Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Karl, kona, bæði eða hvorugt

Tísku­heim­ur­inn hefur lengi verið opn­ari og mót­tæki­legri gagn­vart hinseg­in­leika en restin af umheim­inum.

Karl, kona, bæði eða hvorugt
Trans konan Amanda Lepore hefur verið músa og veitt fjöl­mörgum tísku­hönn­uðum inn­blástur, svo sem Armani og Jason Wu, og sést reglu­lega á fremsta bekk tísku­sýn­inga.

Innan hans hafa hönn­uðir og músur þeirra leikið sér með hug­myndir um kyn og kyn­hlut­verk svo lengi sem menn muna. Ákveðin kyn­bylt­ing átti sér stað á átt­unda ára­tug síð­ustu aldar en þá byrj­uðu að koma fram fyr­ir­sætur, tón­list­ar­fólk og annað lista­fólk sem var dul­kynja og jafn­vel kyn­laust, þar má til dæmis nefna David Bowie, Grace Jones og fleiri. Tísku­heim­ur­inn tók þessum ein­stak­lingum opnum örmum og þeir urðu hönn­uðum mik­ill inn­blástur. Hér eru nokkrir ein­stak­lingar sem hafa tekið þátt að opna augu fólks í gegnum tísku og fleira. Fögnum fjöl­breyti­leik­anum.

Trans­konan Amanda Lepore er fastur gestur í næt­ur­lífi New York-borgar þar sem hún hefur búið nær alla tíð. Hún hefur verið músa og veitt fjöl­mörgum tísku­hönn­uðum inn­blástur, svo sem Armani og Jason Wu, og sést reglu­lega á fremsta bekk tísku­sýn­inga.

Amanda Lepore er afar umdeild, sér­stak­lega innan hinsegin sam­fé­lags­ins sem vill meina að hún sé ekki beint góður málsvari trans ein­stak­linga, en fólk virð­ist hafa enda­lausan áhuga á henni.

Það má segja að hún sé aðal­lega fræg fyrir ótrú­lega fjölda lýta­að­gerða sem hún hefur und­ir­geng­ist. Hún hefur látið fjar­lægja rif­bein, stækkað á sér brjóstin þrisvar, sprauta sílíkoni í and­lit og rass auk þess sem hún hefur oftar en einu sinni farið í and­lits­lyft­ingu. Hún lík­ist í raun teikni­mynda­per­són­unni Jessicu Rabbit, sem er gott eða slæmt eftir því hvernig þú horfir á það.

Hún er afar umdeild, sér­stak­lega innan hinsegin sam­fé­lags­ins sem vill meina að hún sé ekki beint góður málsvari trans ein­stak­linga, en fólk virð­ist hafa enda­lausan áhuga á henni og hún verður að fá kredit fyrir það að tjá sig opin­ber­lega sem trans ein­stak­lingur löngu áður en sú umræða varð almenn.

Casey Legler

Franska sund­konan Casey Legler keppti á Ólymp­íu­leik­unum árið 1996 en hún lagði sund­bol­inn á hill­una tveimur árum síðar. Hún hafði komið út sem lesbía á sama tíma, var hávaxin, sterk­byggð og mögnuð sund­kona. Hún upp­lifði mikla útskúfun frá liðs­fé­lögum og þjálf­urum sem báðu hana um að nota kló­sett

Casey hefur alla tíð klæðst karl­manns­fötum ein­fald­lega vegna þess að þau passa á hana, hún er rúm­lega 190 cm á hæð.

fatl­aðra sem bún­ings­klefa. Casey hefur alla tíð klæðst karl­manns­fötum ein­fald­lega vegna þess að þau passa á hana, hún er rúm­lega 190 cm á hæð. Þegar hún komst á skrá hjá Ford-umboðs­skrif­stof­unni árið var það sem karl­fyr­ir­sæta.

Hún sat fyrir í her­ferðum hjá All Saints, Diesel og fleirum. Fyr­ir­sætu­störfin hent­uðu henni þó ekki og hún var bara á skrá í eitt ár en opn­aði augu fólks á þeim tíma fyrir fjöl­breyti­leika fólks.

