Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Dýrustu hótelherbergi í heimi

Gisti­staðir sem ekki eru á allra færi.

Dýrustu hótelherbergi í heimi

Ferðalög geta verið af ýmsum toga. Margir mikla það ekki fyrir sér að þramma af stað út í óviss­una vopn­aðir bak­poka og láta sér tjald­stæði nægja sem næt­ur­stað meðan aðrir njóta sín betur innan um punt og prjál fínna hót­el­her­bergja. Eft­ir­taldir gisti­staðir eiga það sam­eig­in­legt að vera þeir dýr­ustu í heimi og því ekki á allra færi að spranga þar um innan um marm­ara og einka­þjóna.

The Apart­ment á Hotel Connaught í London
Nóttin á þessu glæsi­lega hót­eli kostar rúma 23.000 doll­ara en einka­þjónn­inn sem fylgir her­berg­inu vílar það ekki fyrir sér að þjóta til Parísar eftir skóp­ari, óski hót­el­gestir eftir slíkri þjón­ustu. Mat­seð­ill­inn er heldur ekki af verri end­anum en hann er hann­aður af Michelin-stjörnu­kokk­inum Helene Darroze. Af hót­els­völ­unum má svo líta Mayfair-hverfið í London.

Einka­þjónn fylgir her­berg­inu á The Apart­ment á Hotel Connaught í London.

________________________________________________________________

The Pres­idential Suite á Hotel Cala di Volpe í Porto Cervo, Ítalíu
Þessi þriggja her­bergja for­seta­svíta kostar um 26.000 doll­ara og í henni er einka­sund­laug, sól­skáli og lík­ams­rækt­ar­að­staða. Hvert þriggja her­bergj­anna hefur sinn eigin heita pott og tvö­falt bað­her­berg­is­borð.

The Pres­idential Suite á Hotel Cala di Volpe í Porto Cervo, Ítalíu

________________________________________________________________

The Shangri-La Suite á Shangri-La Bosphorus í Istanbúl
Útsýnið yfir Istanbúl eitt og sér er vel þess virði að gera sér ferð á þetta stór­feng­lega hótel en nóttin þar nemur um 26.385 doll­urum. Ef útsýnið eitt og sér er ekki nóg er tekið fram að á her­berg­inu sé að finna ófá spegla­sjón­vörp, meðal ann­ars á bað­her­berg­inu.

Á her­berg­inu er að finna ófá spegla­sjón­vörp, meðal ann­ars á bað­her­berg­inu.

________________________________________________________________

The Royal Villa á Grand Resort Lagon­issi í Aþenu
Þetta er fyrrum gisti­staður þeirra Mel Gibsons og Leonardo DiCaprio, þó ekki sömu nótt­ina. Her­bergið hefur að geyma tvö feikna­stór svefn­her­bergi með bað­her­bergjum, gufu­baði, nudd­stofu, heitum potti og geysistórum svölum með útsýni yfir alla strönd­ina auk einka­þjóns að sjálf­sögðu. Her­leg­heitin kosta svo um 35.000 doll­ara.

The Royal Villa á Grand Resort Lagon­issi í Aþenu.

________________________________________________________________

The Hilltop Estate Owner’s Accommodation á Laucala Island Resort á Fídji­eyjum
Þetta óðals­hótel er í eigu orku­drykkja­fram­leið­and­ans Red Bull en hann á jafn­framt alla eyj­una þar sem eru 24 villur. Þessi er þó sú fín­asta og kostar nóttin þar 40.000 doll­ara. Hins vegar er sá galli á gjöf Njarðar að óbreyttir hót­el­gestir geta ekki bókað sér her­bergi heldur fara allar bók­anir fram í gegnum per­sónu­leg sam­bönd. Með hót­el­her­berg­inu fylgir nudd­stofa, einka­kokkur, þjónar og barnapíur en útsýnið er yfir alla eyj­una. Ein­kunn­ar­orð hót­els­ins eru þau að láta ódreymda drauma gesta sinna ræt­ast.

The Hilltop Estate Owner’s Accommodation á Fídji­eyjum.

________________________________________________________________

The Ty Warner Penthouse á Four Seasons í New York
Þetta hæsta hótel New York-borgar var ekki nema sjö ár í bygg­ingu en nótt á dýr­ustu svítu þess nemur um 45.000 doll­urum. Her­bergið hefur sinn eigin einka­dyra­vörð en inni í því má finna veg­legt bóka­safn. Hins vegar mega aðeins þrír gista saman í svít­unni þrátt fyrir að hún sé rúm­góð í meira lagi.

Í svít­unni The Ty Warner Penthouse er meðal ann­ars að finna veg­legt bóka­safn.

________________________________________________________________

The Sky Villa á Palms Resort í Las Vegas

Til þess að kom­ast í þessa svítu þarf einka­lyftu en þar er jafn­framt að finna gufu­bað og að sjálf­sögðu einka­þjón. Nóttin kostar 40.000 doll­ara en her­bergið er oft nefnt í sömu andrá og nafn Hugh Hefners og er að sjálf­sögðu stað­sett í borg ótt­ans, Vegas.

The Sky Villa á Palms Resort í Las Vegas.

________________________________________________________________

The Burj Al Arab í Dubai
Ólíkt flestum hót­elum býður þetta hótel ein­ungis upp á lúx­us­svítur. Allar svít­urnar eru tví­býli og ódýrasta er á 2.000 doll­ara nóttin, dýrasta er hins vegar á 12.000 doll­ara. Gestir hafa aðgang að dýr­ustu bíl­unum og þyrlu­ferðum hvenær sem þeim hugn­ast, auk einka­bíl­stjóra og þjóns.

The Burj Al Arab í Dubai.

________________________________________________________________

The Royal Penthouse Suite á Hotel Pres­ident Wilson í Genf, Sviss
Dýrasta hótel í heimi og jafn­framt einn helsti gisti­staður Bill Gates og Michael Douglas. Örygg­is­kerfið á þess­ari svítu er með því full­komn­asta í heimi en nóttin nemur 60.000 doll­urum.

The Royal Penthouse Suite á Hotel Pres­ident Wilson í Genf, Sviss
Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

„Á ég að koma og taka í þig og ríða þér í rassgatið litla tussan þín“
Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Peningar

Samkaup semja um kaup á Fjarð­ar­kaupum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Fólk

Fólk

Fimm hlutir sem geta reynt á sam­bandið þegar mak­inn er með ADHD

Fólk

Keath Ósk slær í gegn á heims­vísu og segir Ísland hafa mótað sköp­un­ina

Viðtal
Fólk

Ekkert minni konur en aðrar konur

Myndir
Fólk

Óvenju­legt sölu­til­boð í Reykja­vík þar sem maka­skipti koma til greina

Fólk

Nabblinn leggur bleyj­una á hill­una

Myndir
Fólk

Sögu­frægt sýslu­manns­setur við sjó­inn komið á sölu