Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Fótunum kippt undan fjölskyldunni

Val­gerður Sig­urð­ar­dóttir skipar þriðja sætið á lista sjálf­stæð­is­manna í Reykja­vík. Hún hefur ekki tekið beinan þátt í stjórn­málum áður og því er þessi vett­vangur nýr fyrir henni. Síðustu vikur og mán­uðir hjá Valgerði hafa ein­kennst af póli­tík, veik­indum og aðlögun að breyttum starfs­vett­vangi, en dag­inn eftir að hún þáði sæti á fram­boðs­list­anum fékk mað­ur­inn hennar alvar­lega heila­blæð­ingu.

Fótunum kippt undan fjölskyldunni

Val­gerður er fædd og upp­alin á Höfn í Horna­firði en flutti til Reykja­víkur til að fara í háskóla­nám. Hún bjó víða á höf­uð­borg­ar­svæð­inu en seg­ist ekki hafa fest almenni­lega rætur fyrr en hún flutti í Graf­ar­vog­inn fyrir 14 árum. Nándin við nátt­úr­una og sam­heldið sam­fé­lagið fékk hana til að finn­ast eins og hún væri komin heim. Val­gerður er gift Steini Sig­urðs­syni og sam­tals eiga þau þrjú börn.

„Við erum mjög sam­heldin og sam­stiga fjöl­skylda. Það skýrist eflaust af hluta til af því að við höfum ekki ömmur og afa í Reykja­vík til þess að skjót­ast í mat til eða passa. Við eigum marga frá­bæra vini sem að við erum dug­leg að hitta og gera skemmti­lega hluti með. Ég er í frá­bærum hlaupa­hópi hérna í Graf­ar­vogi, kannski aðeins slegið slöku við síð­ustu vikur en von­andi get ég farið að sýna mig meira eftir kosn­ingar. Svo er auð­vitað frá­bært að skella sér í Egils­höll­ina í hot yoga, það er góð slökun og núvit­und. Við fjöl­skyldan erum dug­leg að nýta okkur allt það sem Graf­ar­vog­ur­inn og næsta umhverfi býður upp á. Nálægðin við nátt­úr­una er samt lyk­il­at­riði.“ segir Val­gerður.

Aðspurð hvernig það hafi komið til að hún tók þá ákvörðun að fara í fram­boð, svarar Val­gerður að hún hafi lengi látið mál­efni og hags­muni Graf­ar­vogs sig varða.„Mér er mjög umhugað um góða þjón­ustu og er oft hissa á af hverju ekki er hægt að veita grunn­þjón­ustu er sveit­ar­fé­lag­inu ber að veita skamm­laust. Að það sé eins og að vinna í lottó að koma barn­inu sínu að hjá dag­for­eldrum eða leik­skólum. Það er alger­lega galið að árið 2018 þurfum við að vera að kjósa um þá grunn­þjón­ustu er sveit­ar­fé­lag­inu ber skylda til þess að veita. Ég sá að Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn var að aug­lýsa eftir fólki á lista og þar sem ég er mikil sjálf­stæð­is­kona ákvað ég að ger­ast svo djörf að standa upp úr sóf­anum, hætta að tuða heima hjá mér og gefa kost á mér á lista. Þetta gerði ég án þess að hafa bak­land í flokknum. Það var því óvænt ánægja að fá sím­tal frá kjör­nefnd þar sem ég var boðuð á fund og nið­ur­staðan var sú að ég var sett í þriðja sætið.“

Ég var auð­vitað him­in­lif­andi með það traust sem mér var sýnt og er mjög spennt fyrir því að stíga inn á þennan nýja vett­vang.“

Símtalið sem allir óttast að fá

Fótunum var hins vegar kippt skyndi­lega undan Valgerði og fjöl­skyldu, þegar Steini veikt­ist óvænt í febr­úar og setti það lífið í annað takt.

