Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Allt í kringum ferlið svo sárt

Raquelita Rós Aguilar tók tíunda bekk­inn aftur, tutt­ugu og fimm ára að aldri. Eftir útskrift úr háskóla leið ekki á löngu þar til hún var ráðin fram­kvæmda­stjóri hug­bún­að­ar­fyr­ir­tækis á hraðri upp­leið. Raquelita hefur farið nokkrar tor­færur í gegnum lífið en hún vill gjarnan veita konum inn­blástur til að sækj­ast eftir því sem þær dreymir um.

Allt í kringum ferlið svo sárt

Raquelita er gift Birnu Guð­munds­dóttur sem er rann­sókn­ar­lög­reglu­maður hjá kyn­ferð­is­af­brota­deild lög­regl­unnar en saman eiga þær þrjá drengi. Raquelita segir frá því hvernig þær kynnt­ust.

„Hún elti mig,“ segir hún og skellir upp úr. „Hún vissi af mér en ég ekki af henni en við bjuggum báðar á þeim tíma í Keflavík, þar sem Birna er alin upp. Hún þekkti því flesta í bænum og náði að redda sér síma­núm­er­inu mínu eftir að hafa séð mig og heyrt af mér. Svo sendi hún mér bara skila­boð og við ákváðum að hitt­ast. Við höfum verið saman síðan,“ segir hún.

„Ég fann mjög snemma, og áður en ég elskaði hana, að ég myndi elska hana. Við komum úr gjör­ó­líkum heimum en erum líkar á marga vegu,“ segir hún og útskýrir mál sitt. „Ég ólst ekki upp við neinn hvata eða metnað til að vegna vel í líf­inu. Það þurfti að gera allt á hörkunni og vinna tvær vinnur myrkr­anna á milli. Launin voru léleg og stritið mikið. Hjá Birnu var allt annað upp á ten­ingnum. Í hennar fjöl­skyldu eru allir vel mennt­aðir og mik­ill metn­aður fyrir því að ganga vel í líf­inu og hafa hlut­ina á hreinu. Ég heill­að­ist mjög mikið af þessum eig­in­leikum í hennar fari og hvað hún var stabíl. Hún lærði sál­fræði í Banda­ríkj­unum og kláraði svo rétt­arsál­fræði í York í Bret­landi en þegar við kynnt­umst var hún í Lög­reglu­skól­anum. Mér fannst svo geggjað að hún væri búin að afreka þetta allt en svo skemmdi auð­vitað ekki fyrir hvað hún er sæt,“ segir hún og brosir.

Raquelita og Birna létu gefa sig saman í lít­illi og per­sónu­legri athöfn í Garða­kirkju með aðeins nán­ustu vini og fjöl­skyldu við­stadda.

„Brúð­kaupið var akkúrat eins og við vildum hafa það, ein­falt og lát­laust. Og það var engin óþarfa róm­an­tík í kringum trú­lof­un­ina heldur settum við hring­ana upp úti í bíl fyrir utan Jón og Óskar.“

Elsta barnið þeirra er Natan, þrettán ára, en stuttu eftir brúð­kaupið fóru þær að tala um að stækka við fjöl­skyld­una og Raquelita varð fljót­lega ófrísk. Þær misstu fóstrið en reyndu fljótt aftur og varð hún ólétt í annað sinn og þær mjög spenntar eins og ætla má. Dreng­ur­inn, sem fékk nafnið Nói, fædd­ist and­vana eftir fimm mán­aða með­göngu. Eftir and­lát Nóa og einn fóst­ur­missi var Raquelita ákveðin að ganga aldrei aftur með barn.

„Sú lífs­reynsla að fæða and­vana barn er alveg hræði­leg. Það er ekk­ert sem und­ir­býr mann fyrir það að skilja barnið sitt eftir og fara bara heim af fæð­ing­ar­deild­inni án þess. Eftir fæð­ingu fer líka af stað mikið horm­ónaflæði, brjóstin fyll­ast af mjólk og er stöðug áminn­ing um það sem gerð­ist. Allt í kringum þetta ferli er svo sárt,“ segir Raquelita ein­læg.

„Sú lífs­reynsla að fæða and­vana barn er alveg hræði­leg. Það er ekk­ert sem und­ir­býr mann fyrir það að skilja barnið sitt eftir og fara bara heim af fæð­ing­ar­deild­inni án þess.“

Þær ákváðu að reyna aftur stuttu seinna en að Birna myndi ganga með barnið. „Eftir reynslu okkar ákvað hún að gera það og varð strax ófrísk að Alex sem fædd­ist árið 2016. Ferlið virk­aði þannig að við keyptum okkur aðgang að Evrópska sæð­is­bank­anum en þar er hægt að skoða sæð­is­gjaf­ana í þaula. Við eigum sjúkra­sögu okkar sæð­is­gjafa, barna­mynd af honum og upp­töku þar sem hann segir frá sjálfum sér og hvað starfs­fólk­inu fannst um hann. Við ákváðum þó að nota ekki sama gjafa og þegar ég gekk með Nóa. Við létum sæð­is­banka úti í Banda­ríkj­unum og Danmörku vita af stöð­unni og lýstum útliti okkar. Þeir bentu báðir á sama sæð­is­gjafann og út kom Alex, sem er skemmti­lega líkur okkur báðum.“

Raquelíta getur ekki stillt sig um að sýna blaða­manni mynd af sonum þeirra Birnu og mömmustoltið leynir sér ekki.

Viðtalið í heild má lesa í nýrri Viku.

Mynd / Hallur Karlsson
Förðun / Björg Alfreðs­dóttir með YSL

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

„Á ég að koma og taka í þig og ríða þér í rassgatið litla tussan þín“
Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Peningar

Samkaup semja um kaup á Fjarð­ar­kaupum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Fólk

Fólk

Fimm hlutir sem geta reynt á sam­bandið þegar mak­inn er með ADHD

Fólk

Keath Ósk slær í gegn á heims­vísu og segir Ísland hafa mótað sköp­un­ina

Viðtal
Fólk

Ekkert minni konur en aðrar konur

Myndir
Fólk

Óvenju­legt sölu­til­boð í Reykja­vík þar sem maka­skipti koma til greina

Fólk

Nabblinn leggur bleyj­una á hill­una

Myndir
Fólk

Sögu­frægt sýslu­manns­setur við sjó­inn komið á sölu