Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Of föst í vélrænni nálgun á líkamlega heilsu

Tengslin á milli áfalla í æsku og sjúk­dóma síðar á lífs­leið­inni eru sterk. Margrét Ólafía Tóm­as­dóttir heim­il­is­læknir skrif­aði dokt­ors­rit­gerð sína um mál­efnið en henni finnst tími til kom­inn að kafa dýpra og hætta að nálg­ast lík­am­lega heilsu á vél­rænan hátt.

Of föst í vélrænni nálgun á líkamlega heilsu

Áhuginn á umfjöll­un­ar­efni rit­gerð­ar­innar vakn­aði á síð­asta ári Mar­grétar í lækn­is­fræði, í heim­il­is­lækn­is­fræði­kúrsi. „Lækna­námið hafði fram að því verið fók­userað á ákveðna líf­fræði og líf­færa­kerfi og í raun oft­ast án mik­ils sam­hengis við önnur kerfi í lík­am­anum. Svolítið í stíl við sér­greina­lækn­ingar þar sem aðal­á­herslan er lögð á eitt líf­færi. Sumarið fyrir síð­asta árið vann ég á Slysa-og bráða­deild og fannst sú reynsla frá­bær. En það voru ákveðnir hlutir sem mér fund­ust slá­andi. Það voru þeir ein­stak­lingar sem leit­uðu end­ur­tekið á deild­ina með óút­skýrða verki. Ég velti því oft fyrir mér hvort væri ekki eitt­hvað meira sem lægi þar að baki. Á síð­asta árinu í heim­il­is­lækn­is­fræði­kúrs­inum lásum við svo grein um sam­spil streitu­kerfa lík­am­ans og hvernig þau geta kross­verkað og breytt líf­fræði lík­am­ans til lengri tíma ef við lendum í alvar­legum áföllum eða erf­ið­leikum þar sem streitan í okkur verður „eitruð“ ef svo má segja.“

Margrét segir það hafa verið púslið sem vant­aði inn í mynd­ina í lækna­nám­inu. Að líta á hlut­ina í stærra sam­hengi, lík­amann í heild sinni og félags­legt umhverfi um leið. „Fyrir mér var svo full­kom­lega rétt að hugsa þetta svona. Þegar ég fór að vinna á heilsu­gæsl­unni á kandi­datsár­inu mínu sann­færð­ist ég enn frekar um þetta. Þar hitti ég margt fólk sem glímdi einmitt við þessi vanda­mál – sögu um áföll og marga lík­am­lega sjúk­dóma. Svo var það eig­in­lega þannig að mér bauðst að gera verk­efni um þessi mál – ef ég væri til í að fara gegnum dokt­ors­nám. Ég hafði í raun ekki hugsað mér að fara í dokt­ors­nám en þegar ég heyrði af þessu verk­efni gat ég eig­in­lega ekki annað en stokkið til,“ segir Margrét og sér svo sann­ar­lega ekki eftir því í dag.

Á síð­asta árinu í heim­il­is­lækn­is­fræði­kúrs­inum lásum við svo grein um sam­spil streitu­kerfa lík­am­ans og hvernig þau geta kross­verkað og breytt líf­fræði lík­am­ans til lengri tíma ef við lendum í alvar­legum áföllum eða erf­ið­leikum þar sem streitan í okkur verður „eitruð“ ef svo má segja.

Heilastöðvar þroskast minna

En hvað er það nákvæm­lega sem ger­ist í lík­am­anum við slæmar upp­lif­anir eða áföll í æsku og hvernig hefur það áhrif á heilsu okkar síðar meir? „Ef við hugsum bara um barn­æsk­una – og þá sér­stak­lega snemma í barn­æsku – þá er í raun tvennt sem ger­ist. Í fyrsta lagi breyt­ist þrosk­inn í heil­anum, ákveðnar stöðvar heil­ans þroskast minna en þær ættu að gera. Það ger­ist í raun til að vernda okkur fyrir því sem er að ger­ast og breytir aðeins skynjun okkar á hlut­unum en verður til vand­ræða seinna meir. Hitt sem ger­ist er að öll þau kerfi sem taka þátt í streitu­kerfi lík­am­ans fara úr skorðum. Streitu­kerfin eru mjög mörg, svo sem ósjálf­ráða tauga­kerfið, horm­óna­kerfið, ónæm­is­kerfið og heila­boð­efnin og þau spila öll í kross hvert á annað. Við áföll eða langvar­andi erf­ið­leika breyt­ist virkni allra þess­ara kerfa. Það mætti segja að þau fari öll á yfir­snún­ing og til verður eitruð streita í lík­am­anum. Mörg kerf­ana ná svo ekki að jafna sig aftur þegar erf­ið­leik­arnir eru liðnir hjá. Það leiðir svo til þess að við þróum með okkur sjúk­dóma síðar.“

