Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Kortleggja ilmi í íslenskri náttúru

Sonja Bent og Elín Hrund Þor­geirs­dóttir safna og skrá ilmol­íur úr íslenskum villtum jurtum.

Kortleggja ilmi í íslenskri náttúru

Sonja Bent og Elín Hrund Þor­geirs­dóttir hjá Nordic Angan hafa unnið að rann­sókn­ar­verk­efni sem felur í sér að kort­leggja ilmi í íslenskri nátt­úru með því að eima jurtir.

Elín Hrund Þor­geirs­dóttir og Sonja Bent standa að baki Nordic Angan.

Sonja og Elín Hrund kynnt­ust fyrir nokkrum árum þegar þær voru báðar að selja hönnun sína á pop-up mörk­uðum. Sonja er fata­hönn­uður og hefur starfað sem slíkur und­an­farin fimmtán ár. Í nokkur ár hefur hún hins vegar verið að prófa sig áfram með að eima íslenskar jurtir til ilmol­íu­gerðar. Faðir hennar, hafði mjög gaman af því að eima og stund­aði það mikið, en hann lærði það af þýskum efna­fræð­ingi þegar hann var staddur úti í Noregi í námi.

„Þannig að ég ólst upp við þetta og fannst þetta spenn­andi. Pabbi var alltaf að dunda sér við að búa til styrkt vín og snapsa í frí­tíma sínum. Þó svo að hann hafi verið mest verið að eima vín en ekki jurtir þá eru þetta náskyld ferli. Græjurnar eru líka svip­aðar. Við aðlög­uðum gamlar brugggræjur sem pabbi átti og þær not­aði ég við fyrstu eim­ing­ar­til­raun­irnar. Við próf­uðum okkur svo áfram og fundum út úr því hvernig væri best að gera þetta. Þó þetta hafi byrjað sem skemmti­legt áhuga­mál þá varð ég bara spennt­ari eftir því sem ég eim­aði meira.” Fyrir þremur árum ákvað Sonja loks að stofna nýtt vöru­merki, Nordic Angan, og árið 2015 kom fyrsta kertið hennar á markað.

Elín Hrund er menntuð í heim­speki, hönnun og menn­ing­ar­miðlun og und­an­farin ár hefur hún komið að skipu­lagn­ingu og fram­kvæmd ýmissa hönn­un­ar­verk­efna ásamt því að hanna og mark­aðs­setja eigin vörur. „Við Sonja náðum strax vel saman og urðum góðar vin­konur. Ég vissi að hún væri að vinna með Nordic Angan og fannst það mjög spenn­andi. Fyrir um það bil hálfu ári var verk­efnið farið að verða of stórt fyrir hana eina og því kom upp sú hug­mynd að ég gengi til sam­starfs við hana,” segir Elín Hrund.

„Við aðlög­uðum gamlar brugggræjur sem pabbi átti og þær not­aði ég við fyrstu eim­ing­ar­til­raun­irnar. Við próf­uðum okkur svo áfram og fundum út úr því hvernig væri best að gera þetta. Þó þetta hafi byrjað sem skemmti­legt áhuga­mál þá varð ég bara spennt­ari eftir því sem ég eim­aði meira.”

Sonja vill samt meina að Elín Hrund hafi verið við­riðin verk­efnið mun fyrr. „Ég bar reglu­lega hluti undir hana og hún hlust­aði alltaf á rausið í mér og kom með góð ráð. Hún hefur líka haft áhuga á jurtum nær allt sitt líf. Þannig að við smullum bara saman og þetta sam­starf varð til á mjög líf­rænan hátt.”

Þær koma með ólíka styrk­leika inn í sam­starfið, Sonja er mennt­aður hönn­uður með góðan þekk­ing­ar­grunn, þökk sé allri til­rauna­starf­sem­inni með föður hennar, en Elín Hrund kemur hins vegar úr mark­aðs­málaum­hverfi og þekkir þá hlið mjög vel auk þess að vera líka hönn­uður.

