Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Sex einfaldar leiðir til að bæta líðan þína

Heil­brigður lífs­stíll bygg­ist á góðum venjum sem verða að rútínu.

Sex einfaldar leiðir til að bæta líðan þína
|

Það er þó hæg­ara sagt en gert. Hér eru sex ein­faldar leiðir til að bæta líðan þína og gera líf þitt árang­urs­ríkra og betra.

Farðu snemma á fætur og af stað.

1. Farðu snemma á fætur og af stað
Á morgn­ana erum við orku­mest og athygli okkar er skörpust svo sá tími er til­val­inn til að taka á þeim hlutum sem okkur finnst erf­ið­astir eða krefj­ast meiri vilja­styrks – eins og til dæmis að fara í rækt­ina. Ef þú átt erfitt með að stunda reglu­lega lík­ams­rækt þá gæti það verið vegna þess hvaða tíma dags þú ert að fara. Eftir langan vinnu­dag eru flestir þreyttir og svangir svo það síð­asta sem þá langar að gera er að skella sér út að skokka. Þess vegna er svo gott að fara á morgn­ana fyrir vinnu því þá er það bara búið og margir segj­ast finna aukna orku það sem eftir er dags­ins eftir að hafa byrjað hann á hreyf­ingu.

2. Beislaðu sjálf­stýr­ing­una
Góðir ávanar hafa þann kost að með tím­anum verða þeir sjálf­krafa hluti af rútínu þinni sem þýðir að þú notar minni hug­ar­orku í að fram­kvæma þá. Þannig nær einmitt íþrótta­fólk að halda sér í góðu formi og þjálfun en þetta á ekk­ert síður við okkur meðal­jóna. Það tekur um það bil tutt­ugu og einn dag að venja sig á eitt­hvað nýtt, en getur auð­vitað tekið lengri tíma þannig að það verði okkur eðl­is­lægt. Það þýðir að ef þú átt erfitt með að fá þér ekki sæt­indi seinni­part­inn þá muntu smám saman hætta að hugsa um það og eftir þrjár vikur verður þú jafn­vel alveg laus við löng­un­ina.

3. Skoðaðu góðu ávana þína
Ein besta leiðin til að losa sig við slæma vana er að bæta góðum ávana við þá sem þú þegar hefur. Til dæmis ef þú ert vön að fá þér kaffi­bolla á morgn­ana getur þú tekið upp á því að fá þér grænt te eða heitt vatn með sítrónu. Þá skiptir þú út slæmum vana fyrir góðan. Þar sem þú færð enn þá heitan drykk á morgn­ana er breyt­ingin auð­veld­ari en að hætta bara að drekka kaffið. Síðan getur þú haldið áfram og vanið þig á tíu mín­útur af hug­leiðslu með drykknum. Smám saman verður til keðja af góðum venjum sem er í raun það sem heil­brigður lífs­stíll gengur út á.

4. Skrifaðu hlut­ina niður
Það sem við skrifum niður er oft betur greipt í minni okkar en það sem við hugsum eða heyrum. Við erum öll af vilja gerð að standa okkur en með því að skrifa áætl­anir okkar niður verðum við ósjálfrátt ábyrg­ari gagn­vart þeim og lík­legri til að standa við þær. Þó að tæknin sé til margs góðs þá hefur það ekki sömu áhrif að skrifa hlut­ina niður í snjall­síma eða tölvu. Sestu heldur niður og skrif­aðu slæma ávana niður á blað ásamt því hvernig þú ætlar að losa þig við þá. Hengdu list­ann svo upp þar sem þú sérð hann reglu­lega.

5. Taktu á afsök­un­unum
Það að vera stöðugt að afsaka slæma ávana getur staðið í vegi fyrir því að þú takir upp góða vana í stað­inn. Ef við styðj­umst aftur við dæmið um kaffi­boll­ann, þegar þú vaknar þreytt á morgn­ana eftir erf­iða vinnu­viku þá er auð­velt að rétt­læta fyrir sjálfri sér að þú eigir kaffi­boll­ann skilið og að þú munir halda áfram í bind­ind­inu á morgun. Vandinn er að sá morg­un­dagur kemur aldrei og fyrr en varir ertu byrjuð að drekka kaffi á hverjum morgni aftur. Í stað þess að fara aftur í sama farið getur þú ákveðið að fá þér svart te í þetta skiptið, þannig færðu verð­laun. Sama gildir um lík­ams­rækt­ina, ef þú getur ekki farið klukkan hálf sjö í spinn­ing farðu þá á fætur klukkan hálf átta og farðu út að skokka í hálf­tíma. Þá heldur þú þér við efnið.

6. Sjáðu það fyrir þér
Það er auð­velt að gleyma nýjum venjum og ástæðan fyrir því að það er erfitt að losna við slæma vana er að við erum búin að gera þá aftur og aftur í langan tíma. Til þess að auð­velda sér hlut­ina er hægt að búa til sjón­rænar áminn­ingar. Ef þú vilt venja þig á að nota tann­þráð á morgn­ana settu þá minnismiða á bað­her­berg­is­speg­il­inn. Ef þú vilt fara í rækt­ina á morgn­ana hafðu þá lík­ams­rækt­ar­fötin til­búin við hlið rúms­ins, eða sofðu í þeim – það virkar. Þessar litlu áminn­ingar munu minna þig á van­ann þar til þú þarft ekki lengur á þeim að halda og van­inn er orð­inn hluti af rútín­unni.

Texti / Hildur Frið­riks­dóttir

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Að lokinni fimm vikna þjálfun hafa nemendurnir réttindi til að kafa niður á 30 metra dýpi
Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Peningar

Samkaup semja um kaup á Fjarð­ar­kaupum

Innlent

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina