Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Eltu leikmenn inn í sturtuklefana

Skapti Hall­gríms­son, blaða­maður og ljós­mynd­ari, sendi á dög­unum frá sér bók­ina Ævintýri í Aust­ur­vegi – Strák­arnir okkar á HM í Rúss­landi. Bókin er í dag­bók­ar­formi og lýsir upp­lifun Skapta á ævin­týr­inu sem þátt­taka Íslands var á mót­inu.

Eltu leikmenn inn í sturtuklefana
Skapti Hall­gríms­son, blaða­maður og ljós­mynd­ari. Mynd / Hákon Davíð Björns­sono

„Strax og Ísland tryggði sér sæti á HM hugs­aði ég með sjálfum mér að ég yrði að vera við­staddur ævin­týrið. Ég var íþrótta­f­rétta­maður í fjölda­mörg ár og íþrótta­f­rétta­stjóri á Morg­un­blað­inu og þó svo að blaða­mennska mín hafi um ára­bil snú­ist um annað en íþróttir að mestu leyti hafa þær aldrei verið langt undan og fót­bolti er eitt af mínum helstu áhuga­málum,“ segir Skapti sem hefur með­fram störfum sínum á Morg­un­blað­inu skrifað um fót­bolta í mörg ár fyrir erlenda fjöl­miðla, fyrst og fremst Kicker í Þýska­landi en líka tíma­ritið World Soccer í Englandi og svo­lítið í frönsk blöð.
„Ég var á EM í Frakkklandi og gat ekki sleppt því að fara til Rúss­lands. Ég var strax stað­ráð­inn í því að skrifa bók um HM því mér fannst að ítar­leg umfjöllun um þátt­töku Íslands yrði að vera til þegar fram liðu stundir. Var með ýmsar hug­myndir en bóka­út­gáfan Tindur leit­aði svo til mín og ég sló til; hafði nokkuð frjálsar hendur og fannst dag­bók­ar­formið heppi­leg­ast til að ná fram stemn­ing­unni sem ég vildi koma til skila. Ég sótti um og fékk aðgang sem ljós­mynd­ari á mót­inu, eins og stundum áður síð­ustu ár, vildi frekar vera niðri við völl­inn þar sem nær­veran við leik­menn­ina og aksjónið er eðli­lega meiri en úr blaða­manna­stúkunni. Ég vildi líka taka sem flestar myndir í bók­ina sjálfur, því ég vissi nákvæm­lega hvað ég vildi.“

Bókin er upp­lifun Skapta á þátt­töku Íslands á mót­inu í víðu sam­hengi. „Ég skrifa um fót­bolta­hlið­ina og alls kyns mann­lífs­efni í bland. Um leik­ina þrjá fjalla ég svo sér­stak­lega og ítar­lega, á „íþrótta­síðu­legan“ hátt; segi frá helstu atvikum, birti marg­vís­lega töl­fræði og ummæli leik­manna, þjálf­ara og fleiri að leik loknum. Í bók­inni eru um 200 ljós­myndir, þar af um 170 sem ég tók sjálfur, en nokkrar eru frá vinum mínum í hópi íslensku ljós­myndar­anna sem voru á HM, mest Eggerti Jóhann­essyni á Mogganum sem á til dæmis mynd­ina á bók­ar­káp­unni, og Þorgrími Þrá­ins­syni, starfs­manni lands­liðs­ins, sem á nokkrar myndir sem hann tók á bak við tjöldin.“

„Nú þarf alltaf að bíða lengi eftir því að leik­menn komi í við­tal eftir leiki, eftir að þeir hafa farið í sturtu og sjænað sig, einmitt þegar blaða­menn eru í mik­illi tíma­þröng að kvöldi.“
Ísland – Agentína 1:1 … eftir leik, Emil Hall­freðs­son.

Sam­skiptin við leik­menn breytt
Stemn­ing­unni á ferða­lag­inu eru gerð skil á skemmti­legan og lif­andi hátt í bók­inni og hún er dýr­mæt heim­ild um ævin­týrið. „Fjöl­miðla­menn hitta leik­menn­ina reyndar mjög lítið, við gátum fylgst með hluta æfinga liðs­ins á hverjum degi, alla daga voru nokkrir leik­menn sendir til að spjalla við fjöl­miðla í stutta stund áður en æfing hófst og svo var hægt að ræða stutt­lega við þá eftir leiki á sér­stöku svæði. Önnur voru sam­skiptin ekki. Margt hefur því breyst að þessu leyti, vænt­an­lega til batn­aðar fyrir leik­menn því þeir verða fyrir mjög litlu áreiti, en starfs­um­hverfi fjöl­miðla er verra að sama skapi. Nú þarf alltaf að bíða lengi eftir því að leik­menn komi í við­tal eftir leiki, eftir að þeir hafa farið í sturtu og sjænað sig, einmitt þegar blaða­menn eru í mik­illi tíma­þröng að kvöldi. Í gamla daga var nán­ast hægt að ræða við leik­menn hvenær sem var fyrir leiki og eftir leiki gekk maður gal­vaskur inn í bún­ings­klefa strax eftir lands­leik og spurði menn spjör­unum úr, í orðs­ins fyllstu merk­ingu. Gekk jafn­vel á eftir mönnum með blað og blý­ant inn í sturtu­klef­ann ef með þurfti.“
Skapti segir að við­mótið í Rúss­landi hafi alls staðar verið gott. „Rússar gerðu hvað þeir gátu til að allt yrði eins og best væri á kosið og tókst það sann­ar­lega. Svo hafði ég líka gaman af því að leiða hug­ann að öðru en fót­bolta, til dæmis í Vol­gograd, áður Stalín­grad, þar sem sagan umlykur mann hvar sem komið er, enda orr­ustan um borg­ina í seinni heims­styrj­öld­inni einn mesti hild­ar­leikur seinni tíma. Ekki er hægt að segja að gaman hafi verið að skoða hið magn­aða minn­is­merki, Móð­ur­landið kallar, stytt­una risa­vöxnu sem gnæfir yfir borg­ina, en það var ótrú­lega magn­þrungið að koma á stað­inn. Ég hef víða komið en minn­ing­ar­garð­ur­inn í Vol­gograd er ein­hver magn­að­asti staður sem ég hef heim­sótt.“

