Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

5 ráð til að gera svefnherbergið meira kósí

Svefn­her­bergið er stað­ur­inn þar sem þú átt að geta slakað á, á leið þinni inn í drauma­landið. Hér eru nokkur ráð um það hvernig hægt er að gera svefn­her­bergið að kósí griða­stað.

5 ráð til að gera svefnherbergið meira kósí

1. Dúnmjúk sæng­ur­föt
Veldu sæng­ina þína og sæng­ur­föt af kost­gæfni og ekki hika við að eyða aðeins meiri pen­ingum til að eign­ast það sem þig langar mest í, svo að ekki sé talað um rúmið sjálft – við verjum jú stórum hluta ævi okkar í svefn­her­berg­inu. Ekkert er ynd­is­legra en að sökkva sér í brjál­æð­is­lega þægi­legt rúm.

2. Rétti ilm­ur­inn
Val á rétta ilm­inum fer eftir smekk hvers og eins en lavender er vin­sælasta ilm­kjarna­ol­ían fyrir slak­andi and­rúms­loft. Hægt er að fá ýmiss­konar sprei eða olíur til að setja beint á kodd­ann en þá þarf að var­ast að setja of mikið. Einnig má kveikja á ilm­kertum og ilmol­íu­brenn­urum en passa að fara að öllu með gát með því að hafa eld­inn í öruggum stjökum á öruggum stöðum, langt frá gard­ínum og værð­ar­voðum, og slökkva áður en farið er að sofa.

3. Motta sem faðmar fæt­urna
Rétt gólf­motta er sann­ar­lega eitt­hvað sem vert er að hugsa út í að fá sér – motta sem faðmar fæt­urna þegar þú stígur fram úr á morgn­ana. Veldu þér til dæmis þykka og grófa flosmottu eða mjúkt lamba­skinn. Að auki eru margs­konar mottur á mark­aðnum og aðal­málið að þér finn­ist mottan passa við annað í her­berg­inu og fílir liti og gerð vel.

4. Málaðu her­bergið
Ekki hika við að mála her­bergið og það er óþarfi að ótt­ast að nota liti. Ef þú velur mjög dökka eða skæra liti getur verið snið­ugt að velja aðeins einn vegg fyrir þann lit en hafa hina vegg­ina hlut­lausa. Djúp­rauður, súkkulaði­brúnn og beislitur gefa til dæmis mjög kósí fíl­ing. Vegg­fóður er líka mikið í tísku núna og ekki vit­laust að fá sér svo­leiðis til að flikka upp á svefn­her­bergið.

5. Rúmteppi
Það er gott að venja sig á að búa um rúmið á morgn­ana því það er svo miklu nota­legra að koma að því þannig þegar maður fer þreyttur að sofa á kvöldin. Þá er ekki verra að eiga fal­legt rúm­teppi sem í senn gerir rúmið snyrti­legt og lífgar upp á her­bergið, hvort sem þú velur teppi í hlut­lausum stíl eða jafn­vel hand­prjónað eða heklað ömmu­teppi úr dúllum.

Texti / Ragn­hildur Aðal­steins­dóttir

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

„Á ég að koma og taka í þig og ríða þér í rassgatið litla tussan þín“
Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Peningar

Samkaup semja um kaup á Fjarð­ar­kaupum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Fólk

Fólk

Fimm hlutir sem geta reynt á sam­bandið þegar mak­inn er með ADHD

Fólk

Keath Ósk slær í gegn á heims­vísu og segir Ísland hafa mótað sköp­un­ina

Viðtal
Fólk

Ekkert minni konur en aðrar konur

Myndir
Fólk

Óvenju­legt sölu­til­boð í Reykja­vík þar sem maka­skipti koma til greina

Fólk

Nabblinn leggur bleyj­una á hill­una

Myndir
Fólk

Sögu­frægt sýslu­manns­setur við sjó­inn komið á sölu