Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

„Múta verðinum með sígarettupakka“

Ellen Björns­dóttir segir frá upp­á­halds­stöðum sínum á svæð­inu Shanghai.

„Múta verðinum með sígarettupakka“

Ellen Björns­dóttir er heima­vinn­andi hús­móðir í Shanghai en hún er í starfs­leyfi hjá Volvo Truck þar sem hún vinnur í inn­kaupum. Hún hefur búið í Shanghai í næstum fjögur ár ásamt fjöl­skyldu sinni og hund­inum Barney. Við fengum hana til að segja okkur frá upp­á­halds­stöðum sínum á svæð­inu.

„Margir kostir fylgja því að búa í Shanghai ekki síst að upp­lifa menn­ingu sem er ólík öllu sem við erum vön. Við búum í hverfi þar sem fólk alls­staðar að úr heim­inum býr svo núna eigum við vini frá öllum heims­hornum. Við höfum ferð­ast mikið síðan við fluttum hingað, svo­lítið um Kína en mest um alla Asíu,“ segir Ellen. Eig­in­maður hennar heitir Styrmir og þau eiga dæt­urnar Leu, 20 ára, og Sögu, 19 ára og Styrmir á son­inn Davíð, 24 ára.

The Bund
Upp­á­halds­staður minn í Shanghai er The Bund sem liggur við ána Huangpu sem skiptir Shanghai í tvo hluta; Pudong í austri og Puxi í vestri. Ég fæ aldrei nóg af útsýn­inu frá Puxi yfir Huangpu-ána til nýja hverf­is­ins í Pudong og skýja­kljúf­anna. Gaman að ganga að degi til í mann­fjöld­anum sem safn­ast saman með fram ánni og enn betra er að njóta útsýn­is­ins þegar dimmir og ljósin kvikna á turn­unum hinum megin við ána. Á Vue-bar á 32.-33. hæð á Grand Hyatt-hót­el­inu er útsýnið best yfir The Bund á meðan ljósin kvikna.

Yuyuan Garden
Í gamla hverf­inu í Shanghai er Yuyuan Garden, því litla sem enn er til, og er yfir­leitt fullt af ferða­mönnum, mest kín­verskum ann­ars staðar frá Kína en líka vest­rænum. Þar er brúin sem byggð er í sikk sakk til að illir andar nái ekki til þín, en talið er að þeir geti ekki beygt, og svo fal­legir steina­garðar. Ég mæli með því að þið fáið ykkur dumplings að borða í garð­inum og þó að rað­irnar séu oft­ast langar er það vel þess virði. Verið við­búin því að teknar séu myndir af ykkur, gjarnan með Kín­verjum. Skemmti­leg­ast er að fara í kvöld­hjóla­túr um gamla hverfið, múta verð­inum með sígar­ettu­pakka og fá þar af leið­andi að hjóla einn í gegnum mann­lausan garð­inn.

Yuyuan Garden.

Zhujiajiao Ancient Town
Þessi fal­legi vatna­bær er í um það vil 40 mín­útna akst­urs­fjar­lægð frá Shanghai. Þar eru síki og fal­legar brýr en síkin voru hér áður fyrr notuð til að koma varn­ingi á milli staða. Fal­leg­asta brúin heitir Fangs­heng Bridge og hægt er að fara í báts­ferðir um síkin. Gaman er að ganga um gömlu göt­urnar, þarna eru mörg kósí kaffi­hús, barir, ekta kín­verskir veit­inga­staðir og skemmti­leg lítil lista­gall­erí ásamt versl­unum sem selja silki­klúta, silki­sængur og kín­verska minja­gripi svo eitt­hvað sem nefnt. Einnig eru nokkur söfn og skemmti­legir garðar sem gaman er að skoða. Hægt er að kom­ast þangað með rútu frá nokkrum stöðum í Shanghai eða taka leigu­bíl ef maður er til­bú­inn í fjör­tíu mín­útna spenn­andi ferða­lag.

Shanghai World Financial Center
Ein af hæstu bygg­ing­unum í Kína, Shanghai World Financial Center, er í nýja hverf­inu í Pudong nálægt Huangpu-ánni. Í þessum skýja­kljúfi eru hótel, skrif­stofur, veit­inga­staðir, skemmti­staðir og versl­anir. Hægt er að fara með lyftu upp á 97. hæð og njóta þess sem fyrir augum ber frá útsýnis­palli í 474 metra hæð. Skemmti­leg­ast finnst mér að fara á 96. hæð­ina og njóta þess að borða hádeg­is­mat með þessu frá­bæra útsýni. Vanda þarf val á degi því útsýnið er ekki alltaf jafn­gott vegna loft­meng­unar. Þetta er ekki fyrir loft­hrædda.

Sichuan Citizen
Veit­inga­stað­ur­inn Sichuan Citizen er einn af mínum upp­á­halds í Shanghai. Maturinn er frá Sichuan-hér­að­inu og er ekta kín­verskur sterkur matur. Þar er alltaf góð blanda af Kín­verjum og ferða­mönnum og góð stemn­ing. Ein­kenn­is­drykkur stað­ar­ins heitir Basil Drops og þið megið alls ekki láta hann fram hjá ykkur fara. Fólk kemur á þennan stað bara til að fá þennan drykk. Flestir þjón­arnir tala ensku og ef ekki þá sækja þeir ensku­mæl­andi þjón. Stað­ur­inn er í franska hverf­inu svo það er ekki langt í næsta skemmti­lega bar eða kaffi­hús ef fólk vill eiga gott kvöld í Shanghai.

Aðalmynd: Ellen við The Bund.
Texti / Ragn­hildur Aðal­steins­dóttir

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

„Á ég að koma og taka í þig og ríða þér í rassgatið litla tussan þín“
Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Peningar

Samkaup semja um kaup á Fjarð­ar­kaupum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Fólk

Fólk

Fimm hlutir sem geta reynt á sam­bandið þegar mak­inn er með ADHD

Fólk

Keath Ósk slær í gegn á heims­vísu og segir Ísland hafa mótað sköp­un­ina

Viðtal
Fólk

Ekkert minni konur en aðrar konur

Myndir
Fólk

Óvenju­legt sölu­til­boð í Reykja­vík þar sem maka­skipti koma til greina

Fólk

Nabblinn leggur bleyj­una á hill­una

Myndir
Fólk

Sögu­frægt sýslu­manns­setur við sjó­inn komið á sölu