Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

„Ekkert til í okkar orðabók sem heitir stöðnun.“

Íslenskt áhuga­fólk um förðun ætti að kann­ast vel við Sig­ur­laugu Dröfn Bjarna­dóttur og Söru Dögg Johansen, en þær hafa skipað sér í raðir okkar fremstu förð­un­ar­fræð­inga. Ungar að árum stofn­uðu þær fyr­ir­tækið sitt Reykja­vík Makeup School sem nýtur mik­illa vin­sælda, en á þeim fimm árum sem liðin eru frá stofnun skól­ans hafa tæp­lega 600 nem­endur útskrif­ast þaðan. Vel­gengni þeirra má þakka metn­aði og óbilandi áhuga á því sem þær gera, en þær leggja mikla áherslu á að auka sífellt þekk­ingu sína og færni í fag­inu.

„Ekkert til í okkar orðabók sem heitir stöðnun.“

Leiðir vin­kvenn­anna lágu upp­haf­lega saman árið 2010 þegar þær kynnt­ust í Airbrush & Makeupschool. Á þessum tíma var Sara nýút­skrifuð úr list­námi en hún segir hönnun og list alltaf hafa heillað sig. „Ég tók grunn í arki­tektúr áður en ég lærði förðun, en draumur minn frá því að ég man eftir mér var að verða arki­tekt,“ segir hún, en eftir útskrift úr förð­un­ar­nám­inu var ekki aftur snúið. „Upp­haf­lega ætl­aði ég aðeins að læra förðun fyrir sjálfa mig, en eftir námið bauðst mér starf í förð­un­ar­verslun og sem förð­un­ar­kenn­ari, síðan þá hefur þessi heimur átt hug minn allan.“

Silla starf­aði í Íslands­banka og ætl­aði sér, líkt og Sara, ein­göngu að læra förðun fyrir sjálfa sig. Hún fann fljótt að þetta lægi vel fyrir sér, en hélt áfram að vinna í bank­anum næstu tvö árin. „Einn dag­inn fékk ég svo sím­tal þar sem mér bauðst að ger­ast kenn­ari við skól­ann þar sem ég lærði, og mér fannst það mjög spenn­andi. Þegar ég fór að velta þessu fyrir mér fór ég samt sem áður að hugsa, „af hverju geri ég þetta ekki bara sjálf, af hverju ekki að opna nýjan skóla?“ og þar með kvikn­aði hug­myndin. Ég ræddi þetta fram og til baka við mann­inn minn sem leist vel á hug­mynd­ina og hvatti mig áfram, en mig vant­aði við­skipta­fé­laga, ein­hvern sem var til­bú­inn til að gera þetta með mér. Ég þekkti Söru ekki mikið á þessum tíma en fann ein­hvern veg­inn á mér að hún væri rétta mann­eskjan í þetta. Það er skemmti­legt að segja frá því að ég bað hana þess vegna að koma með mér í hádeg­is­mat á Ham­borg­arafa­brikkunni einn dag­inn, og spurði hana hvernig henni lit­ist á að stofna eitt stykki skóla með mér. Ótrúlegt en satt, hún var búin að vera hugsa nákvæm­lega það sama, og allar hug­mynd­irnar sem hún hafði voru svip­aðar því sem ég var með í huga. Ég þurfti því ekk­ert að hafa fyrir því að sann­færa hana, og við ákváðum þarna að bara kýla á þetta.“

Eftir að hug­myndin var komin í loftið var ekki aftur snúið og hlut­irnir gerð­ust hratt. Aðeins mán­uði eftir fund­inn á Ham­borg­arafa­brikkunni var komin kennitala fyrir fyr­ir­tækið, nafn og leit hafin að rétta hús­næð­inu. Hvorug þeirra var í vafa um að þetta væri rétt skref. „Auðvitað var þetta ein­hver áhætta, að stofna fyr­ir­tæki og henda okkur í djúpu laug­ina, sér­stak­lega þar sem við þekkt­umst varla. En við vorum bara svo vissar frá upp­hafi að þetta myndi ganga,“ segir Sara, og Silla tekur undir. „Það er líka kannski það sem hefur komið sér svona vel, að vera ekk­ert að ofhugsa hlut­ina. Við erum svo­lítið þannig að ef við fáum góðar hug­myndir sem við trúum á, förum við frekar í það að finna leiðir til að láta þær ganga upp heldur en að hugsa út í allt sem gæti farið úrskeiðis. Ég er alveg viss um að ef við hefðum fengið þessa hug­mynd og ætlað að hugsa um þetta í ein­hvern tíma, mán­uði eða ár, hefði bara ein­hver annar verið á undan.“

Við erum svo­lítið þannig að ef við fáum góðar hug­myndir sem við trúum á, förum við frekar í það að finna leiðir til að láta þær ganga upp heldur en að hugsa út í allt sem gæti farið úrskeiðis

Þetta er aðeins brot úr ítar­legu við­tali við Sillu og Söru. Lestu við­talið í heild sinni í nýjasta tölu­blaði Vikunnar.

/Texti: Margrét Björk Jóns­dóttir
/Myndir: Aldís Páls­dóttir

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

„Á ég að koma og taka í þig og ríða þér í rassgatið litla tussan þín“
Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Peningar

Samkaup semja um kaup á Fjarð­ar­kaupum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Fólk

Fólk

Fimm hlutir sem geta reynt á sam­bandið þegar mak­inn er með ADHD

Fólk

Keath Ósk slær í gegn á heims­vísu og segir Ísland hafa mótað sköp­un­ina

Viðtal
Fólk

Ekkert minni konur en aðrar konur

Myndir
Fólk

Óvenju­legt sölu­til­boð í Reykja­vík þar sem maka­skipti koma til greina

Fólk

Nabblinn leggur bleyj­una á hill­una

Myndir
Fólk

Sögu­frægt sýslu­manns­setur við sjó­inn komið á sölu