Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Líkaminn er gerður til þess að hreyfa sig

Hreiðar Júl­í­us­son á að eigin sögn tvö sjálf, ann­ars vegar sem kvik­mynda­fram­leið­andi en hins vegar sem hlaupa­þjálf­ari. Sjálfin tvö lenda þó sjaldn­ast í úti­stöðum en áhugi Hreiðars á úti­hlaupum kvikn­aði fyrir fimm árum þegar hann gekk til liðs við Skokkhóp Hauka.

Líkaminn er gerður til þess að hreyfa sig
Hreiðar Júl­í­us­son heill­að­ist af hlaupum fyrir nokkrum árum og er nú hlaupa­þjálf­ari hjá Skokk­hópi Hauka í Hafn­ar­firði.

Á dag­inn vinnur Hreiðar við að búa til aug­lýs­ingar, kynn­ingar og annað kvik­myndað efni hjá PIPAR/tbwa sem hann segir skemmti­leg­asta vinnu­stað í heimi. Síðla dags taka svo hlaupin yfir líf hans en hann þjálfar hlaupa­hóp ásamt því að aðstoða hlaupara sem glíma við meiðsl. „Starf mitt sem kvik­mynda­fram­leið­andi er ótrú­lega fjöl­breytt og skemmti­legt. Hitt sjálfið mitt, hlaupa­þjálf­ar­inn varð til fyrir um það bil fimm árum þegar ég mætti á fyrstu æfing­una með Skokk­hópi Hauka. Ég hafði aðeins prófað að hlaupa sjálfur en eftir að hafa mætt á fyrstu æfing­una með hópnum var ekki aftur snúið, ég var kol­fall­inn fyrir sport­inu og hef nú verið aðal­þjálf­ari hóps­ins í rúm­lega ár. Þetta er einn stærsti hlaupa­hópur lands­ins en ég er reyndar líka í hlaupa­hópi PIPAR/tbwa sem hleypur í hádeg­inu tvisvar í viku þegar vel gengur.“

Erf­ið­asta mara­þonið það eft­ir­minni­leg­asta
Hreiðar er vel að sér þegar kemur að hlaupa­greingu en hann sótti meðal ann­ars nám­skeið í London þar sem hann lærði að greina hlaupa­stíl. Hann tekur nú að sér að aðstoða hlaupara sem glíma við meiðsl og skoða hvað betur megi fara til að ná bætt­ari árangri. „Ég hef stúd­erað mikið hlaupa­stíl hjá hlaup­urum og fór á nám­skeið í hlaupa­grein­ingu hjá Kinetic Revolution í London. Sumir hlauparar lenda í því að hafa ekki styrk í ákveðnum vöðvum sem þyrftu að vera sterkir, eða hafa styrk en vera ekki að nota vöðvana. Oft mynd­ast mis­ræmi í styrk hægra og vinstra megin á mjaðma­svæð­inu og svo venur fólk sig á að hlaupa þannig. Þá endar fólk yfir­leitt í meiðslum, jafn­vel ítrekað. Þá er gott að geta komið auga á vanda­málið og leið­beint fólki um styrkta­ræf­ingar eða breyt­ingu á hlaupa­stíl. Það þarf ekki að vera flókið. Það er nefni­lega svo margt sem heillar við hlaupin. Útiveran, félags­skap­ur­inn, áhrifin á and­lega og lík­am­lega líðan en ekki síst það að setja sér lang­tíma­mark­mið og vinna að þeim. Eins og að stefna að ein­hverju keppn­is­hlaupi eftir sex eða tólf mán­uði ann­að­hvort í ein­stakri íslenskri nátt­úru eða ein­hvers staðar erlendis.“

