Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Varist gegn veðri og vindum

Nú sækir kulda­boli að og við erum öll farin að draga fram vetr­ar­yf­ir­hafn­irnar.

Varist gegn veðri og vindum

Hvort sem þú kýst að klæð­ast kápu, frakka eða úlpu þá er nauð­syn­legt að verja sig vel. En hver er sagan á bak við þessar flíkur og hvernig hafa þær þró­ast í gegnum tíð­ina?

Með tíð og tíma þró­uð­ust yfir­hafnir og frá 18. öld byrj­uðu að koma fram kápur eins og við þekkjum þær í dag;

Á mið­öldum voru það nær ein­göngu karl­menn sem klædd­ust sér­sniðnum kápum, frökkum eða öðrum yfir­höfnum á meðan konur vöfðu sig sjölum. Í Evrópu voru þetta yfir­leitt milli­síðir frakkar sem voru hnepptir að framan, aðsniðnir í mittið og með eins­konar opnu pilsi að neðan.

Hér á landi voru yfir­hafnir unnar úr vað­máli, svoköll­uðu hafn­ar­voði, og margar hétu skondnum en lýsandi nöfnum. Belg­hempa var karl­manns­yf­ir­höfn til ferða­laga, úr grófu vað­máli, hné­síð, ófóðruð og skraut­laus, en doppa var sjó­flík sem var hné­síður stakkur úr grófu og mjög þykku vað­máli.

Með tíð og tíma þró­uð­ust yfir­hafnir og frá 18. öld byrj­uðu að koma fram kápur eins og við þekkjum þær í dag; hné- eða skó­síðar, ein- eða tví­hnepptar og úr ull eða öðrum efnum. Sum snið eiga rót sína í her­manna­klæðum enda voru þau sér­stak­lega hönnuð með nota­gildið í huga.

Stuttar kápur eða frakkar, sem nefn­ast pea coat á ensku, komu fyrst fram á sjón­ar­sviðið fyrir rúmum tvö hund­ruð árum. Kápan nær aðeins niður að lærum og klauf á sitt­hvorri hlið þannig að auð­velt var að setj­ast í henni. Hún er yfir­leitt úr ull og tví­hneppt með stórum tölum úr við, plasti eða málmi. Þessi stutta flík var fyrst hönnuð fyrir sjóliða í her­liði Evrópu og Banda­ríkj­anna en nútíma­út­gáfur eru svo gott sem nákvæm­lega eins.

Svokölluð duf­fel-kápa kemur reglu­lega í tísku en upp­runa hennar má rekja allt til 1820. Kápan er nefnd eftir bænum Duffel í útjaðri Antwerp í Belgíu en talið er að sniðið sé að fyr­ir­mynd pólsks her­manna­frakka. Kápan var afar vin­sæl meðal her­manna og almenn­ings Evrópu seinni hluta 19. aldar og fram yfir fyrri heims­styrj­öld. Einkenni duf­fel-kápu eru þykkt ull­ar­efni og lín­ing með skosku köfl­óttu mynstri, þver­falds­fest­ingar úr leðri og beini eða við, tveir stórir uta­n­áliggj­andi vasar og hetta með háls­bandi sem hægt var að hneppa.

Trench-kápan var fyrst þróuð sem hlífð­ar­flík fyrir breska og franska her­menn í fyrri heims­styrj­öld­inni

Trench-kápan var fyrst þróuð sem hlífð­ar­flík fyrir breska og franska her­menn í fyrri heims­styrj­öld­inni. Þegar margir heyra orðið „trench“ dettur þeim vöru­merkið Burberry í hug og það er ekki furða, tísku­húsið hefur fram­leitt káp­urnar í rúma öld. Thomas Burberry fann upp gaberd­ínefni árið 1850 sem er afar þétt­ofið efni úr ull eða bóm­ull sem hleypir síður vind eða regni í gegn. Rúmum tutt­ugu árum síðar, árið 1901, sendi hann inn til­lögu að regn­frakka fyrir her­for­ingja breska hers­ins sem var sam­þykkt og send til fram­leiðslu. Þannig fædd­ist trench-frakk­inn. Í dag er hann vin­sæll hjá báðum kynjum enda stíl­hrein og afslöppuð yfir­höfn. Hefð­bund­inn frakki er tví­hnepptur með tíu tölum, með breiðum boð­ungi og belti um miðj­una og oft líka neðst á ermunum.

Í kringum 1920 naut mjög skemmti­legt kápu­snið vin­sælda meðal kvenna, svo­kallað púpu-snið eða cocoon coat. Slíkar kápur voru víðar um miðj­una og mjókk­uðu svo niður fyrir hné. Eins og aðrar flíkur á þessum tíma voru káp­urnar skreyttar fal­legum munstrum, loðskinni, fjöðrum og fleira. Þetta snið komst síðan óvænt í tísku aftur á und­an­förnum árum og þá í mun stíl­hreinni bún­ing en áður.

Dún­fylltar flíkur hafa lengi verið not­aðar til að halda hita á fólki yfir harða vetr­ar­mán­uði og fund­ist hafa dæmi um slíkar flíkur í Evrópu, Indlandi og jafn­vel Kína. Rúss­neskir her­menn klædd­ust einnig dún­fylltum frökkum í fyrstu heims­styrj­öld­inni. Sá sem á þó heið­ur­inn af því að setja dún­úlpur á almennan markað er Eddie Bauer. Hann saum­aði fyrstu úlpuna árið 1936 og sótti um einka­leyfi á upp­finn­ing­unni árið 1940. Inn­blást­ur­inn að hug­myndin var sagan um rúss­nesku her­menn­ina sem afi hans sagði honum þegar hann var barn. Sú saga rifj­að­ist svo upp fyrir honum þegar hann varð næstum úti í veiði­ferð. Dúnúlpur hafa dottið í og úr tísku nokkrum sinnum síðan og eru ákkúrat í tísku núna.

Höfundur / Hildur Frið­riks­dóttir

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

„Á ég að koma og taka í þig og ríða þér í rassgatið litla tussan þín“
Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Peningar

Samkaup semja um kaup á Fjarð­ar­kaupum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Fólk

Fólk

Fimm hlutir sem geta reynt á sam­bandið þegar mak­inn er með ADHD

Fólk

Keath Ósk slær í gegn á heims­vísu og segir Ísland hafa mótað sköp­un­ina

Viðtal
Fólk

Ekkert minni konur en aðrar konur

Myndir
Fólk

Óvenju­legt sölu­til­boð í Reykja­vík þar sem maka­skipti koma til greina

Fólk

Nabblinn leggur bleyj­una á hill­una

Myndir
Fólk

Sögu­frægt sýslu­manns­setur við sjó­inn komið á sölu