Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

PRADA: Hver er konan á bakvið merkið?

All­flestar konur þekkja nafnið Prada enda eitt fræg­asta tísku­vöru­merki heims síð­ast­liðna ára­tugi. En hvað vitum við um kon­una á bak við merkið?

PRADA: Hver er konan á bakvið merkið?
Exif_JPEG_PICTURE

Hér eru nokkrar skemmti­legar stað­reyndir um Miucciu Prada sjálfa sem er ein áhrifa­mesta og rík­asta kona heims.

Sér­stakur bak­grunnur Flestir fata­hönn­uðir hafa verið við­loð­andi brans­ann alveg frá byrjun og lifa og hrær­ast í heimi hönn­unar. Bak­grunnur Miucciu er hins vegar tölu­vert sér­stakur en áður en hún tók við fjöl­skyldu­fyr­ir­tæk­inu árið 1978 útskrif­að­ist hún úr stjórn­mála­fræði og varði fimm árum við lát­bragðs­leik.

Lúx­usvöru­merkið Prada getur þakkað Miucciu Prada, barna­barni Mario Prada, fyrir vel­gengn­ina síð­ustu ára­tugi. Ítalska vöru­merkið var stofnað árið 1913 og hóf fram­leiðslu á gæða­leð­ur­töskum sem halda áfram að vera aðals­merki þeirra í dag.

Það var hins vegar Miuccia sem kom með fyrstu Ready-to-Wear-fata­lín­una á markað á tíunda ára­tugnum en í dag selur Prada fylgi­hluti, fatnað og ilm­vötn.

Vöru­merkið Prada er þekkt fyrir lát­lausan eleg­ans og stór eða áber­andi lógó eru sjald­séð á töskum þeirra. Hönn­un­ar­vörur þeirra eiga að vera auð­þekktar innan „innsta hrings“.

Miuccia er loks­ins búin að taka það í sátt að vera femínisti sem vinnur í tísku­heim­inum. Í við­tali við Newsweek sagði hún að vegna þess að hún væri femínisti þá hefði hún lengi vel hatað hug­mynd­ina að vinna við tísku og að ein­ungis nýlega hefði hún sæst við hug­mynd­ina og hætt að líða illa yfir því. „Ég átt­aði mig á því að margt mjög klárt fólk ber mikla virð­ingu fyrir tísku og ég hef nýtt mér tísku­hönn­un­ina til þess að kanna heima arki­tekt­úrs, lista og kvik­mynda.“

„Ég átt­aði mig á því að margt klárt fólk ber virð­ingu fyrir tísku og ég hef nýtt mér tísku­hönn­un­ina til þess að kanna heima lista og kvik­mynda.“

Kvik­myndin The Devil Wears Prada fjallar um reynslu aðstoð­ar­konu sem á að vera byggð á per­sónu banda­ríska rit­stjóra Vogue, Önnu Wintour. Þrátt fyrir að Önnu sé ekk­ert sér­stak­lega hlý­lega lýst í mynd­inni góðu brást hún alls ekki illa við kvik­mynd­inni og mætti meira að segja á frum­sýn­ing­una í New York – að sjálf­sögðu klædd Prada frá toppi til táar.

Gift fræmkvæmdastjóranum

Miuccia er gift við­skipta­fé­laga sínum en stuttu eftir að hún fór að vinna fyrir fjöl­skyldu­fyr­ir­tækið kynnt­ist hún Patrizio Bertelli sem síðar varð fram­kvæmda­stjóri Prada. Hún hefur sagt að hann sé drif­kraft­ur­inn á bak við vinnu hennar og gefur honum kreditið fyrir að gera fyr­ir­tækið að því marg­millj­arða veldi sem það er í dag. Hjónin eru þó þekkt fyrir það að lenda í heift­ar­legum rifr­ildum. „Við vinnum mikið og leggjum hart að okkur og erum í ákaf­lega ástríðu­fullu sam­bandi, það getur verið mjög þreyt­andi að vinna fyrir hann. En ég dáist að honum og virði hann,“ sagði hún í við­tali við The Wall Street Journal.

Skemmti­leg tíska Miuccia hefur sagst elska tísku en segir að hún eigi ekki að stjórna lífi fólks og vill ekki taka sig of hátíð­lega. „Tíska er mjög fal­legur hluti af lífi okkar en mér finnst að tíska eigi að vera skemmti­leg.“

Prada seg­ist geta rétt­lætt him­in­háa verð­miða varn­ings­ins frá vöru­merk­inu en hún segir að það kosti ekki bara mikið að fram­leiða varn­ing­inn frá þeim heldur kosti það einnig sitt að það sé gert við rétt skil­yrði.

Vöru­merkið Prada er þekkt fyrir lát­lausan eleg­ans

Í við­tali „skamm­aði“ hún fólk á vinstri væng stjórn­mál­anna sem gagn­rýna hættu­leg og sið­ferð­is­lega röng vinnu­skil­yrði en þykir demókrat­ískara að klæð­ast ódýrum tískuflíkum. Þetta þyki henni hámark hræsn­innar.

Ungdómsþráhyggja

Prada segir að nútíma­sam­fé­lög séu haldin þrá­hyggju gagn­vart ung­dómnum en er sjálf of hrædd við að leiða bylt­ingu breyt­inga í tísku­heim­inum.

„Hjá konum fylgir því mikið drama að eld­ast. Það vill eng­inn eld­ast en mér finnst að við ættum að finna lausn á því. Sér­stak­lega þar sem við lifum miklu lengur í dag,“ var haft eftir henni í við­tali.

Þegar hún var spurð af hverju hún not­aði ekki eldri fyr­ir­sætur öðru hvoru svar­aði hún því að hún ynni í heimi aug­lýs­inga en ekki í list­rænum heimi og við­ur­kenndi að hún væri ekki nógu hug­rökk til þess.

„Þeir sem eiga fal­leg hús og mál­verk en klæða sig illa skil ég ekki.“

Hún er þekkt fyrir að finn­ast minna alltaf meira og skilur ekki fólk sem er illa klætt.

„Þeir sem eiga fal­leg hús og mál­verk en klæða sig illa skil ég ekki og heldur ekki konur sem sýna of mikið hold. Ég trúi því að því glennu­legar sem konur klæð­ist, því minna kyn­líf stundi þær.“

Höfundur / Helga Krist­jáns
Myndir / Prada

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

„Á ég að koma og taka í þig og ríða þér í rassgatið litla tussan þín“
Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Peningar

Samkaup semja um kaup á Fjarð­ar­kaupum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Fólk

Fólk

Fimm hlutir sem geta reynt á sam­bandið þegar mak­inn er með ADHD

Fólk

Keath Ósk slær í gegn á heims­vísu og segir Ísland hafa mótað sköp­un­ina

Viðtal
Fólk

Ekkert minni konur en aðrar konur

Myndir
Fólk

Óvenju­legt sölu­til­boð í Reykja­vík þar sem maka­skipti koma til greina

Fólk

Nabblinn leggur bleyj­una á hill­una

Myndir
Fólk

Sögu­frægt sýslu­manns­setur við sjó­inn komið á sölu