Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Tímalaus hönnun og umhverfisvæn framleiðsla

Happie er fyr­ir­tæki sem sér­hæfir sig í sér­smíði á hús­gögnum fyrir heim­ili, hótel, veit­inga­staði og önnur fyr­ir­tæki. Sér­hæfnin felst ekki síst í járn­smíði og smíði með gegn­heilum við. Hjónin Haf­steinn Helgi Hall­dórs­son og Guðrún Agla Egils­dóttir eiga og reka fyr­ir­tækið Happie og hafa ótrú­lega gaman af nýjum hug­myndum og sjá hvað ímynd­un­ar­aflið getur fram­kallað.

Tímalaus hönnun og umhverfisvæn framleiðsla
Ein­stakur lífs­stíll sem heillar, fjöl­skyldan við Hafra­vatn kann að lifa líf­inu til fulls og láta drauma sína ræt­ast.

Hver sagan að bak við til­urð fyr­ir­tæk­is­ins ykkar? „Fæðing fyr­ir­tæk­is­ins átti sér stað snemma árið 2015 þar sem við vorum að smíða hús­gögn inn í litla kjall­ara­í­búð í Vesturbæ Reykja­víkur sem við bjuggum í þá. Myndir af mun­unum röt­uðu á Inter­netið og í kjöl­farið var fólk byrjað að banka á dyrnar. Mikið vatn hefur runnið til sjávar síðan þá og í dag erum við búin að koma okkur upp ein­býl­is­húsi við Hafra­vatn ásamt því að vera með tvö verk­stæði í Kópa­vog­inum.“

Þið hafið skapað ykkur ákveðna sér­stöðu með ykkar hönnun, getur þú sagt okkur nánar frá ykkar áherslu í hönn­un­inni og fram­leiðslu? „Við erum svo ótrú­lega heppin með það að þeir sem finna okkur og koma í heim­sókn á verk­stæðið eru yfir­leitt fólk með ákveðnar hug­myndir og hafa sama brenn­andi áhuga og við, skapa eitt­hvað ein­stakt sem gleður augað ásamt því að hafa gott nota­gildi. Svo virð­ist einnig sem rísandi sam­eig­in­legur andi í sam­fé­lag­inu sé fyrir því að efla íslenskt atvinnu­líf og fram­leiðslu, enda eru ótrú­lega margir aðilar sem koma að okkar fyr­ir­tæki í heild­ar­mynd­inni. Ég tel, á okkar sviði, af minni reynslu í fram­leiðslu, að við séum framar mörgum nágranna­löndum okkar hvað varðar getu og hæfi­leika. Orðin íslensk hönnun og fram­leiðsla megum við klár­lega hampa bein í baki,“ segir Haf­steinn og er bjart­sýnn á fram­tíð­ina.

,,Við sér­hæfum okkur mikið í harð­við og vinnslu á harð­við. Smíðum borðin hér heima alveg frá grunni með járn­smiðnum okkar, gerum í raun allt nema að sjá um vöxt trjánna sem kemur að mestu frá Evrópu.“

Hvernig myndir þú lýsa hönn­un­ar­stílnum ykkar? „Varðandi hönn­un­ina þá er það sam­starfs­verk­efni hverju sinni allra á verk­stæð­inu, Agla hefur verið augað í fyr­ir­tæk­inu en við tökum flestar ákvarð­anir í sam­ein­ingu og besta hug­myndin fram­leidd. Við erum líka það heppin að oft eru kúnnar okkar mjög skap­andi og flestar ákvarð­anir teknar í sam­starfi við þá. Happie-stíll­inn á að koma með hlý­leik­ann frá nátt­úr­unni inn á heim­ilið og blanda saman líf­rænum línum nátt­úr­unnar við ein­föld form. Tak­markið með hönnun okkar er alltaf að borðið sé jafn­fal­legt og það er gott að sitja við það. Það er hin gyllta blanda í hönnun – þæg­indi og feg­urð.“

Eru nýungar á döf­inni? ,,Hingað til höfum við ein­ungis verið með verk­stæði og erum við nýbúin að stækka við okkur og ráða nýjan starfs­mann sem kemur ferskur inn með mikla reynslu frá meg­in­land­inu. Þetta er mikil sér­hæf­ing og hef ég leitað mikið erlendis eftir svörum við spurn­ingum sem kunna að vakna og er því dásam­legt að fá ferskan blæ frá Evrópu á verk­stæðið.“

Íbúð Haf­steins og Guðrúnar Öglu er Björt og fal­leg.

