Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Smjúga inn fyrir húðina og snerta hjartað í manni

Ævintýri, ferða­lög og eitt­hvað mat­ar­kyns.

Smjúga inn fyrir húðina og snerta hjartað í manni
My Grand­mother Asked Me to Tell You She’s Sorry eftir Fredrik Backman er fal­leg saga af sam­bandi ömmu við barna­barn sitt.

Smá­mynda­smið­ur­inn eftir Jessie Burton
Þetta er ein þess­ara bóka sem smjúga inn fyrir húð­ina og snerta hjartað í manni. Þegar hin sextán ára gamla Nella kemur til Amster­dam til að hefja nýtt líf sem gift kona eru mót­tök­urnar ekki í neinu sam­ræmi við það sem hún bjóst við. Eitthvað er á seyði í hús­inu sem hún skilur ekki og það er erfitt að taka stjórn­ar­taumana úr höndum systur eig­in­manns hennar og þjón­arnir eru ósvífn­ari en hún á að venj­ast. Eig­in­mað­ur­inn gefur henni skáp sem er eft­ir­mynd húss­ins þeirra og þar fær hún frjálsar hendur með að inn­rétta. Nella leitar til smá­mynda­smiðs til þess en sá virð­ist vita meira um líf hennar en þægi­legt er. Hver eru skila­boð smá­mynda­smiðs­ins, hver er hann og hvers vegna veit hann allt, eru spurn­ingar sem Nella er neydd til að spyrja. Þessi bók er ein­stak­lega vel skrifuð og sumar setn­ingar svo meit­l­aðar að þær verður að lesa aftur og aftur. Hugs­an­lega á þýð­and­inn, Magnea J. Matth­í­as­dóttir sinn þátt í því en að minnsta kosti er þetta bók sem unn­endur fal­legs stíls ættu ekki að láta fram hjá sér fara.

Falleg fantasía eftir Fredrik Backman
My Grand­mother Asked Me to Tell You She’s Sorry eftir Fredrik Backman er fal­leg saga af sam­bandi ömmu við barna­barn sitt. Amman hefur sagt því sögur um ævin­týra­lönd, prinsessur, kónga, skugga og skepnur frá því barnið var lítið en eftir dauða hennar kemur í ljós að fantasí­urnar áttu sér stoð í raun­veru­leik­anum. Litla stúlkan, Elsa, er óvenju greind og fær það hlut­verk að færa öllum í fjöl­býl­is­hús­inu þar sem hún býr bréf frá ömmu þar sem hún biðst fyr­ir­gefn­ingar. Amman var þó ekki völd að sorgum flestra íbú­anna en bréfin hennar verða til þess að hægt verður að byrja að lækna gömul sár. Bókin er dásam­leg blanda af ævin­týrum og raun­veru­leika og ein­stak­lega vel gerðar per­sónur setja sterkan svip á hana. Þessi bók hefur komið út á íslensku og heitir í þýð­ing­unni Amma biður að heilsa.

Vegur vinds­ins eftir Ásu Marín
Afar skemmti­leg ferða­saga um Elísu sem ákveður að ganga Jak­obs­veg­inn eftir að hafa fengið slæmar fréttir. Þrátt fyrir unga kærast­ann sinn og stress­aða for­eldra vill hún vera ein þessar vikur sem gangan tekur. Elísa kynn­ist skraut­legu fólki á leið sinni en lengst af gengur hún ein og kynn­ist sjálfri sér betur. Þetta er veru­lega skemmti­leg bók og vel skrifuð, það er eins og les­and­inn sé sam­ferða Elísu og fari með henni í gegnum súrt og sætt. Fyrsta skáld­saga höf­undar og von­andi ekki sú síð­asta.

Ótrúleg saga Indverja … eftir Per J. And­ers­son
Sönn saga um Indverja sem elti ást­ina sína til Sví­þjóðar. Þetta er ekki bara ferða­saga heldur lýsir hún vel hvernig er að fæð­ast inn í stétt hinna ósnert­an­legu, eins og Píkei, sögu­hetjan. Hann fær að fara í skóla en ekki sitja í sömu stofu og krakk­arnir, heldur úti á ver­önd. Við fæð­ingu sagði stjörnu­spek­ingur þorps­ins að hann myndi gift­ast konu frá öðru landi. Þegar hann hittir hina sænsku Lottu í Nýju Delí er hann orð­inn þekktur götu­lista­maður og verður full­viss um að Lotta sé sú rétta. Verulega skemmti­leg og fróð­leg bók um ást sem sigrar allt.

Eitthvað ofan á brauð eftir Nönnu Rögn­vald­ar­dóttur
Nýjasta bókin hennar Nönnu er bráð­s­niðug, nota­drjúg og gefur hug­myndir. Hversu leiði­gjarnt er ekki að fá sér alltaf það sama ofan á brauðið sitt?
Salöt, sæt­meti, sultur og paté, við­bit og mauk … það er allt þarna, meira að segja lemon curd. Hér eru góðar hug­myndir fyrir þá sem þurfa að taka með sér nesti eða smyrja fyrir börnin, halda sauma­klúbb eða partí. Upp­skriftir eru mið­aðar við kjöt­ætur, græn­kera og allt þar á milli. Þetta er fal­leg bók sem Nanna mynd­skreytir sjálf og að vanda eru upp­skrift­irnar hennar ein­faldar og aðgengi­legar.

Texti / Guðríður Har­alds­dóttir

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Plönturnar fundust í tveimur gróðurkössum í farangursrýminu
Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Peningar

Samkaup semja um kaup á Fjarð­ar­kaupum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Fólk

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Myndir
Fólk

Sögu­frægt sýslu­manns­setur við sjó­inn komið á sölu

Fólk

Fimm hlutir sem geta reynt á sam­bandið þegar mak­inn er með ADHD

Viðtal
Fólk

Ekkert minni konur en aðrar konur

Myndir
Fólk

Óvenju­legt sölu­til­boð í Reykja­vík þar sem maka­skipti koma til greina

Fólk

Nabblinn leggur bleyj­una á hill­una