Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Vagga matarmenningar í Frakklandi

Vín­s­mökkun, vin­sæl afþrey­ing og vina­legt umhverfi ein­kennir Búrgúndí.

Vagga matarmenningar í Frakklandi
Myllan, eins og hún er kölluð, er í námunda við vín­rækt­ar­hér­aðið Chablis.

Búrgúndí er oft lýst sem vöggu víns- og mat­ar­menn­ingar í Frakk­landi og frá bænum Commissey er stutt í öll helstu vín­héruð lands­ins. Þar er hægt að leigja gamla upp­gerða myllu með öllum nútíma­þæg­indum.

Myllan, eins og hún er kölluð, er í námunda við vín­rækt­ar­hér­aðið Chablis, í tveggja tíma akst­urs­fjar­lægð frá París í norð­ur­hluta Búrgúndíhér­aðs. Húsið sem var byggt árið 1838 var upp­haf­lega mylla til að fram­leiða hnetu­olíu en var síðar breytt í sög­un­ar­myllu. Um miðja síð­ustu öld keypti fjöl­skylda sem bjó í París húsið og not­aði það sem sum­ar­dval­ar­stað.

Land­ar­eign Myll­unnar er í skógi vöxnum ávaxta­garði við ána Armancon sem rann á árum áður við Mylluna en þegar Búrgúndí­skipa­skurð­ur­inn, sem liggur frá Erma­sundi í Mið­jarð­ar­haf, var tek­inn í notkun árið 1832 var árfar­veg­inum breytt.

Myllunni hefur verið vel við­haldið og þar eru öll helstu nútíma­þæg­indi. Þar eru átta rúm­góð svefn­her­bergi og tvær stofur. Hún er með franska glugga sem opn­ast út að uppi­stöðu­lóni og nota­legur árniður berst inn í húsið og á annarri hæð­inni er útgengt á yfir­byggða ver­önd.

Myllunni hefur verið vel við­haldið og þar eru öll helstu nútíma­þæg­indi. Þar eru átta rúm­góð svefn­her­bergi og tvær stofur. Hún er með franska glugga sem opn­ast út að uppi­stöðu­lóni og nota­legur árniður berst inn í húsið og á annarri hæð­inni er útgengt á yfir­byggða ver­önd.

Hægt er að fá mat­reiðslu­konu sem sér­hæfir sig í mat­reiðslu á Búrgúndíréttum til að sjá um inn­kaup og elda mat úr hrá­efnum stað­ar­ins í eitt eða fleiri skipti.

Vínsmökkun og veitingastaðir

Vínakrar eru allt í kring á svæð­inu. Commissey liggur í nokk­urra kíló­metra fjar­lægð frá vín­hér­uð­unum Chablis og Irancy og um klukku­tímaa­akstur er til vín­hér­að­anna við Beaune, Côte d´Or, Sancerre og Champagne. Aðstand­endur geta útvegað ensku­mæl­andi leið­bein­anda um vín­s­mökkun í heim­sóknir á áhuga­verða staði og til bænda og vín­kaup­manna. Hægt er að gera frá­bær kaup á góðum vínum en mik­il­vægt er að fá góðar upp­lýs­ingar, enda eru vín á svæð­inu mis­jöfn að gæðum.

Bærinn Flavigny-sur-Ozerain, þar sem kvik­myndin Chocolat var tekin, er í um klukku­stundar akst­urs­fjar­lægð frá Myllunni.

Matur er ódýr og það sama á við um veit­inga­staði. Víða er boðið upp á frá­bæran mat á við­ráð­an­legu verði og aðstand­endur myll­unnar geta útvegað lista yfir áhuga­verða veit­inga­staði og vín­bændur.

Frægar borgir og fallegar hallir

Auðvelt er að taka lest til Parísar, Dijon, Lyon, Euro Disney eða jafn­vel að Mið­jarð­ar­haf­inu og bær­inn Troyes er í 60 kíló­metra fjar­lægð.

Svæðið hefur að geyma stór­kost­lega sögu, fal­legar hallir, klaustur og fleira. Bæirnir Auxerre, Avallon, Dijon, Semur-en-Auxois, Noyers, Saulieau, Vezelay, Beaune, Autun eru innan seil­ingar ásamt bænum Flavigny-sur-Ozerain þar sem kvik­myndin Chocolat var tekin. Á svæð­inu eru mörg flott lista­söfn. Höllin í Tanley er í göngu­fjar­lægð og örstutt er í höll­ina í Ancy-le-Franc, Epoisses og klaustrið í Fontenay þar sem sumir telja að iðn­bylt­ingin hafi haf­ist.

Heimsókn í kirkj­una í Vezelay er ógleym­an­leg en frá henni er ein fræg­asta píla­gríma­leið í Evrópu. Staðhæft er að lík­ams­leifar Maríu Magda­lenu liggi í kirkj­unni og bæði klaustrið og kirkjan eru á heimsminja­skrá UNESCO. Stór­kost­leg upp­lifun er að sjá líkn­ar­stofn­an­irnar Hospice í Beaune sem stofnað var árið 1443 og hótel guðs í Tonnerre sem stofnað var árið 1298.