Haf­steinn og Agla horfa björtum augum til fram­tíð­ar­innar og ætla að halda áfram að vaxa og dafna. „Á dög­unum aug­lýstum við eftir áhuga­sömum fjár­festum í Happie, og settum þau skil­yrði að brenn­andi áhugi á íslenskri hönnun og hand­verki væri til staðar og hefur ekki staðið á fyr­ir­spurnum. Það er ótrú­lega gaman að sjá hversu margir hafa fylgst með okkur vaxa og hafa trú á okkur hjá Happie. Við höfum ekki náð að svara öllum en erum komin í við­ræður við ótrú­lega spenn­andi og skemmti­legt fólk með stór­kost­legar hug­myndir. Þetta er samt skref sem við erum að skoða vel og það þarf að vera góður andi til staðar svo svona gangi upp.“

„Annars höfum við sjálf verið að fara í stækk­un­ar­fram­kvæmdir til að anna eft­ir­spurn og bættum við okkur öðru verk­stæði í Kópa­vog­inum og erum að vinna að sýn­ing­ar­sal. Hingað til hefur fólk bara haft sam­band og kíkt við á verk­stæðið, það er alltaf gaman, en ég tel að það sé margt fólk sem langar til að geta komið og séð full­kláraða vöru. En það kostar sitt að fram­leiða hvert hús­gagn og höfum við sjálf ekki efni á að kaupa sýn­ing­ar­ein­tök af okkar fal­leg­ustu vörum og hafa til sýnis, það var einn af hvöt­unum á bak við það að skoða það að fá fjár­festa inn og er ég viss um að út úr því komi ein­hver snilld.“

Haf­steinn og Guðrún Agla hafa komið sér vel fyrir í húsi síni við Hafra­vatn.

Leggið þið sér­staka áherslu á umhverf­is­væna fram­leiðslu? „Við sér­hæfum okkur í harð­við og vinnslu á harð­við. Smíðum borðin hér heima alveg frá grunni með járn­smiðnum okkar, gerum í raun allt nema að sjá um vöxt trjánna sem kemur að mestu frá Evrópu. Staðlar eru orðnir það strangir í dag á skóg­rækt og er efni­við­ur­inn okkar merktur þeim staðli sem vottar að fram­leiðsla þess efnis er að fram­leiða fleiri tré en hún fellur. Timbur er eitt það umhverf­is­vænsta bygg­ing­ar­efni sem um getur. Við höfum líka verið dug­leg að planta uppi í landi. Við notum ein­ungis efni sem eru ekki eitruð fyrir húð eða við inn­öndun, við viljum hafa ferskan blæ öllum stundum á verk­stæð­inu hjá okkur. Olían okkar er til dæmis unnin úr plöntum en ekki jarð­olíu.“

Stíl­hrein hönnun ein­kennir hús hjón­anna.

Fallega húsið ykkar við Hafra­vatn heillar og fangar augað. Getur þú sagt okkur aðeins frá hug­sjónum ykkar og lífs­stíl? „Fyrir algjöra til­viljun skoð­uðum við fast­eigna­vef­inn árið 2015 rétt áður en allt fór af stað þar og þar var þessi lóð búin að hanga inni. Við fórum og skoð­uðum og ger­sam­lega urðum heilluð við fyrstu sýn. Allt í blá­berjum, lækur og ótrú­legt útsýni. Þetta er líka skammt frá bænum og er ég til að mynda sneggri heim í blá­berja­brekk­urnar heldur en í Vest­ur­bæ­inn frá verk­stæð­inu. Hug­myndin með hús­inu var alla tíð fjöl­skyldu­andi og njóta með fugl­unum og dýr­unum í nátt­úr­unni. Pælingin var einnig allan tím­ann að gera þetta að stað þar sem fólk getur komið, slakað á og hlaðið sig áður en það heldur aftur inn í borg­ar­lífið. Það hefur sko sann­ar­lega virkað.“

Myndir / Hákon Davíð Björns­son

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Geðlæknirinn Haraldur lætur allt flakka
Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Kynning

Efni unnið í samstarfi við auglýsendur