Aðspurð um mik­il­væg­ustu lex­í­una sem hún lærði við það að kynna sér þessi mál til hlítar segir hún það hafa komið mest á óvart hversu lengi hefur verið horft fram hjá áhrifum félags­legs umhverfis á heilsu­far. „Áhrif áfalla og erf­ið­leika á þróun sjúk­dóma eru mjög sterk. Þau eru lík­lega sterk­ari áhættu­þættir en margir þeir áhættu­þættir sem við erum vön að ein­blína á í okkar klínísku vinnu, svo sem háþrýst­ingur eða of hátt kól­esteról. Þrátt fyrir það er erfitt að koma þessum málum að og mögu­lega er það vegna ein­hverrar hræðslu við að taka á erf­iðum málum en ef til vill vegna þess að við erum enn of föst í vél­rænni nálgun á lík­am­lega heilsu.“

Áhrif áfalla og erf­ið­leika á þróun sjúk­dóma eru mjög sterk. Þau eru lík­lega sterk­ari áhættu­þættir en margir þeir áhættu­þættir sem við erum vön að ein­blína á í okkar klínísku vinnu, svo sem háþrýst­ingur eða of hátt kól­esteról.

Enginn opnað á ormagryfju barnæskunnar

Margréti finnst mik­il­vægt að það komi fram að það þurfi ekki endi­lega ein­hverja dramat­íska nálgun þegar and­legi þátt­ur­inn kemur upp í sam­tali við lækna. „Rann­sóknir hafa sýnt að bara það að sam­þykkja vand­ann og við­ur­kenna áhrif áfalla á heilsu hefur heil­mikið að segja fyrir skjól­stæð­ing­inn og getur jafn­vel fækkað heim­sóknum til lækna og á bráða­mót­tökur.“

Margrét seg­ist einnig hafa lært mik­il­vægi þess að hlusta á fólk. „Ég veit ekki hversu margir hafa komið til mín og opnað sig um að hafa gengið milli lækna enda­laust en eng­inn hafi opnað á orma­gryfju barn­æsk­unnar.“

Mik­il­vægt er fyrir lík­am­lega heilsu að vinna úr áföllum sem fólk verður fyrir en oft er ekki mögu­legt að gera það jafn­óðum. „Ákveðnum erf­ið­leikum getur verið gott að vinna úr strax, svo sem áfalli við að missa for­eldri eða náinn vin. En flest þau áföll sem við erum að tala um, ofbeldi, van­ræksla og slíkt, stendur yfir í langan tíma og eru oft mjög dulin. Þau eru jafn­vel dulin börn­unum sjálfum sem átta sig til dæmis ekki strax á að drykkja for­eldra sinna sé óeðli­leg. Þannig er kannski erfitt að ímynda sér hvernig ætti að vinna úr þeim strax.“

Hún segir þarft að opna á umræðu um þessi mál og kenna fólki hvernig best er að takast á við vanda­mál. „Það er alltaf mik­il­vægt að vinna úr erf­ið­leik­unum þegar maður sjálfur áttar sig á að þeir hafi haft slæm áhrif á mann. Og ég held að það sé mjög oft ráð að fá fag­lega hjálp til að takast á við hlut­ina, einmitt vegna þess að erf­ið­leikar úr æsku og óupp­byggi­leg vinnsla úr þeim, getur smitað út frá sér, til dæmis yfir í sam­bönd á full­orð­ins­árum.“

Rann­sóknir hafa sýnt að bara það að sam­þykkja vand­ann og við­ur­kenna áhrif áfalla á heilsu hefur heil­mikið að segja fyrir skjól­stæð­ing­inn og getur jafn­vel fækkað heim­sóknum til lækna og á bráða­mót­tökur.