„Þann 20. febr­úar, dag­inn eftir að ég hafði þegið 3. sæti Sjálf­stæð­is­flokks­ins í kom­andi borg­ar­stjórn­ar­kosn­ingum, kom sím­talið sem eng­inn vill fá en allir ótt­ast að fá. Sam­starfs­kona Steina hringir í mig um tvö leytið eftir hádegi og segir mér að hann hafi hnigið niður í vinn­unni og það sé verið að flytja hann á Borg­ar­spít­al­ann. Ég rauk úr vinnu, leiðin frá Borg­ar­túni niður á Borg­ar­spít­ala í Fossvogi virt­ist óra­löng og ótal hugs­anir flugu í gegnum huga mér. Það eina sem ég vissi var að hann var mjög kval­inn en með með­vit­und,“ segir Val­gerður þegar hún rifjar upp þennan örlaga­ríka dag.

Ég fyllt­ist ein­hverri óbilandi trú um að þetta myndi fara vel. Ég trúði því ekki að Steini minn færi frá mér þegar það væri svona fal­legur dagur.

Þegar Val­gerður kom niður á bráða­mót­töku var henni greint frá því að stór æð hefði sprungið í höfð­inu á Steina og það væri tví­sýnt með lífslíkur. Hún seg­ist strax hafa fengið óað­finn­an­lega þjón­ustu, hafi upp­lifað alúð og nær­gætni frá starfs­fólki og fengið að spyrja spurn­inga. „Ég fyllt­ist ofsa­hræðslu í fyrstu. Steini var á leið í aðgerð og samt hélt lífið áfram fyrir utan spít­al­ann. Skóla­degi barn­anna var brátt að ljúka og ljóst að ég var ekk­ert á heim­leið næsta sól­ar­hring­inn. Vin­kon­urnar og fjöl­skyldan var ræst út og þau gættu þess að ég þyrfti ekki að hugsa um neitt utan veggja spít­al­ans. Ómet­an­legt en samt var það þeim svo sjálf­sagt. Á meðan aðgerðin fór fram sat ég frammi á gangi og beið í von og ótta. Allt í einu braust sólin fram úr skýj­unum og inn um glugg­ann þar sem ég sat og svo fór að snjóa, ekta jóla­snjó. Ég fyllt­ist ein­hverri óbilandi trú um að þetta myndi fara vel. Ég trúði því ekki að Steini minn færi frá mér þegar það væri svona fal­legur dagur.“

Að aðgerð lok­inni var Valgerði til­kynnt að Steini væri ekki með mátt vinstra megin í lík­am­anum en næsta dag sást að hann væri að koma til baka. Lækn­arnir full­vissuðu hana um að Steini myndi ná sér að fullu en fram undan væri langt bata­ferli. Honum var haldið sof­andi en Val­gerður að segir það hafa verið dásam­lega stund þegar hann vakn­aði á þriðja degi. „Sú stað­reynd að hann væri á lífi voru góðar fréttir og annað skipti mig ekki máli á þessum tíma­punkti. Í dag sjáum við fram á bjarta fram­tíð. Bata­ferlið hefur verið undra­vert, Steini glímir í dag við eft­ir­köst af veik­ind­unum og á að taka það rólega fram á haust. En við erum þakk­lát fyrir að hafa hann hjá okkur.“

Þetta er aðeins brot úr við­tal­inu við Valgerði. Viðtalið í heild má nálg­ast í nýjasta tölu­blaði Vikunnar. 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Plönturnar fundust í tveimur gróðurkössum í farangursrýminu
Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Peningar

Samkaup semja um kaup á Fjarð­ar­kaupum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Var á reist árið 1979
Myndir
Fólk

Sögu­frægt sýslu­manns­setur við sjó­inn komið á sölu

Fólk

Fimm hlutir sem geta reynt á sam­bandið þegar mak­inn er með ADHD

Viðtal
Fólk

Ekkert minni konur en aðrar konur

Myndir
Fólk

Óvenju­legt sölu­til­boð í Reykja­vík þar sem maka­skipti koma til greina

Fólk

Nabblinn leggur bleyj­una á hill­una