Sjálfur hefur Hreiðar tekið fjórum sinnum þátt í mara­þon­hlaupum erlendis og tvisvar hlaupið Laug­ar­veg­inn sem er 55 kíló­metra langur. Hann segir hlaupin ger­ó­lík í alla staði. „Fyrsta mara­þonið sem ég fór í var upp­haf­lega leiðin frá Mar­at­honas til Aþenu í Grikk­landi, 42,2 kíló­metrar í miklum hita og yfir tölu­verða hækkun, það er lík­leg­asta erf­ið­asta mara­þonið mitt en líka það eft­ir­minni­leg­asta. Reyndar fannst mér Berlín­ar­m­ara­þon líka alveg gjör­sam­lega frá­bært. Að hlaupa Lauga­veg­inn er allt öðru­vísi, und­ir­bún­ing­ur­inn er lengri og reynir á annan hátt á styrk hlaupara. Upp­lifunin er hreint ótrú­leg, lands­lagið og nátt­úran, allir hinir hlaupararnir sem maður hittir á leið­inni, allt þetta springur út í ham­ingju­bombu inn í Þórsmörk þegar manni er fagnað í mark­inu, ólýs­an­legt.“

Það er ofsa­lega auð­velt að byrja í hlaupa­hóp. Flestir hópar eru með nýliða­nám­skeið á vorin og er það mjög sniðug leið til að byrja, sér­stak­lega fyrir þá sem eru alveg á byrj­un­ar­reit.

Skórnir skipta öllu máli
Þegar Hreiðar er spurður hvað óvanir hlauparar ættu að hafa í huga segir hann hlaupa­skóna gegna gríð­ar­lega mik­il­vægu hlut­verki og best sé að leita ráða hjá fag­fólki „Fólki þarf að líða vel í skónum og hafa ber í huga að gæði demp­unar í hlaupa­skóm rýrna mjög eftir um það bil tvö ár, einnig ef þeir eru nýttir til dag­legra nota. Léttur þægi­legur hlaupa­fatanður sem hentar veðri hverju sinni er eig­in­lega nauð­syn­legur og gerir upp­lifun­ina mun betri.

Það er ofsa­lega auð­velt að byrja í hlaupa­hóp. Flestir hópar eru með nýliða­nám­skeið á vorin og er það mjög sniðug leið til að byrja, sér­stak­lega fyrir þá sem eru alveg á byrj­un­ar­reit. Almennt mæli ég með að fólk finni sér hlaupa­hóp í næsta nágrenni. Þá er stutt að fara á æfingar og að auki kynn­ist maður fólk­inu í nærum­hverf­inu og teng­ist betur inn í sam­fé­lagið. En yfir­leitt snýst þetta bara um að finna hóp og mæta í hlaupa­gall­anum. Allir hlaupa­hópar sem ég þekki eru með alls­konar fólk á öllum aldri, hæga hlaupara og hraða. En það skiptir ekki máli því hver og einn fer á sínum hraða, flestir finna fljótt ein­hvern sam­bæri­legan félaga til að hlaupa með.“

Þegar talið berst að áhættum þess sem felst í hlaupum segir Hreiðar fólk vissu­lega mis­jafnt af guði gert en hreyf­ing sé flestum eðl­is­læg. „Að mínu mati er hollt að hlaupa en auð­vitað eru ein­hverjir sem eru sér­lega við­kvæmir. Líkaminn er þó gerður til þess að hreyfa sig, ganga og hlaupa. Aðal­málið er að fara var­lega af stað, reyndar mjög var­lega. Þetta snýst allt um að venja lík­amann við nýtt álag og það tekur nokkuð langan tíma fyrir stoð­kerfið að vera til­búið í mikil hlaup. Þolið og styrk­ur­inn er hins vegar oft­ast fljótt að aukast og þá skap­ast vanda­mál. Allt í einu hef­urðu getu til að hlaupa meira og hraðar en stoð­kerfið segir nei. En ef var­lega er farið þá má búast við að úthald og styrkur auk­ist, aukakílóum fækki, bein­þéttni bæt­ist, almenn hreysti auk­ist og and­leg líðan verði betri.“