 Hið fullkomna heilbrigðiskerfi

Talið berst að hinu full­komna heil­brigð­is­kerfi. Margrét segir mik­il­vægt að fá sál­fræð­inga á samn­ing hjá Sjúkra­trygg­ingum svo að fólk hefði þá frekar efni á að leita til þeirra. „En það er fleira sem þarf að breyt­ast. Ég held að fólk eigi til að gleyma því hvað heilsu­gæslan hefur upp á að bjóða og hversu stór partur af geð­heil­brigð­is­kerf­inu hún er. Um 20% af heim­sóknum til heim­il­is­lækna til dæmis eru vegna and­legra vanda­mála. Þar fer fram mikil þjón­usta. En það vantar stærra milli­stig. Göngu­deild­ar­þjón­ustu og dag­deild­ar­þjón­ustu, skref á milli þess að mæta til heim­il­i­s­æknis og að vera lagður inn á bráða­geð­deild. Það er reyndar í smíðum að vissu leyti. Svo þarf að minn­ast á úrræði varð­andi þá sem glíma við fíkn. Þar er stórt gat í kerf­inu líka, og það er einmitt hópur sem gjarnan hefur lent í miklum áföllum.“

Margrét segir einnig mik­il­vægt að inn­leiða sál­fræði­að­stoð inn í skóla­kerfið. „Kennarar og nem­end­urnir sjálfir þurfa að fræð­ast um áföll, hver þau eru, mik­il­vægi þess að segja frá þeim, hvaða áhrif þau geta haft og hvernig megi fá aðstoð við að vinna úr þeim.“

Margrét vann nýverið að kynn­ing­ar­efni og vegg­spjaldi í sam­starfi við Geðhjálp þar sem almenn­ingi er kynntur spurn­inga­listi varð­andi áföll í æsku og áhrif þeirra á lang­vinna sjúk­dóma á full­orð­ins­árum. Í kjöl­farið mun fag­fólk innan heilsu­gæsl­unnar vinna með efnið og von­andi taka geð­ræna heilsu inn í heild­ar­mynd­ina í auknum mæli.

Dulin áhrif áfalla í æsku á heilsufar á fullorðinsárum

Rann­sóknir hafa sýnt fram á að erfið upp­lifun í æsku geti haft nei­kvæð áhrif á heilsu og lífs­kjör fólks á full­orð­ins­árum ef ekk­ert er að gert. Þekktasta rann­sóknin á þessu sviði er svokölluð Adverse Childhood Experiences, ACE, rann­sókn.

Rann­sóknin hefur leitt í ljós að við áfall innan hvers ACE-sviðs eða svo­kallað ACE-stig eykst hættan á nei­kvæðum afleið­ingum á heilsu og lífs­kjör fólks á full­orð­ins­árum.
Þú getur nálg­ast ACE-spurn­ing­ar­list­ann á www. ged­hjalp.is. Við hvetjum þig til að svara spurn­ing­unum vand­lega og ræða nið­ur­stöð­urnar við heim­il­is­lækn­inn þinn ef til­efni er til og alveg sér­stak­lega ef þær fela í sér fjögur ACE-stig eða fleiri.

Sem dæmi má nefna að ein­stak­lingar með fjögur ACE-stig eða fleiri eru tals­vert lík­legri en ein­stak­lingar með engin ACE-stig til að stríða við fíkni­sjúk­dóma, þung­lyndi, krabba­mein og hjarta- og æða­sjúk­dóma. Að sama skapi eru þeir lík­legri til að hafa upp­lifað stjórn­leysi, óskipu­lagða þungun, nauðgun, fóst­ur­lát og atvinnu­missi. Frekari upp­lýs­ingar um ACE-mæli­kvarð­ann má m.a. nálg­ast á eft­ir­far­andi slóð: acestoohigh.com

Mynd / Hákon Davíð Björns­son
Viðtalið í heild má lesa í nýj­ustu Vikunni.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Plönturnar fundust í tveimur gróðurkössum í farangursrýminu
Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Peningar

Samkaup semja um kaup á Fjarð­ar­kaupum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Var á reist árið 1979
Myndir
Fólk

Sögu­frægt sýslu­manns­setur við sjó­inn komið á sölu

Fólk

Fimm hlutir sem geta reynt á sam­bandið þegar mak­inn er með ADHD

Viðtal
Fólk

Ekkert minni konur en aðrar konur

Myndir
Fólk

Óvenju­legt sölu­til­boð í Reykja­vík þar sem maka­skipti koma til greina

Fólk

Nabblinn leggur bleyj­una á hill­una