Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

„Ekkert land, engin manneskja, enginn lottóvinningur getur gert þig hamingjusama“

„Mér fannst þetta verk­efni þreyt­andi, en ekki óyf­ir­stíg­an­legt. Ég átti alls ekki von á að heyra að staðan væri orðin veru­lega alvar­leg eftir svona stuttan tíma.“

„Ekkert land, engin manneskja, enginn lottóvinningur getur gert þig hamingjusama“

Síð­ast­liðin tíu ár hefur Súsanna Sif Jóns­dóttir barist við að skapa sér eðli­legt líf. Eftir að hafa flosnað síend­ur­tekið upp úr námi, ýmist vegna eit­ur­lyfja­neyslu eða geð­rænna vanda­mála, sneri hún blað­inu við og hefur verið á beinu braut­inni und­an­farin sex ár en hún útskrif­að­ist sem sjúkra­liði um síð­ustu ára­mót. Í fyrra mætti Súsanna þó óvæntri hindrun þegar hún greind­ist með blóð­krabba­mein. Áskorun sem hún tekst á við með mik­illi  yfir­vegun enda segir hún að eðli­legt líf sé eflaust ekk­ert fyrir sig.

Það sem byrj­aði sem útbrot og kláði á hand­legg var greint sem Non-Hodgkins Lymphoma, sjald­gæft en við­ráð­an­legt krabba­mein.

„Í hvert skipti sem ég spurði var mér sagt að ég þyrfti ekki að hafa áhyggjur af því, að 90% þeirra sem grein­ast á fyrsta stigi færu aldrei yfir á næsta stig og lifðu bara eðli­legu lífi. Það er rétt sam­kvæmt opin­berum tölum, en ég hefði gjarnan viljað vita hvað verður um hin 10%. Ég hefði þá kannski getað und­ir­búið mig betur fyrir það sem kom næst,” segir Súsanna. Meinið stökk­breytt­ist og þá tók við önnur og verri staða.

„Þetta kom eins og þruma úr heið­skíru lofti. Var ég að fara verða sköll­ótta stelpan sem maður sér í bíó­myndum? Náföla, veika stelpan sem kastar bara upp og líður hræði­lega? Nei, það gat ekki verið. Eina sem komst að í huga mér var hvernig ég gæti beðið mömmu að koma með mér án þess að valda henni áhyggjum. Ég vildi ekki að neinn færi fram úr sér áður en allar stað­reyndir væru komnar í ljós og ég yrði að vera til­búin með nokkra jákvæða punkta áður en ég segði henni þetta.“

Við tók með­ferð og Súsanna ákvað að takast á við hlut­ina af yfir­vegun og æðru­leysi.

„Ég var ekki hrædd við stað­reynd­irnar, heldur skort á þeim. Lækn­arnir voru lengi að ræða nið­ur­stöð­urnar og jafn­vel fær­ustu sér­fræð­ingar heims klóra sér enn í höfð­inu vegna ann­arra sam­bæri­legra til­fella. Ég leyfi mér ekki „hvað ef” hugs­anir, enda eru þær til­gangs­lausar og ræt­ast yfr­leitt aldrei. Í stað þeirra ein­beiti ég mér að deg­inum í dag, því það er það eina sem skiptir máli. Að grein­ast með lífsógn­andi sjúk­dóm fær mann svo sann­ar­lega til að end­ur­skoða það sem skiptir máli. Ég er þakk­lát fyrir áminn­ing­una, þó ég óski engum að fá hana á þennan hátt. Ég veit nokkurn veg­inn hvað ég myndi vilja skilja eftir mig, og hvað ekki. Hug­myndir fólks að ham­ingj­unni eru svo mis­jafnar, mörgum dreymir um að eign­ast hús við strönd­ina eða flytja til Frakk­lands. En kunna Frakkar að njóta Eif­felt­urns­ins? Taka Spán­verjar sól­inni sem sjálfs­sögðum hlut? Þegar uppi er staðið þá veltur allt á við­horf­inu og ekk­ert land, engin mann­eskja og eng­inn lottó­vinn­ingur getur gert mann ham­ingju­saman.“

Myndir / Heiðdís Guðbjörg Gunn­ars­dóttir
Förðun / Björg Alfreðs­dóttir

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Plönturnar fundust í tveimur gróðurkössum í farangursrýminu
Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Peningar

Samkaup semja um kaup á Fjarð­ar­kaupum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Var á reist árið 1979
Myndir
Fólk

Sögu­frægt sýslu­manns­setur við sjó­inn komið á sölu

Fólk

Fimm hlutir sem geta reynt á sam­bandið þegar mak­inn er með ADHD

Viðtal
Fólk

Ekkert minni konur en aðrar konur

Myndir
Fólk

Óvenju­legt sölu­til­boð í Reykja­vík þar sem maka­skipti koma til greina

Fólk

Nabblinn leggur bleyj­una á hill­una