Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Elskar að sjá fólk uppgvöta lífsgæði sín

Vignir Þór Bollason er 27 ára gam­all Hafn­firð­ingur. Hann hefur getið sér gott orð­spor sem kírópraktor en hann starfar á Kíróprakt­or­stöð Reykja­víkur. Vignir er sá eini á land­inu sem hefur lokið þjálfun í svo­kall­að­ari Webster-tækni, sem er sér­hæfð með­ferð fyrir óléttar konur. Við­skipta­vinir hans hafa náð undra­verðum árangri, en sjálfur segir Vignir starf sitt fyrst og fremst fel­ast í því að hjálpa öðrum að öðl­ast aukin lífs­gæði.

Elskar að sjá fólk uppgvöta lífsgæði sín

Sjálfur var Vignir mikið inni á spít­ala sem barn vegna litn­ingagalla sem þurfti að fylgj­ast náið með. Í páska­fríi á Orlando með fjöl­skyld­unni árið 2006 má segja að áhugi hans á kíróprakt­or­lækn­ingum hafi kviknað. „Við fjöl­skyldan fórum einn dag­inn að hitta vin pabba míns, Berg Kon­ráðs­son kírópraktor, sem staddur var í Orlando á þessum tíma. Bergur tók eftir því hvað ég var með mikla skekkju í mjaðma­grind­inni og hryggnum og fór að spyrja pabba út í það. Þá fór pabbi að segja honum frá þessum sjald­gæfa litn­ing­argalla sem orsak­aði það að hægri fót­ur­inn væri næstum því 4 cm styttri en sá vinstri. Þarna var ég 15 ára gam­all og sam­kvæmt bein­ald­urs­mæl­ingu á línu­riti yfir hæð drengja á þessum aldri var ég langt undir með­al­tali. Lækn­arnir mínir voru farnir að tala um að senda mig í aðgerð til að skemma vaxt­ar­lín­una í vinstra hné og þannig leið­rétta þennan lengd­ar­mun. Bergur sann­færði pabba um að fara með mig í tíma til hans, og ég er mjög þakk­látur fyrir það. Með­ferðin hjá honum hjálp­aði mér mikið varð­andi sárs­auka og þrá­lát meiðsli tengd því að vera með svona mikið styttri fót­legg. For­eldrar mínir ákváðu að bíða með aðgerð­ina og ég er þeim einnig mjög þakk­látur fyrir þá ákvörðun. Í dag er ég 180 cm á hæð og væri því kom­inn með að lág­marki 7 cm styttri vinstri fót­legg en hægri. Þannig að það má segja að út frá per­sónu­legri reynslu minni af kírópraktík hafi áhug­inn kviknað,“ segir hann.

Sérhæfir sig í meðferðum barna og óléttra kvenna

Í des­em­ber 2015 útskrif­að­ist Vignir frá Life Uni­versity með BS í líf­fræði sem hann tók sam­hliða dokt­ors­gráðu í kírópraktík. Áhugi Vignis á að vinna með börnum var mik­ill og hann tók auka­á­fanga sem í boði voru um með­höndlun barna. „Börn eru æðis­leg, þau segja hlut­ina eins og þeir eru og ef þau eru ekki byrjuð að tala er auð­velt að lesa í við­brögð þeirra, ef maður veit hvað maður er að gera. Út frá því sótt­ist ég svo eftir að taka verk­námið mitt á stofu sem gerði út á með­höndlun barna og fjöl­skyldu­fólks. Þar byrj­aði ég að læra mikið inn á Webster-tækn­ina og með­göng­una og hversu mik­il­væg tæknin væri upp á fyrstu ár barns­ins. Það sem heill­aði mig var að fylgj­ast með kíróprakt­ornum sem ég var í verk­námi hjá og að sjá hvað kírópraktík gat mikið auð­veldað dag­legt líf kvenna á með­göngu. Ekki síst heill­aði það mig að þegar kon­urnar voru búnar að eiga og sögðu okkur frá fæð­ing­unni, hvað allt hefði gengið vel og barn­inu vegn­aði vel.“

Webster-tæknin sem Vignir ræðir um er kírópraktísk aðferða­fræði sem felst aðal­lega í því að koma á jafn­vægi í liða­mótum og lið­böndum sem tengj­ast í mjaðma­grind­ina. Aðferðin miðar sér­stak­lega að lík­ama kvenna á með­göngu og þeim breyt­ingum sem verða í stoð­kerf­inu. Webster-tæknin hjálpar til við að koma í veg fyrir og minnka verki, og stuðlar að því að með­gangan og fæð­ingin gangi eins vel fyrir sig og hægt er. „Ég gleymi ekki fyrsta skipt­inu sem kona kom til mín nokkrum vikum eftir fæð­ingu og þakk­aði mér fyrir hvað ég hafði gert fyrir hana. Hún hafði eign­ast eitt barn áður og sú með­ganga verið erfið vegna verkja og að fæð­ingin hafi verið mjög löng og erfið. Hún sagði svo að þessi með­ganga og fæð­ing hefði gengið eins og í sögu. Það sem var þó skemmti­leg­ast að heyra var að frá og með fyrsta tím­anum hennar hjá okkur hafi hún strax fundið mik­inn mun og að hún vildi að hún hefði komið í með­höndlun á fyrri með­göngu. Þá fyrst fékk ég þá til­finn­ingu að mig lang­aði að með­höndla konur á með­göngu og byrja þar að hafa jákvæð áhrif á líf barna þeirra,“ segir hann.