„Ég er hlynntur því að hver æfing hafi sinn til­gang og mark­mið og því nauð­syn­legt að gera æfing­arnar eins vel og hægt er og á réttum hraða en það lærist fljótt. Til við­bótar góðum hlaupa­æf­ingum er líka algjör­lega nauð­syn­legt að gera styrkta­ræf­ingar jafn­hliða hlaup­unum en það hjálpar gríð­ar­lega við að kom­ast hjá meiðslum og ná meiri árangri.“

Lengsta og hæg­asta hlaupið tekið um helgar
Hreiðar segir að flestir sem æfi lang­hlaup blandi saman mis­mun­andi æfingum. „Algengt er að taka þrjár lykilæf­ingar í hverri viku, end­ur­teknir stuttir sprettir með hvíld á milli, langir sprettir á þægi­lega erf­iðum hraða eða svo­kall­aðir tempókaflar, svo taka flestir lengsta og hæg­asta hlaup vik­unnar um helgar. Ég er hlynntur því að hver æfing hafi sinn til­gang og mark­mið og því nauð­syn­legt að gera æfing­arnar eins vel og hægt er og á réttum hraða en það lærist fljótt. Til við­bótar góðum hlaupa­æf­ingum er líka algjör­lega nauð­syn­legt að gera styrkta­ræf­ingar jafn­hliða hlaup­unum en það hjálpar gríð­ar­lega við að kom­ast hjá meiðslum og ná meiri árangri.“

Margir bera fyrir sig veð­ur­hræðslu þegar til stendur að fara út að skokka en Hreiðar segir að sjaldan sé veður of vont fyrir úti­hlaup. „Ég neita því ekki að fal­legt og milt vor eða haust­veður er mitt upp­á­hald. Ekki of heitt en birtan samt svo fal­leg. Annars líður mér vel að hlaupa í öllum veðrum og nokkrar af eft­ir­minni­leg­ustu hlaupa­æf­ing­unum mínum eru í veð­ur­ham þar sem fólki er ráð­lagt að halda sig inn­an­dyra. Það er mikil aukn­ing í þessu sporti en við hjá Skokkhóp Hauka höfum tekið eftir gríð­ar­legum áhuga nýliða þetta árið, það mæta ofsa­lega margir á æfingar enda er félags­skap­ur­inn frá­bær. Í ár er ég svo að æfa fyrir Lauga­vegs­hlaupið í þriðja sinn en eftir það hefst und­ir­bún­ingur fyrir Munchen Maraþon. Þangað er skokk­hóp­ur­inn minn að fara í októ­ber, nærri hund­rað manns. Nýlega er Hvíta­sunnu­hlaupi Hauka lokið en það fór fram 21. maí síð­ast­lið­inn og heppn­að­ist frá­bær­lega. Aldrei hafa fleiri tekið þátt og fjögur braut­ar­met féllu. Við höfum lagt okkur fram um að búa til frá­bæra stemn­ingu og hafa glæsi­lega umgjörð sem hæfir ein­stakri nátt­úr­unni í upp­landi Hafn­ar­fjarðar.“

Texti / Íris Hauks­dóttir.
Mynd / Ragn­hildur Aðal­steins­dóttir

Viðtalið birt­ist í 19. tbl Vikunnar.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

„Á ég að koma og taka í þig og ríða þér í rassgatið litla tussan þín“
Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Peningar

Samkaup semja um kaup á Fjarð­ar­kaupum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Fólk

Fólk

Fimm hlutir sem geta reynt á sam­bandið þegar mak­inn er með ADHD

Fólk

Keath Ósk slær í gegn á heims­vísu og segir Ísland hafa mótað sköp­un­ina

Viðtal
Fólk

Ekkert minni konur en aðrar konur

Myndir
Fólk

Óvenju­legt sölu­til­boð í Reykja­vík þar sem maka­skipti koma til greina

Fólk

Nabblinn leggur bleyj­una á hill­una

Myndir
Fólk

Sögu­frægt sýslu­manns­setur við sjó­inn komið á sölu