Rigningin helsta hindrunin

Saman mót­uðu Sonja og Elín Hrund rann­sókn­ar­verk­efnið sem þær hafa unnið að. Það gengur út á að safna og skrá ilmol­íur úr íslenskum villtum jurtum og búa þannig til íslenskan ilm­banka. Þær sóttu um styrki til verk­efn­is­ins og fengu úr Hönn­un­ar­sjóði Íslands og frá Atvinnu­málum kvenna.

„Við söfnum olí­unum og skrá­setjum allt ferlið, bæði skrif­lega og með myndum. Helsta hindr­unin hefur verðið vætan og íslensk veðr­átta. Það er ekki gott að tína í rign­ingu, hvort sem það er fyrir eim­ingu eða þurrkun jurta. Jurt­irnar gefa ein­fald­lega ekki jafn­mikið af sér því í rign­ing­unni eru þær að ein­beita sér að því að taka upp vatn og nær­ingu.

Verk­efnið gengur út á að safna og skrá ilmol­íur úr íslenskum villtum jurtum og búa þannig til íslenskan ilm­banka.

Einnig höfum við þurft að glíma við heim­ilda­leysi. Það er ekki mikil ilm­hefð á Íslandi. Jurtir hafa aðal­lega verið að not­aðar í lækn­inga­skyni, í mat­ar­gerð og svo fram­vegis. Þess vegna vantar upp­lýs­ingar, bæði um hvaða jurtir inni­halda ilmol­íur og hvernig sé best að eima þær. Við höfum lent í því að eima jurtir en það kemur engin olía, það er auð­vitað svekkj­andi en hluti af ferl­inu. Þá athugum við hvort það sé hægt að ná ilm­inum með öðrum aðferðum – við gef­umst ekki upp,” segir Elín Hrund.

Þetta er mjög yfir­grips­mikið verk­efni og Sonja segir að það muni kannski aldrei taka enda. „Það eru yfir átta hund­ruð mosa­teg­undir á land­inu, bara svona til dæmis. Þannig að rann­sókn­ar­verk­efnið hefur að mörgu leyti snú­ist um að sigta úr og ákveða hverju við viljum byrja á.”

Í dag eru þær búnar að safna tæp­lega þrjá­tíu ilm­teg­undum og hafa tínt út um allt land. „Sumar jurtir vaxa aðeins í ákveðnum lands­hlutum en ekki í öðrum, eins getur líka verið mik­ill munur á því hversu mikið er af jurt­inni milli lands­hluta. Við reynum að koma á góðum sam­böndum við bændur og land­eig­endur til að fá að koma inn á jarð­irnar þeirra til að tína, eða jafn­vel fá þá til að tína jurtir og selja okkur,” segir Elín Hrund.

„Það er líka mjög mis­mun­andi á hvaða tíma­bilum er best að tína jurtir. Sumar höfum við ekki getað tínt fyrr en núna í ágúst og við munum halda áfram út sept­em­ber. Síðan má ekki gleyma öllum barr­trjánum, en við eigum mjög margar teg­undir þeirra eftir,” bætir Sonja við.

Þær passa að ganga aldrei á nátt­úru lands­ins og hafa meðal ann­ars átt í góðu sam­starfi við Skógrækt Íslands. „Nú eru allt í einu vaxnir upp skógar hér á landi sem þarf að grisja og við­halda þannig að við höfum fengið greinar frá þeim.

Eins með jurtir og blóm þá reynum við að tína bara eins mikið og við þurfum en kannski meira af því sem er mikið af. Ef að planta er sjald­gæf þá er hvort eð er ekki grund­völlur til að nota ilm­inn úr henni í vörur því það er ein­fald­lega ekki nóg af henni.”

Hrein náttúra, hreinn ilmur

Það má segja að Sonja og Elín Hrund séu sann­kall­aðir braut­ryðj­endur. „Það eru auð­vitað mörg snyrti­vöru­fyr­ir­tæki að nota íslenskar lækn­ing­ar­jurtir en nota svo erlendar ilm­kjarna­ol­íur því það hefur ein­fald­lega ekki verið hægt að fá íslenskar. Nú þegar hafa nokkur fyr­ir­tæki haft sam­band við okkur og sýnt áhuga á sam­starfi og við höfum hafið til­rauna­starf með nokkrum þeirra,” segir Sonja.