Eins og gefur að skilja eru óléttar konur og börn stór hluti af skjól­stæð­ingum Vignis. „Ég hef fengið til mín mörg börn með alls konar vanda­mál og sum hver kannski ekki beint algeng, eins og erf­ið­leikar með að koma frá sér hægðum, svefn­vanda­mál, eyrna­vanda­mál, föst í háls­inum eftir erf­iða fæð­ingu og erf­ið­leika með að skríða og ganga, svo eitt­hvað sé nefnt. Hjá óléttum konum eru það aðal­lega verkir tengdir með­göngu, eins og grind­ar­gliðnun, verkir í mjó­baki og seyð­ings­verkur niður í fæt­urna og fleira.“

Margir smeykir við það sem þeir hafa ekki prófað

Tækni­þró­un­ina segir Vignir hafa mikil áhrif á stoð­kerfi fólks, einna helst á hryggjar­lið­ina í háls­inum. „Af þeim röntgen­myndum sem ég tek af hryggjar­lið­unum í háls­inum sýna lang­flestar þeirra öfuga kúrvu/sveigju (miðað við það sem hún á að vera) í háls­inum. Þetta getur valdið ýmsum ein­kennum, eins og vöðva­bólgu, höf­uð­verkjum, verkjum í hálsi, herðum og öxlum. Allt eru þetta ein­kenni sem ég sé mjög reglu­lega og eru oft rekj­an­leg til slæmrar stöðu á kúrvunni. Hægt er að koma í veg fyrir þetta með með­ferð hjá kírópraktor og reglu­legu við­haldi. Við finnum nefni­lega ekki fyrir þessum breyt­ingum í kúrvunni fyrr en verkirnir byrja, en þá hefur vanda­málið oft verið að þró­ast í ein­hver ár. Ég sé alveg ótrú­lega mikið af þessu hjá ungu fólki í dag og það er ótrú­legt að heyra for­eldra segja frá því hvað börn þeirra kvarti oft undan tíðum höf­uð­verkjum og verkjum í hálsi. En að sama skapi er mjög jákvæð breyt­ing í gangi þar sem sífellt fleiri eru farnir að koma með börnin sín eða koma sjálfir til kíróprakt­ors og láta kíkja á þetta vanda­mál frekar en að bíða eftir því að vanda­málið verði alvar­legra. Verst finnst mér þó að sjá ungt fólk sem er byrjað að þróa með sér brjó­skeyð­ingu vegna auk­ins álags á hryggjar­lið­ina út frá slæmri stöðu á kúrvunni í háls­inum. Því með áfram­hald­andi brjó­skeyð­ingu endar það oft­ast með skurð­að­gerð til að reyna að laga það sem hægt er að laga. Þá erum við að tala um fólk sem hefur lengi verið með verki og ekki gert nægar ráð­staf­anir til að koma í veg fyrir að vanda­málið verði alvar­legra. Ég hvet því til þess að fólk láti athuga með hrygg­inn á sér hjá kírópraktor og komi í veg fyrir að þetta áger­ist. Við eigum bara einn hrygg og það er ekki hægt að skipta honum út fyrir nýjan.“

/Ítarlegt við­tal við Vigni Þór má nálg­ast í nýjasta tölu­blaði Vikunnar. 

Myndir: Heiðdís Guðbjörg Gunn­ars­dóttir

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

„Á ég að koma og taka í þig og ríða þér í rassgatið litla tussan þín“
Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Peningar

Samkaup semja um kaup á Fjarð­ar­kaupum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Fólk

Fólk

Fimm hlutir sem geta reynt á sam­bandið þegar mak­inn er með ADHD

Fólk

Keath Ósk slær í gegn á heims­vísu og segir Ísland hafa mótað sköp­un­ina

Viðtal
Fólk

Ekkert minni konur en aðrar konur

Myndir
Fólk

Óvenju­legt sölu­til­boð í Reykja­vík þar sem maka­skipti koma til greina

Fólk

Nabblinn leggur bleyj­una á hill­una

Myndir
Fólk

Sögu­frægt sýslu­manns­setur við sjó­inn komið á sölu