og Héðinn Hauksson) tekið við öllum rekstr­inum.

Þau eru fjórða kyn­slóð sinnar fjöl­skyldu sem búið hefur á jörð­inni. Þar hefur fyrst og fremst verið stund­aður búskapur en ýmis­legt hefur bæst við á und­an­förnum árum. Fjöl­skyldan rekur hesta­leigu, veit­inga­stað­inn Hlöðu­loftið, ísbúð­ina Íshlöð­una og svo er það hótel- og ferða­þjón­ustan. Einnig fram­leiðir hún vörur sem eru til sölu á staðnum, þá einna helst nauta­kjöt, feta­ost, skyr, mysu og ís.

Þau vildu nota eins mikið upp­runar­legt og hægt var, eins og veggi úr hlöð­unni og fjár­húsa­grindur.

Næstyngsta systirin, Guðrún Karitas, gengur bros­andi í átt að okkur en hún stendur vakt­ina í mót­tök­unni þennan dag. Við förum upp á aðra hæð, en þar er veit­inga­stað­ur­inn Hlöðu­loftið sem er afar vina­legur og heim­il­is­legur og fag­ur­lega skreyttur með skemmti­legum hlutum úr sveit­inni. Fróð­leikur um fjöl­skyld­una hangir á veggj­unum á mjög svo fal­legum, hring­laga skiltum. Vinaleg umgjörð þar sem gest­kom­andi fær á til­finn­ing­una að vera boð­inn inn í stofu fjöl­skyld­unnar.

Breyttu hlöðunni í veitingastað

Halla Rós kemur hlaup­andi upp stig­ann, sest hjá okkur og segir okkur í stórum dráttum sög­una. „For­eldrar okkar byrj­uðu með hesta­leig­una árið 1994 og árið 2002 var heimagist­ing­unni bætt við, svo var ráð­ist í bygg­ingu á húsi með tíu her­bergjum sem hefur verið í rekstri frá 2005. Þegar hey­skap­ur­inn breytt­ist og hlaðan varð tóm fengu for­eldrar okkar þá hug­mynd að breyta henni í veit­inga­stað. Sölvi bróðir okkar hafði verið mikið með mömmu í eld­hús­inu og er afbragðskokkur svo þau byrj­uðu að byggja þetta upp saman,“ segir Halla Rós.

Þegar hey­skap­ur­inn breytt­ist og hlaðan varð tóm fengu for­eldrar okkar þá hug­mynd að breyta henni í veit­inga­stað.
Sólbjörg Lind, dóttir Höllu, og Brynjar Logi, sonur Sölva, standa vakt­ina í ísbúð­inni.

Hún segir að þau hafi rekið sig á ýmis­legt til að byrja með og fáir hafi lagt leið sína til þeirra í fyrstu. „Það þurfti að bæta við hlöð­una og vinna ýmis verk en árið 2012 var svo haf­ist handa við að breyta hluta hlöð­unnar í ísbúð og veit­inga­stað ásamt því að byggja við­bygg­ingu fyrir ísvinnslu, eld­hús, mót­töku, bar og starfs­manna­að­stöðu og svo hefur þetta bara verið upp á við. For­eldrar okkar stigu til hliðar fyrir um ári síðan og við tókum við öllu saman.

Það var smá­vegis sjokk að taka alla ábyrgð­ina. Bróðir minn og mágur sjá að mestu um búskap­inn og við stelp­urnar berum ábyrgð­ina hér inni. Við erum með frá­bæra fag­menn á veit­inga­staðnum og fullt af góðu fólki í vinnu hjá okkur. Þetta er flókið fyr­ir­tæki að reka en með góðu skipu­lagi gengur það. Hér áður fyrr var aðal­stressið í kringum hey­skap­inn en núna er það meira stress þegar allt í einu kemur stór hópur af ferða­mönnum í mat og allt þarf að ganga upp,“ segir Halla Rós.

Viljum fá fólkið til okkar

Halla er mjög mikil áhuga­mann­eskja um flokkun og seg­ist vera kölluð Rympa á rusla­haug­unum af systk­inum sínum. „Það þarf að vera gríð­ar­lega agaður til að flokka vel en flokkun er fram­tíðin. Ég reyni að forð­ast plast sem er oft mjög erfitt en það fer allt í end­ur­vinnslu. Mér finnst líka mik­il­vægt að minnka mat­ar­sóun með því að nýta mat­inn betur. Við skiptum við fyr­ir­tæki hér í nágrenn­inu og viljum allt það fers­kasta. Við kaupum jarð­ar­ber frá bónd­anum á Silf­ur­túni, blómin fáum við frá Espiflöt, svepp­ina frá Flúða­sveppum, kart­öflur, gul­rætur og rófur frá Graf­ar­bakka og Auðs­holti og allt salat, gúrkur, tómata og paprikur frá Böð­manns­stöðum.

Við tölum við bændur og fáum það sem þeir eiga mikið af og breytum stundum mat­seðl­inum út frá því. Sumt er árs­tíða­bundið og finnst mér að við Íslend­ingar ættum að gera meira af því að borða það sem er ferskast hverju sinni eins og gert er í nágranna­lönd­unum. Við viljum líka að fólk kynn­ist sveit­inni og sjái hvað við erum að gera hér, þannig teng­ist við­skipta­vin­ur­inn vör­unni miklu betur og verður með­vit­aðri um hvað hann setur ofan í sig,“ segir Halla Rós að lokum.

Ég reyni að forð­ast plast sem er oft mjög erfitt en það fer allt í end­ur­vinnslu.

Vel var gert við okkur í Efstadal og við smökk­uðum ýmsa góm­sæta rétti og frá­bæran ís. Við mælum að sjálf­sögðu með ferð í Efstadal sem á svo sann­ar­lega vel við fyrir alla fjöl­skyld­una og þökkum þeim systk­inum kær­lega fyrir gest­risn­ina.

Myndir / Unnur Magna

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Að lokinni fimm vikna þjálfun hafa nemendurnir réttindi til að kafa niður á 30 metra dýpi
Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Peningar

Samkaup semja um kaup á Fjarð­ar­kaupum

Mannlífið

Myndir
Mannlífið

Novasvellið rís á Ing­ólfs­torgi

Jólin nálgast óðfluga
Mannlífið

Opn­un­ar­veisla Bryggju­húss­ins að hefj­ast

Mannlífið

Mæður sem taka sjálfur eiga dætur sem vilja frekar fegr­un­ar­að­gerðir

Mannlífið

Hvers vegna eru börn oft að segja þessa setn­ingu?

Mannlífið

Bæj­ar­há­tíðin Í tún­inu heima stendur með miklum blóma í Mos­fellsbæ

Mannlífið

Bangsa­fé­lagið heldur upp á afmæli með stór­há­tíð og nýrri keppni