Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Funkisstíllinn alltaf heillandi

Nadia Katrín Banine, lög­giltur fast­eigna­sali hjá Landmark fast­eigna­sölu og flug­freyja, er með retróstíl, stíl­hreinan og hlý­legan og er heilluð af funkis­stílnum. Upp­á­halds­hönn­uður hennar er Hans J. Wegner, henni finnst hand­verk hans vera ævin­týra­legt.

Funkisstíllinn alltaf heillandi

Hvað heillar þig mest við starfið? „Ég hef alltaf haft gaman af heim­ilum og hönnun og fór fyrir nokkrum árum á hönn­un­ar­braut við Iðn­skól­ann í Hafn­ar­firði. Ég hef líka unnið mikið við sölu­mennsku og stíl­fær­ingu svo þetta var ein­hvern veg­inn upp­lögð leið til að flétta saman þessa tvo þætti. Ég legg mikið upp úr því að aðstoða fólk við það að fá sem mest út úr eign­inni sinni, með því að gera hana sem sölu­væn­leg­asta. Fer­metrar og birta er oft­ast það sem flestir eru að leita eftir og oft þarf að snúa aðeins við ein­hverjum hlutum í rým­inu, fækka þeim og opna rýmið þannig að það fái að njóta sín sem best.“

Hvað er það sem þér finnst gera heim­ili að heim­ili? „Það er svo mis­jafnt. Fer mikið eftir því hvernig hús­næðið er, en mér finnst alltaf fal­legt að blanda saman nýju og gömlu og vera ekki með of eins­leita hönnun. Ljós­myndir, kerti, plöntur og textíll er eitt­hvað sem mér finnst gegn­um­gang­andi gera heim­ili hlý­leg og per­sónu­leg. Stundum eru heim­ili, að mínu mati, of stíl­færð og óper­sónu­leg.“

„Ég hef gaman af því að gefa gömlum hlutum líf og leyfa þeim að njóta sín í bland við tíma­lausa hönnun. Mér finnst líka gaman að eiga fal­lega list eftir fólk sem ég þekki.“

Getur þú lýst þínum stíl? „Minn stíll er svo­lítið retró, myndi ég segja. Hann er stíl­hreinn en líka hlý­legur. Ég hef gaman af því að gefa gömlum hlutum líf og leyfa þeim að njóta sín í bland við tíma­lausa hönnun. Mér finnst líka gaman að eiga fal­lega list eftir fólk sem ég þekki.“

Áttu þinn upp­á­halds­arki­tekt? „Já, því er auðsvarað, Zaha Hadid.“

Hver er þinn upp­á­halds­hönn­uður? „Ég er svona laumu­smiður í mér og elska fal­lega smíði. Ég verð að segja Hans J. Wegner. Handverk hans er ævin­týra­legt.“

Hvað hefur þig alltaf dreymt um að eign­ast en ekki eign­ast hingað til? „Ætli það sé ekki Bam­sesto­len eftir Wegner.“

Mál­verkið fyrir aftan Nadiu er eftir fjöl­skyldu­vin, Sigtrygg Bjarna Bald­urs­son.

Upp­á­halds­lit­ur­inn þinn? „Hef verið ótrú­lega svört síð­ustu ár, en núna finnst mér fal­legur blár og flösku­grænn ein­stak­lega fal­legur. Ég er nýbúin að kaupa mér í sjón­varps­stof­una fal­lega grænan bólstraðan bekk sem ég er svaka­lega ánægð með.“

Hvar líður þér best? „Heima hjá mér verð ég að segja í svefn­her­berg­inu. Það er samt ekki alveg til­búið, en er ótrú­lega skemmti­legt rými. En svona almennt, þá á hest­baki eða á fal­legri strönd.“

Er eitt­hvað sem þú vilt bæta við í garð­inn eða í inn á heim­ilið þegar haustar? „Já, ég er að spá í að verða aðeins grænni heima hjá mér og kaupa meira af fal­legum plöntum. Ég var alltaf með heil­mikið af plöntum en það hefur eitt­hvað dalað síð­ustu árin. Svo má alltaf bæta við fal­legum kertum. Ætla að ná mér í ein­hver kerti hjá henni Írisi vin­konu minni í Veru Design og svo elska ég líka Völu­spár­kertin.“

Svalasti veit­inga­stað­ur­inn á Íslandi í dag? „Svo margir fal­legir og flottir staðir að það er erfitt að gera upp á milli. Fer svona meira eftir því hvaða stemn­ingu maður sæk­ist eftir. Það er alltaf líf og fjör á Snaps en svo finnst mér Sæta svínið líka mjög skemmti­legur staður. Stað­irnir hennar Hrefnu Sætran eru allir mjög smart og mat­ur­inn frá­bær.“

Heillar ein­hver bygg­ing­ar­stíll þig meira en annar? „Mér finnst funkis­stíll­inn alltaf svo­lítið heill­andi.“

Að lifa líf­inu lif­andi er að … vera í núinu, minnka síma­notkun, elska fólkið sitt, hlæja, dansa og láta eftir sér það sem mann langar þegar maður hefur tæki­færi til þess. Heft of sagt í gamni að ég lifi eftir slag­orði Nike og L´oreal; Just do it og Because you´re Worth It.

Mynd / Hákon Davíð Björns­son

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Geðlæknirinn Haraldur lætur allt flakka
Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Kynning

Efni unnið í samstarfi við auglýsendur