Útivist og sport

Góð afþrey­ing er fyrir börn á svæð­inu sem geta leikið sér við uppi­stöðu­lónið hjá Myllunni og vin­sælt er á sumrin að hoppa út í Armancon-ána. Níu holu mjög ódýr golf­völlur er í Tanlay sem er í um eins kíló­metra fjar­lægð og fleiri golf­vellir eru á svæð­inu. Í Tanlay eru einnig tenn­is­vellir, körfu­bolta- og fót­bolta­völlur og fjöl­breytt vatna­sport er stundað í Armancon-ánni og Búrgúndí­skurð­inum. Nokkur vötn eru skammt frá og þar er fjöl­breytt þjón­usta fyrir ferða­menn. Frábærar göngu- og hjóla­leiðir eru í nágrenn­inu og hægt að leigja hesta eða stunda veiðar. Fimm reið­hjól fylgja hús­inu og borð­tennis og körfu­bolta er hægt að spila í skemmu sem fylgir myll­unni. Tveggja tíma akstur er í ýmsa skemmti­garða svo sem Dis­neyland og Nicloland.

Veturinn hefur sína töfra þar sem villi­bráðin kemur á mat­seð­il­inn. Kalt getur verið í veðri en húsið er vel kynnt, nota­legt er að sitja við kerta­ljós fyrir framan eld í kamín­unni eftir góðan kvöld­verð.

Í um 50 kíló­metra­fjar­lægð er Morvan-þjóð­garð­ur­inn sem er nátt­úruperla og þar er mikið af söfnum og alls­konar afþr­ey­ingu. Við Morvan-þjóð­garð­inn er þorpið Veselay sem er með vin­sæl­ustu ferða­stöðum í Frakk­landi.

Verslun og þjónusta

Mikil kyrrð er á svæð­inu en samt sem áður er stutt í helstu þjón­ustu. Mat­ar­mark­aðir eru í næsta nágrenni flesta morgna og stutt í stór­borg­ina Dijon eða Troyes. Útsölu­mark­að­irnir í Troyes eru þess virði að heim­sækja en þar er einn stærsti útsölu­mark­aður Frakk­lands (outlet) með merkja­vöru á borð við Levis, Lacoste, Charles Jordan, Laura Ashley, Diesel, Adidas, Petit Bateau, Tim­ber­land og Cyrillus svo dæmi séu tekin. Í Auxerre, sem meðal ann­ars er þekkt fyrir osta­gerð, er einn þekkt­asti fót­bolta­klúbbur í Frakk­landi. Þá er vert að hafa í huga að Formúlu eitt kappakstur fer fram í byrjun júlí­mán­aðar í borg­inni Nevers.

Mild veðrátta

Í Búrgúndí er meg­in­lands­lofts­lag. Veðr­áttan á vorin er afar þægi­leg, fal­legir akrar og allt er í blóma. Þar sem Commissey er á hásléttu eru sumrin mild­ari en sunnar í álf­unni og húsið er hannað þannig að það er svalt þótt heitt sé úti. Mörgum þykir haustin samt fal­leg­asti árs­tím­inn. Vín­upp­skera fer fram um mán­aða­mótin sept­em­ber-októ­ber og á þessum tíma er veðrið milt, hiti á bil­inu 18°–20°C yfir dag­inn. Veturinn hefur sína töfra þar sem villi­bráðin kemur á mat­seð­il­inn. Kalt getur verið í veðri en húsið er vel kynnt, nota­legt er að sitja við kerta­ljós fyrir framan eld í kamín­unni eftir góðan kvöld­verð. Myllan er leigð til félaga­sam­taka júní, júlí og ágúst en vorin og haustin eru frá­bær tími á svæð­inu.

Troyes er afar sjar­mer­andi bær og þar er hægt að gera góð kaup á risa­stórum útsölu­mörk­uðum. Mynd / commons.wikimedia.org

Allar nán­ari upp­lýs­ingar eru á heima­síð­unni myllan.wordpress.com.

Höfundur / Ragn­hildur Aðal­steins­dóttir
Aðalmynd / www.pexels.com

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

„Á ég að koma og taka í þig og ríða þér í rassgatið litla tussan þín“
Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Peningar

Samkaup semja um kaup á Fjarð­ar­kaupum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Fólk

Fólk

Fimm hlutir sem geta reynt á sam­bandið þegar mak­inn er með ADHD

Fólk

Keath Ósk slær í gegn á heims­vísu og segir Ísland hafa mótað sköp­un­ina

Viðtal
Fólk

Ekkert minni konur en aðrar konur

Myndir
Fólk

Óvenju­legt sölu­til­boð í Reykja­vík þar sem maka­skipti koma til greina

Fólk

Nabblinn leggur bleyj­una á hill­una

Myndir
Fólk

Sögu­frægt sýslu­manns­setur við sjó­inn komið á sölu