Lea T

Leandra Medeiros Cerezo, eða Lea T eins og hún er betur þekkt, er brasil­ísk-ítölsk fyr­ir­sæta. Hún er meðal fyrstu trans­fyr­ir­sætna og mik­ill tals­maður LGBTQ. Hún er músa hönn­uð­ar­ins Ricardo Tisci sem er yfir­hönn­uður Givenchy-tísku­húss­ins, en t-ið í nafni Leu stendur einmitt fyrir Tisci. Hann gerði hana að and­liti Givenchy síðla árs 2010 og hún byrj­aði að ganga á tískupöll­unum vorið eftir. Hún hefur prýtt síður tíma­rita á borð við Vogue Paris, Interview og Love, en for­síðan á því síð­ast­nefnda þar sem hún kyssir Kate Moss er víð­fræg.

Leandra Medeiros Cerezo, eða Lea T eins og hún er betur þekkt, er brasil­ísk-ítölsk fyr­ir­sæta.

Ruby Rose

Ástr­alska fyr­ir­sætan Ruby Rose gekk í gegnum tíma­bil í æsku þar sem hún vildi vera strákur og leiddi hug­ann að kyn­leið­rétt­ingu. Hún seg­ist þó hafa vaxið upp úr þeim hugs­unum og þegar hún var tán­ingur kom hún út úr skápnum sem lesbía. Í gegnum fyr­ir­sætu­störfin upp­götv­aði hún hug­takið dul­kynja (e. Androg­yny) og hún byrj­aði að prófa sig áfram með að sitja fyrir sem bæði kona eða karl – og stundum sem órætt kyn. Hún segir kyn­vit­und sína fljót­andi og vaknar upp á hverjum morgni kyn­laus, það fer svo eftir skapi hennar þann dag­inn hvort kynið verður ofan á. Hún gerði stutt­mynd­ina Break Free um þessa upp­lifun sína og við hvetjum alla til að horfa á hana.

Ástr­alska fyr­ir­sætan Ruby Rose.

RuPaul

Hún er oft kölluð fyrsta drag­súper­stjarnan og það er eng­inn hálf­sann­leikur. RuPaul hefur komið dragi inn í almenna umræðu og meg­in­straum sam­fé­lags­ins í gegnum sjón­varps­þátt sinn Drag Race. Fyrir það var hún í sjón­varps- og kvik­mynda­stjarna og heims­þekkt nafn í skemmt­ana­brans­anum – Allt í dragi. Hafnar eru tökur á tíundu seríu þátt­ar­ins og vin­sæld­irnar eru bara að aukast. Þátt­tak­endur og RuPaul sjálf hafa setið fyrir hjá mörgum frægum tísku­hönn­uðum svo sem Marc Jacobs, Marco Marco og fleirum.

RuPaul hefur komið dragi inn í almenna umræðu og meg­in­straum sam­fé­lags­ins í gegnum sjón­varps­þátt sinn Drag Race.

Grace Jones

Hún er sann­kallað kamelljón; á lífs­leið­inni hefur Grace Jones starfað sem fyr­ir­sæta, tón­list­ar­kona og leik­kona og það sem meira er náð vel­gengni á öllum sviðum. Hún ólst upp á mjög sið­prúðu og trú­ræknu heim­ili á Jamaica og í Banda­ríkj­unum en var ekki lengi að hrista þá hlekki af sér um leið og hún varð átján. Hún var fasta­gestur á klúbbum sam­kyn­hneigðra í New York og París þar sem hún kynnt­ist mörgum áhrifa­ríkum ein­stak­lingum, svo sem Karl Lag­er­feld, Yves Saint Laurent og Helmut Newton, en þeir löð­uð­ust að krafti hennar. Hún hefur alltaf talað fyrir frelsi ein­stak­lings­ins til að vera nákvæm­lega sá sem hann vill vera – hvort sem það er karl, kona eða eitt­hvað allt annað.

Höfundur / Hildur Frið­riks­dóttir

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

„Á ég að koma og taka í þig og ríða þér í rassgatið litla tussan þín“
Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Peningar

Samkaup semja um kaup á Fjarð­ar­kaupum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Fólk

Fólk

Fimm hlutir sem geta reynt á sam­bandið þegar mak­inn er með ADHD

Fólk

Keath Ósk slær í gegn á heims­vísu og segir Ísland hafa mótað sköp­un­ina

Viðtal
Fólk

Ekkert minni konur en aðrar konur

Myndir
Fólk

Óvenju­legt sölu­til­boð í Reykja­vík þar sem maka­skipti koma til greina

Fólk

Nabblinn leggur bleyj­una á hill­una

Myndir
Fólk

Sögu­frægt sýslu­manns­setur við sjó­inn komið á sölu