Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Fornfræg náttúruparadís, eyjan Vigur – Drottning Vestfjarða skartar sínu fegursta

Þessi ein­staka nátt­úrupara­dís og sögu­fræga eyja skartar sínu feg­ursta allan árs­ins hrings og hefur upp á margt að bjóða. Umhverfið og afþrey­ingin allt í kring laðar að. Það er ótrú­leg upp­lifun að koma í Vigur.

Fornfræg náttúruparadís, eyjan Vigur – Drottning Vestfjarða skartar sínu fegursta

Nálægðin við nátt­úr­una er mjög sterk. Strax þegar gengið er af bryggj­unni blasir við sela­látur þar sem þeir liggja mak­inda­lega og fylgj­ast með mann­líf­inu. Á morgn­ana og svo aftur síð­degis mæta teist­urnar og vappa í kringum húsin og fjöru­borðið. Það er ótrú­lega gaman að fylgj­ast með teist­unni og hún er mjög spök í Vigur þannig að maður kemst í mikið návígi við hana. Síðan verður maður að gæta að hverju fót­máli á vorin því að þarna verpa æða­kollur við göngu­stíga og á milli húsa. Svo er mikið lunda­varp í Vigur.  Sjáv­ar­nið­ur­inn, fugla­hljóðin og að vera innan um þessi forn­frægu hús er ein­stök upp­lifun.

Umhverfið til fyr­ir­myndar og stutt í helstu þétt­býl­iskjarna
Það er öllu haldið ótrú­lega vel við á eyj­unni. Húsin snyrti­leg og allt umhverfið hreint til fyr­ir­myndar. Eyjan er mjög gróin og hefur mikið und­ir­lendi. Eyjan býður upp á marga mögu­leika og hægt að hafa af henni mikil nyt. Svo er hún alveg ein­stak­lega vel stað­sett þegar horft er til helstu þétt­býl­iskjarna Vest­fjarða.

Það er um fimmtán mín­útna sigl­ing til Súða­víkur á hrað­bát og um fjör­tíu mín­útur til Ísa­fjarðar í góðu veðri.

Vikt­or­íu­hús byggt af Sum­ar­liða Sum­ar­liða­syni gull­smið
Eins og fyrr segir er öllu mjög vel við haldið. Húsin eru sum mjög gömul. Þarna er til dæmis Vikt­or­íu­hús sem var byggt af Sum­ar­liða Sum­ar­liða­syni gull­smið í kringum 1860. Búið er að byggja við húsið mjög fal­lega þjón­ustu­mið­stöð þar sem hægt er að hafa full­búið kaffi­hús. Svo er það myllan fræga sem er eina varð­veitta korn­myllan úr timbri á Íslandi. Hún var byggð um 1860. Myllan og Vikt­or­íu­hús eru í eigu Þjóð­minja­safns Íslands.

Þarna er svo helst að nefna íbúð­ar­hús með um tíu svefn­her­bergjum og svo er búið að breyta fjós­inu í átta­tíu sæta veit­inga­sal með full­búnu eld­húsi. Þar er stór og mik­ill pallur fyrir utan og hægt að njóta veit­inga og njóta stór­brot­ins útsýnis. Svo eru fjár­hús, hlaða, verk­stæði og véla­geymsla eins og nauð­syn­legt er í svona rekstri.

Tíu kindur á beit
Mikil gróska hefur verið í land­bún­aði á eyj­unni en hefur farið minnk­andi með árunum. Það var kúabú í Vigur en í dag eru eftir um tíu kindur og þær ætla að vera þarna áfram að eigin sögn. Hins vegar er vel mögu­legt að vera með vet­ur­beit hrossa þarna ef áhugi er fyrir því.

Dúntekja fer fram á Vigur
Fuglalíf er afar fjöl­skrúð­ugt á Vigur og gaman að njóta þessa að horfa á fugl­ana í sínu nátt­úru­lega umhverfi. Fuglalíf er afar fjöl­skrúð­ugt á Vigur og gaman að njóta þessa að horfa á fugl­ana í sínu nátt­úru­lega umhverfi. Það eru yfir 3000 æðar­hreiður í Vigur þar sem dún­tekja fer fram. Æðar­varpið gefur í kringum fimm­tíu til sex­tíu kíló ári af hreins­uðum dún eftir því hvernig árar.

Vigur laðar að ferða­menn og býður upp á nánd við nátt­úr­una
Nándin við nátt­úr­una. Fuglar eru mjög spakir og hægt að kom­ast í návígi við seli. Svo eru það gömlu húsin sem laða að og ekki má gleyma Vigur Breið sem er elsti bátur lands­ins og liggur þarna í fjöru­borð­inu. Hann skríður mjög vel og þegar hann fer á fljúg­andi sigl­ingu klýfur hann svart­fugla í tvennt á milli augn­anna. Eða svo segja elstu menn. Þetta er hreint ótrú­leg upp­lifun. Á eyj­unni er friðland fugla og gömlu húsin eru friðuð. Annars eru engar kvaðir á eyj­unni.

Sjálfbærni og menningin í fyrirrúmi

Fast­eigna­sal­inn Davíð Ólafsson, hjá Borg fast­eigna­sölu, er með þessa eign til sölu.

Það er raf­magns­strengur úr landi sem liggur út í eyju. Allt vatn fæst úr upp­sprettu nálægt bænum. Það eru miklir mögu­leikar í sjálf­bærri og menn­ing­ar­tengdri ferða­mennsku í Vigur, þar væri meðal ann­ars hægt að setja upp setur fræða og lista. Svo má að sjálf­sögðu hefja þarna búskap að nýju eins og gert hefur verið um aldir. . Svo má að sjálf­sögðu hefja þarna búskap að nýju eins og gert hefur verið um aldir. Eyjan er 45 hekt­arar og ræktuð tún um 10 hekt­arar. Húsa­kostur er vel yfir 700 fer­metrar að stærð.

Þessi ein­staka nátt­úruperla er til sölu hjá Borg fast­eigna­sölu og er þetta ein­stakt tæki­færi til að eign­ast eina feg­urstu eyju lands­ins sem öllu því sem henni fylgir. Fast­eigna­sal­inn Davíð Ólafsson, hjá Borg fast­eigna­sölu, er með þessa eign til sölu og gefur allar nán­ari upp­lýs­ingar í síma:  897 1533 eða hægt er að senda fyr­ir­spurnir á net­fangið: [email protected]

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Plönturnar fundust í tveimur gróðurkössum í farangursrýminu
Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Peningar

Samkaup semja um kaup á Fjarð­ar­kaupum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Mannlífið

Myndir
Mannlífið

Novasvellið rís á Ing­ólfs­torgi

Jólin nálgast óðfluga
Mannlífið

Opn­un­ar­veisla Bryggju­húss­ins að hefj­ast

Mannlífið

Mæður sem taka sjálfur eiga dætur sem vilja frekar fegr­un­ar­að­gerðir

Mannlífið

Hvers vegna eru börn oft að segja þessa setn­ingu?

Mannlífið

Bæj­ar­há­tíðin Í tún­inu heima stendur með miklum blóma í Mos­fellsbæ

Mannlífið

Bangsa­fé­lagið heldur upp á afmæli með stór­há­tíð og nýrri keppni