Aron Einar Gunn­ars­son hendir bolta aftur til stuðn­ings­manns í stúkunni eftir að hafa áritað hann. Fyrsta æfing íslenska lands­liðs­ins í Rúss­landi – hófst 11.30 að stað­ar­tíma á sunnu­dags­morgni, í smá­bænum Kab­ar­dinka við Svarta­haf, eins­konar úthverfi borg­ar­innar Gelendzhik. Fjöldi fólks mætti á æfing­una, ungir sem aldnir, fögn­uðu íslensku strák­unum vel þegar þeir mættu, fylgd­ust gaum­gæfi­lega með öllu og margir voru svo ólmir í að fá eig­in­hand­ar­á­rit­anir frá leik­mönnum á bolta, treyjur eða myndir sem fólkið hafði komið með á æfing­una

Upp­sögnin kom í opna skjöldu
Mitt í gleð­inni sem fylgir útkomu bók­ar­innar hefur Skapti fengið sinn skerf af mót­læti en honum var nýlega sagt upp starfi sínu á Morg­un­blað­inu til 40 ára. „Ég var fast­ráð­inn í 36 ár en byrj­aði að skrifa fyrir blaðið fyrir nákvæm­lea 40 árum, þegar ég var í fyrsta bekk í Mennta­skól­anum á Akureyri. Við réðum okkur, tveir 16 ára vinir, til að skrifa um íþróttir í blaðið að norðan. Ég var á íþrótta­deild­inni frá 1982 til 1998, þar af sem frétta­stjóri rúm­lega síð­asta ára­tug­inn. Síðan hef ég fjallað um allt milli him­ins og jarðar, til­heyrði lengst af rit­stjórn Sunnu­dags­blaðs­ins,“ segir Skapti og aðspurður segir hann að upp­sögnin hafi komið honum í opna skjöldu. „Til­finn­ingin var óneit­an­lega vond. Ég hef verið blaða­maður á Morg­un­blað­inu alla mína starfsævi og upp­sögnin var því mikið áfall. Ekki bætti úr skák að tveimur dögum áður var ég að dytta að hús­inu mínu en féll úr stiga, eina þrjá metra niður á mal­bik, og möl­braut á mér oln­bog­ann. Hugsaði strax að þetta væri ekki heppi­leg­ustu meiðsli blaða­manns.“ Skapti hætti strax, vinnur ekki upp­sagn­ar­frest. Hann er búsettur á Akureyri og sér fyrir sér að starfa þar áfram sem blaða­maður og ljós­mynd­ari. „Ég flutti aftur heim fyrir nærri tveimur ára­tugum og get sinnt marg­vís­legum verk­efnum þaðan. Er til dæmis með tvær bækur á teikni­borð­inu nú þegar,“ segir hann brattur.
Nýja bókin hefur þegar fengið góð við­brögð og þeir sem hafa séð grip­inn eru hrifnir, að sögn Skapta. „Það gleður mig vissu­lega, enda mikið lagt í verkið og ég er mjög ánægður með hvernig til tókst. Ég er viss um að þeir sem voru á HM end­ur­upp­lifi ævin­týrið með því að glugga í bók­ina og þeir sem ekki fóru muni upp­lifa það sem fram fór.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

„Á ég að koma og taka í þig og ríða þér í rassgatið litla tussan þín“
Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Peningar

Samkaup semja um kaup á Fjarð­ar­kaupum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Fólk

Fólk

Fimm hlutir sem geta reynt á sam­bandið þegar mak­inn er með ADHD

Fólk

Keath Ósk slær í gegn á heims­vísu og segir Ísland hafa mótað sköp­un­ina

Viðtal
Fólk

Ekkert minni konur en aðrar konur

Myndir
Fólk

Óvenju­legt sölu­til­boð í Reykja­vík þar sem maka­skipti koma til greina

Fólk

Nabblinn leggur bleyj­una á hill­una

Myndir
Fólk

Sögu­frægt sýslu­manns­setur við sjó­inn komið á sölu