Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Ævintýri á Jónsmessunótt

Þrátt fyrir við­var­andi sól­skins­skort er sum­arið víst komið og gott betur en það. Mið­sum­ars­há­tíðir njóta mik­illa vin­sælda á Norð­ur­löndum en hér á landi eru ýmsar yfir­nátt­úru­legar verur tengdar sól­stöðum. Á aðfara­nótt Jóns­messu, þann 24. júní, er mælt með því að velta sér upp úr dögg­inni og jafn­vel talið að dýr geti talað.

Ævintýri á Jónsmessunótt

Hug­myndin um Jóns­messu­nótt er í augum margra sveipuð róm­an­tískum bjarma sem eflaust á rætur sínar að rekja til skáld­sögu Williams Shakespe­are um Draum á Jóns­messu (e. A Midsum­mer Night´s Dream). Þar má sjá flóru fjöl­breyttra per­sóna skipta um ham þessa dul­ar­fullu nótt og væg­ast sagt und­ar­lega atburða­rás eiga sér stað þar sem ólík­leg­ustu fyr­ir­bæri fella hugi saman.

Ástin er blind á augum, skyggn í hjarta, svo Amor sjón­laus þenur væng­inn bjarta; á vizku og táli veit hann aldrei skil, og vængjuð blinda þýtur háskans til.

Bók­menntaunn­endur, ólækn­andi róm­an­tíkusar og aðdá­endur sög­unnar þurfa þó ekki að bíða lengi því til stendur að setja verkið upp í Þjóð­leik­hús­inu á kom­andi leik­ári.

Hefð­irnar ekki sér­ís­lenskar
Margir halda að mýtur tengdar Jóns­messu­nótt séu sér­ís­lenskar en svo er ekki. Hug­myndin um að dýr tali manna­mál þessa nótt, eða að selir kasti ham sínum þekk­ist víða ann­ars staðar. Ein algeng­asta kenn­ing tengd þess­ari goð­sagna­kenndu nóttu er tengd lækn­ing­ar­mætti dagg­ar­innar og hafa eflaust margir látið á hana reyna. Talið er að döggin á Jóns­messu­nótt sé svo heil­næm að hún geti læknað kláða ásamt öðrum húð­meinum en lækn­ing á að fel­ast í því að láta dögg­ina þorna af sjálfri sér á nöktum lík­am­anum. Eins er sú trú að þessa nótt sé hægt að finna nátt­úru­steina með töfra­mátt, svo­kall­aða lausn­ar­steina til að hjálpa bæði konum og kúm. Sagan segir jafn­framt að á Baulut­indi sé tjörn og í henni sé að finna óska­stein. Sá sem nær í stein­inn á að fá óskir sínar upp­fylltar, en aðeins þessa einu nótt.
Hún er jafn­framt lang­líf sú trú að skil milli heima séu minni á Jóns­messu­nótt en aðrar nætur og því séu auknar líkur á að hitta fyrir hverskyns hand­an­heims­verur. Púkar, nornir og draugar njóta því mik­illar hylli ásamt öðrum yfir­nátt­úru­legum verum sem óhjá­kvæmi­lega tengj­ast nótt­inni, en bæði nú og þá tíðkast víða að halda veislur, brennur og dans­leiki á þessum degi.

Svíar skemmta sér fram undir morgun
Ísland hefur þó ekki tærnar þar sem Svíþjóð hefur hæl­ana í þessum efnum því þrátt fyrir að þjóð­há­tíð­ar­dagur Svía sé aðeins tæpum tveimur vikum áður er mið­sum­ars­há­tíðin (e. midsomer) þekktasta hefð lands­ins. Hátíðin er ekki bundin við aðfara­nótt 24. júní eins og hér heima heldur er hún alltaf haldin um helgi og flakkar á milli dag­anna 19. til 25. júní. Börn eru þá komin í sum­ar­frí og flest fjöl­skyldu­fólk farið í sitt staðl­aða fimm vikna sum­ar­frí.
Vinir og ætt­ingjar safn­ast saman og fagna sumr­inu en margir sækja í sveita­sæl­una enda er hvergi betra að koma saman en í grænni nátt­úr­unni. Hátíðin fer að sjálf­sögðu fram undir berum himni þar sem sum­ar­kvöldin eru aldrei lengri eða feg­urri en á þessum árs­tíma.

Ströng hefð ríkir um hátíð­ina og óhætt að segja hana sveip­aða nostal­gískum ljóma. Um hana ríkja ákveðnar reglur sem nær óhjá­kvæmi­legt er að brjóta en mat­seð­ill­inn er til að mynda ein þeirra órjúf­an­legu hefða sem margir tengja við þennan tíma árs.

Mið­sum­ars­há­tíð­ar­mat­seð­ill­inn inni­heldur nær und­an­tekn­inga­laust lax í ýmsum útfærslum ásamt soðnum kart­öflum með fersku dilli og sýrðum rjóma. Eft­ir­rétt­ur­inn er jafn­framt ófrá­víkj­an­lega fyrsta upp­skera sum­ars­ins af jarð­ar­berjum, bornum fram með þeyttum rjóma. Með veislu­höld­unum drekka hátíð­ar­gestir bjór en í hvert sinn sem glasið er fyllt á ný bresta veislu­gestir í til­heyr­andi þjóð­há­tíð­ar­söngva. Eftir mat er slegið upp dans­gólfi upp á gamla mát­ann þar sem ungir sem aldnir skemmta sér saman.
Blóm leika mik­il­vægt hlut­verk í borð­skreyt­ingum en kven­kyns­gestir bera jafn­framt blómakransa á höfði.

Samkvæmt alda­fornum hefðum tína ógiftar konur svo sjö mis­mun­andi blóma­teg­undir með sér í krans á leið­inni heim og leggja undir kodd­ann sinn. Um nótt­ina á þeim svo að birt­ast í draumi sá maður sem síðar verður þeirra eig­in­maður.

Nóttin fyrir Jóns­messu er því töfr­andi tími, einkum og sér í lagi í róm­an­tískum skiln­ingi því sam­kvæmt Svíum kemur sann­leik­ur­inn sífellt betur í ljós eftir því sem bjór­glösum mið­sum­ars­há­tíð­ar­innar fjölgar. Sann­leik­ur­inn getur svo ýmist leitt til hjóna­bands eða skiln­aðar. Hvað sem því líður er þessi árs­tími einkar vin­sæll fyrir brúð­kaup og önnur hátíð­ar­höld.

Greinin birt­ist í 24. tbl Vikunnar.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

„Á ég að koma og taka í þig og ríða þér í rassgatið litla tussan þín“
Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Peningar

Samkaup semja um kaup á Fjarð­ar­kaupum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Fólk

Fólk

Fimm hlutir sem geta reynt á sam­bandið þegar mak­inn er með ADHD

Fólk

Keath Ósk slær í gegn á heims­vísu og segir Ísland hafa mótað sköp­un­ina

Viðtal
Fólk

Ekkert minni konur en aðrar konur

Myndir
Fólk

Óvenju­legt sölu­til­boð í Reykja­vík þar sem maka­skipti koma til greina

Fólk

Nabblinn leggur bleyj­una á hill­una

Myndir
Fólk

Sögu­frægt sýslu­manns­setur við sjó­inn komið á sölu