„Íslensk nátt­úra er enn svo hrein og þar af leið­andi eru olí­urnar líka hreinar og hágæða vörur. Við notum líka hreina íslenska vatnið til að eima á meðan erlendis nota þeir oft klór­vatn.”

Að sögn Elínar hafa íslenskar jurtir ákveðna sér­stöðu og eru að mörgu leyti ólíkar skyldum jurtum erlendis.

Íslenskar jurtir hafa einnig ákveðna sér­stöðu og eru að mörgu leyti ólíkar skyldum jurtum erlendis. „Hér eru auð­vitað líka jurtir sem finn­ast ann­ars staðar í heimnum en flestar eru ólík afbrigði og lyktin af þeim getur verið allt öðru­vísi. Til dæmis er mik­ill munur á íslensku blóð­bergi og timj­ani ann­ars staðar, svo eitt­hvað sé nefnt,” segir Elín Hrund. Það er því ekki að furða að þær hafa fundið fyrir miklum áhuga erlendis frá, til að mynda frá Asíu.

„Við munum svo halda áfram að finna nýjar teg­undir íslensks ilms og prófa okkur áfram að nota þær í vöru­línu okkar. Það er svo margt hægt að gera, ekki bara kerti og reyk­elsi. Ég hef til dæmis séð fyrir mér að búa til ilmol­íur fyrir gufu­böð heilsu­linda. Hversu ynd­is­legt væri að sitja í gufu­baði umlukin angan íslenskrar nátt­úru,” segir Sonja.

„Það er ekki mikil ilm­hefð á Íslandi. Jurtir hafa aðal­lega verið að not­aðar í lækn­inga­skyni, í mat­ar­gerð og svo fram­vegis. Þess vegna vantar upp­lýs­ingar, bæði um hvaða jurtir inni­halda ilmol­íur og hvernig sé best að eima þær.”

„Það er líka annar vink­ill á þessu sem okkur þykir spenn­andi. Skynjun okkar á ilmi er frá­brugðin sjón­skynjun okkar til dæmis. Það er auð­velt að mæla sjón og hvernig við sjáum hluti. Ilmur hins vegar er svo nátengdur til­finn­ingum og minni, og er því í raun sterk­ari en sjónin. Þegar fólk kemur til okkar og þefar af ilmi þá upp­lifir það ilm­teg­undir mjög mis­mun­andi og tengir þær oft við eitt­hvað ákveðið úr sinni for­tíð. Þetta er eitt­hvað sem okkur langar að rann­saka dálítið betur,” bætir Elín Hrund við.

Þær geta þess að þær reyni að setja alltaf myndir og til­kynn­ingar á sam­fé­lags­miðla þegar nýjar jurtir eða nýr ilmur er til­bú­inn. „Það er gaman að sjá að sumir koma aftur og aftur,” segir Sonja að lokum.

Texti / Hildur Frið­riks­dóttir
Myndir / Hákon Davíð Björns­son

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

„Á ég að koma og taka í þig og ríða þér í rassgatið litla tussan þín“
Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Peningar

Samkaup semja um kaup á Fjarð­ar­kaupum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Fólk

Fólk

Fimm hlutir sem geta reynt á sam­bandið þegar mak­inn er með ADHD

Fólk

Keath Ósk slær í gegn á heims­vísu og segir Ísland hafa mótað sköp­un­ina

Viðtal
Fólk

Ekkert minni konur en aðrar konur

Myndir
Fólk

Óvenju­legt sölu­til­boð í Reykja­vík þar sem maka­skipti koma til greina

Fólk

Nabblinn leggur bleyj­una á hill­una

Myndir
Fólk

Sögu­frægt sýslu­manns­setur við sjó­inn komið á sölu