Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Margt sem situr eftir ósvarað

Sigrún Ásta Jörg­en­sen hafði nán­ast kvatt draum­inn um að verða móðir en bíður nú fæð­ingar tví­bura sem vænt­an­legir eru í heim­inn á hverri stundu.

Margt sem situr eftir ósvarað

Hún seg­ist sann­færð um að stress og kvíði hafi mikið haft að segja en röð áfalla setti and­lega heilsu hennar úr skorðum, einkum og sér í lagi sjálfs­víg bróð­ur­ins sem var hennar besti vinur. „Bróðir minn dó í maí árið 2015, rétt eftir 27 ára afmæl­is­dag­inn sinn. Það var rosa­lega erfitt en hann hafði glímt við eit­ur­lyfjafíkn lengi auk þess að vera þung­lyndur og félags­fæl­inn.“

„Í dag skil ég hvers vegna hann fór þessa leið og hef lært að virða hans ákvörðun, en það tók mig langan tíma. Um langt skeið var ég bæði reið og sár út í hann fyrir að hafa farið frá okkur öllum á þennan hátt. Það var svo margt ósagt á milli okkar og mikið sem situr eftir.“

„Hann framdi sjálfs­víg heima hjá ömmu okkar og afa en ég gisti líka hjá þeim þessa nótt. Við höfðum öll miklar áhyggjur af honum enda hafði hann ítrekað látið í ljós van­líðan sína. Klukku­tíma eftir að við lögðum af stað í vinn­una um morg­un­inn var hann dáinn. Þegar hann svar­aði ekki sím­anum hringdi amma í lög­regl­una því hún fann strax á sér að eitt­hvað væri að. Lög­reglu­þjón­arnir mættu fyrstir á svæðið en við amma komum skömmu síðar. Þegar annar lög­reglu­þjónn­inn gerði sig lík­legan til að faðma mig við úti­dyra­hurð­ina ýtti ég honum harka­lega í burtu og hljóp upp. Þeir höfðu komið Bent fyrir í rúm­inu þar sem hann lá í frið­sælli stell­ingu.“

„Ég sá hann dáinn heima en ekki í þeim aðstæðum sem hann dó í, það hefði senni­lega eyði­lagt mig að eilífu.“

Sigrún Ásta leit­aði allra lausna til þess að skilja hvers vegna bróðir hennar hafði ákveðið að fara þessa leið en hún skoð­aði meðal ann­ars far­tölvu hans og þær síður sem hann hafði síð­ast skoðað. „Ég sá fljótt að hann hafði gert ítar­lega leit að upp­lýs­ingum um hvernig hægt væri að blanda of stóran skammt, dauða­skammt. Hann vildi klára þetta og alls ekki eiga á hættu að mis­takast. Eftir að hafa lesið dán­ar­skýrsl­una nokkrum mán­uðum síðar fékk ég það svo stað­fest. Það að missa nákomna mann­eskju sem fremur sjálfs­víg er að mínu mati ekki sam­bæri­legt við það að missa mann­eskju með öðrum hætti. Sorgin sem tekur við er öðru­vísi en sú sem við þekkjum flest. Stuttu síðar lést afi minn, sem bróðir minn var skírður í höf­uðið á, en afi var okkur systkin­unum mikil föð­urí­mynd. Hann hafði þó náð 86 ára aldri og lifað góðu lífi. Þó að það hafi auð­vitað verið erfitt var það ekki sam­bæri­legt á nokkurn hátt.“

„Bent bróðir var besti vinur minn og fyr­ir­mynd mín í líf­inu. Ég hafði gengið í gegnum allt með honum. Það sem hann kenndi mér er fyrst og fremst þakk­læti fyrir það sem ég hef. En ég hef líka lært að skilja fólk sem er á þessum stað.“

„Það kljást margir við erfið geð­vanda­mál og svo mörgu er ábóta­vant í geð­heil­brigð­is­málum á Íslandi.“
Mæðgurnar reyndu nokkrum sinnum að fá inn­lögn fyrir Bent en Sigrún Ásta lýsir við­mót­inu sem þær mættu sem því versta sem þær hefðu báðar upp­lifað. „Upplifun manns er sú að öllum standi hrein­lega á sama. Við urðum fyrir svo miklum von­brigðum því á þessum tíma hafði Bent talað mikið um það hversu illa honum leið og margoft sagt að hann ætl­aði að klára þetta.“

„Eftir að hafa beðið á bið­stof­unni tímunum saman kom loks­ins röðin að honum en eftir örstutt spjall við lækn­inn var hann sendur út með þeim skila­boðum að ekk­ert væri hægt að gera.“

„Ég óskaði í kjöl­farið eftir sam­tali við yfir­lækni á staðnum og benti henni á þá bláköldu stað­reynd að bróðir minn væri í mik­illi sjálfs­vígs­hættu. Hún ítrek­aði sitt fyrra svar, að það væri ekk­ert hægt að gera. Mér leið eins og hún hrein­lega nennti ekki að tala við mig. Mánuði seinna var Bent dáinn. Kannski hefði verið hægt að hjálpa, við vitum það ekki fyrir víst, en þeirri spurn­ingu er engu að síður enn ósvarað.“

Viðtalið í heild má lesa í nýjasta tölu­blaði Vikunnar.

Mynd / Aldís Páls­dóttir.
Förðun / Sara Dögg Johansen.
Hár / Katrín Sif Jóns­dóttir.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

„Á ég að koma og taka í þig og ríða þér í rassgatið litla tussan þín“
Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Peningar

Samkaup semja um kaup á Fjarð­ar­kaupum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Fólk

Fólk

Fimm hlutir sem geta reynt á sam­bandið þegar mak­inn er með ADHD

Fólk

Keath Ósk slær í gegn á heims­vísu og segir Ísland hafa mótað sköp­un­ina

Viðtal
Fólk

Ekkert minni konur en aðrar konur

Myndir
Fólk

Óvenju­legt sölu­til­boð í Reykja­vík þar sem maka­skipti koma til greina

Fólk

Nabblinn leggur bleyj­una á hill­una

Myndir
Fólk

Sögu­frægt sýslu­manns­setur við sjó­inn komið á sölu