Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Sjónvarpspör sem hefðu hætt saman í raunveruleikanum

Sjónvarpspör sem hefðu hætt saman í raunveruleikanum
||||

Það eru ófá pörin sem hafa fellt hugi saman á sjón­varps­skjánum. Hins vegar eru sam­böndin oft það storma­söm að það er furða að pörin hangi saman, og oft vantar uppá sam­skipta­hæfi­leika þeirra.

Þetta er meðal þess sem nokkrir hjóna­bands­ráð­gjafar segja í nýrri grein á Huffington Post, þar sem farið er yfir þau sjón­varps­pör sem hefðu ekki endað saman í raun­veru­leik­anum.

Ross og Rachel í Friends

Þetta var sann­ar­lega haltu mér-slepptu mér sam­band sem end­aði með því að Ross og Rachel byrj­uðu enn á ný saman í síð­ustu þátta­röð­inni, eftir að hafa eign­ast barn saman. Danielle Forshee, félags­ráð­gjafi frá New Jersey, segir að þau hefðu eflaust dottið aftur í sitt gamla sam­bands­mynstur í fram­tíð­inni.

„Sam­bandið var búið til á grunni sem var skemmdur eftir ára­langa og vafa­sama hegðun. Þau voru bæði trú­lofuð öðrum, þau áttu í sam­skipta­erf­ið­leikum með að tjá sig nákvæm­lega um hvernig þeim leið með hvert annað og síðan giftu þau sig skyndi­lega í Las Vegas þegar þau voru blind­full,“ segir hún. Danielle Kepler, sam­bands­ráð­gjafi frá Chicago, er sam­mála því að sam­skipti Ross og Rachel hafi verið afleit.

„Þau gerðu það sem flestir gera þegar þeir eiga erfitt: spyrja vini sína ráða eða kvarta í stað­inn fyrir að tala við hvort annað.“

Carrie og Mr. Big úr Sex and the City

Það eru ekki allir sam­mála um hvort það hafi verið gott og rétt að Carrie hafi loks­ins endað með Mr. Big, enda var hann búinn að halda henni heitri í fjöl­mörg ár. Carly Haeck, sam­bands­ráð­gjafi í Seattle, segir að þeirra leið til að glíma við til­finn­ingar myndi eflaust slíta þeim í sundur í fram­tíð­inni.

Hún segir að mann­eskjur eins og Big, sem á erfitt með að binda sig annarri mann­eskju, kunni að þrá ást en eigi erfitt með nánd. Þá segir hún að Carrie þurfi sífellda stað­fest­ingu á sam­bandi þeirra.

„Í gegnum þeirra sam­band hefur Big fjar­lægt sig frá Carrie, kannski til að bjarga sér frá því að vera ber­skjald­aður eftir að hafa verið særður í hjóna­bandi sínu,“ segir Carly og heldur áfram.

„Því meira sem hann dregur sig í hlé, því óör­ugg­ari verður Carrie í sam­band­inu, sem veldur því að hún er bæði mjög óþreyju­full í leit sinni að sam­bandi og gengur meira á eftir honum og fjar­lægir sig stundum frá honum til að hann særi hana ekki.“

Carly segir að þessi hegðun fari í hringi og gæti orðið til þess að Big yrði enn fjar­læg­ari, sem myndi þýða enda­lok sam­bands­ins.

„Þau þyrftu að átta sig á þess­ari hringrás og hvað veldur henni til að láta sam­bandið ganga og tala saman til að finn­ast þau örugg í sam­band­inu.“

Chuck og Wendy Rhoades í Billions

Linda Schlapfer, hjóna­bands- og fjöl­skyldu­ráð­gjafi í Connecticut, segir að ágrein­ingur á milli þess­ara tveggja myndi strax koma í ljós þar sem Chuck er lög­fræð­ingur að rann­saka Axe Capital þar sem Wendy vinnur sem geð­læknir.

„Það er ómögu­legt að halda með erkió­vinum þegar annar er yfir­maður þinn og hinn eig­in­maður þinn,“ segir Linda. Hún bætir við að bæði Chuck og Wendy hafi stigið yfir óaf­sak­an­legar línur í hjóna­band­inu.

„Hann braust inn í tölv­una hennar og það er alveg bannað. Og hún fær svaka­legar gjafir frá Axe og eyðir miklum tíma með yfir­manni sínum eftir vinnu. Það myndi láta hvaða eig­in­manni sem er líða óþægi­lega.“

Tony og Carmela Soprano í The Sopranos

Carmela var rödd skyn­sem­innar í mafíu­þátt­unum og þó hún hafi skilið við mafíós­ann í seríu fjögur náðu þau aftur saman. Danielle Forshee á erfitt með að trúa að þetta hjóna­band hefði gengið í raun­veru­leik­anum, þar sem Tony var ekki bara glæpa­maður heldur steig oft yfir lín­una.

„Ef eig­in­maður sýnir mynstur þar sem hann heldur fram­hjá eða leitar utan sam­bands­ins að til­finn­inga­legri, and­legri eða lík­am­legri fróun þá er ólík­legt að kona í raun­veru­leik­anum myndi heðga sér eins og Carmela gerir. Hún setur þarfir Tonys í fyrsta sæti, heldur heim­il­inu óað­finn­an­legu og eldar upp­á­halds­mál­tíð­irnar hans. Það er bara óraun­veru­legt.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Menning

Kíkja í jóla­pakk­ann í Gerðu­bergi

Bókaunnendum gefst færi á að kynnast tveimur íslenskum skáldsögum og nýrri þýðingu áður en jólabókaflóðið skellur á.
Frétt

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Heimur

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Heimur

Dul­ar­fullt ákall á net­inu vekur ótta við óeirðir á Tenerife

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Heimur

Dóm­ara­deilan sýður upp úr í Póllandi

Heimur

Fá borgað fyrir að ganga með vél­hunda um San Francisco