Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

„Mér fannst ég aldrei nógu góð“

Þrátt fyrir að hafa verið eitt virtasta og vin­sælasta ljóð­skáld þjóð­ar­innar glímdi Linda Vil­hjálms­dóttir við van­meta­kennd. Það end­aði í djúpu þung­lyndi sem hún var lengi að vinna sig út úr. Nú er hún komin á beinu braut­ina og gerir upp við líf sitt, sögu for­mæðra sinna og stöðu kvenna í sam­fé­lag­inu í glæ­nýrri ljóða­bók sinni Smáa letrið.

„Mér fannst ég aldrei nógu góð“

„Mér finnst vera kom­inn nýr tónn í umræð­una í þjóð­fé­lag­inu,“ segir Linda spurð hvað hafi valdið því að hún tók þennan pól í hæð­ina í Smáa letr­inu. „Fólk er að end­ur­skoða líf sitt og til­veru og er til­búið að rýna í það á nýjan hátt. Þótt það hafi komið smá­vegis bakslag í #MeToo-umræð­una, þar sem karl­arnir eru að rísa upp og reyna að þagga niður í okkur á nýja leik, þá finnst mér við konur ekk­ert vera að missa damp­inn og í raun­inni er ég hissa á því hversu vel þessi umræða helst vak­andi í þessu Facebook-sam­fé­lagi þar sem ekk­ert umræðu­efni end­ist nema í mesta lagi út vik­una, sama hversu heitar umræður það vekur í upp­hafi.“

Í mögn­uðu for­síðu­við­tali við Vikuna gerir Linda upp þessa erf­iðu tíma.

Aðspurð um þá til­finn­ingu að þurfa að passa inn í ein­hvern ramma eða fyr­ir­fram gefnar hug­myndir um konur svar­aði Linda:  „Ég var næstum því búin að drepa niður alla mína sköp­un­ar­gáfu með því að vera stöðugt að þvinga mig í stell­ingar sem ég vissi inn við beinið að hent­uðu mér ekki. Ég var til dæmis mjög ósátt við það þegar ég hafði gefið út nokkrar bækur að vera alltaf að skrifa út frá per­sónu­legri reynslu. Að vera alltaf að dúlla mér við eitt­hvað sem ég á þeim tíma var farin að skil­greina sem kven­leg blúnduljóð, sem væru lít­ils metin í bók­mennta­heim­inum og af les­endum. Ég væri þar af leið­andi hálf­gert skúffu­skáld.“

Eins og fram kemur í Smáa letr­inu öðl­að­ist Linda smám saman nægj­an­legt sjálf­traust til að geta verið sátt við sjálfa sig eins og hún er, með kostum og göllum. En leiðin þangað var löng og krók­ótt.

Ég var næstum því búin að drepa niður alla mína sköp­un­ar­gáfu með því að vera stöðugt að þvinga mig í stell­ingar sem ég vissi inn við beinið að hent­uðu mér ekki.

„Ég fór í rosa­legur dýfur áður en til þess kom,“ við­ur­kennir hún.

„Það liðu níu ár á milli Frost­fiðr­ild­anna sem ég skrif­aði 2006 og Frelsis sem kom út 2015. Á þeim tíma lenti ég í algjörri ritteppu sem end­aði í djúpu þung­lyndi. Auðvitað spil­aði margt fleira inn í, það var ekki bara það að ég gæti ekki skrifað,“ segir hún.

„Mamma og pabbi voru bæði að eld­ast og mjög veik og svo hætti ég að reykja sem tók rosa­lega á mig enda hafði sígar­ettan verið meðal við öllu, alveg frá pirr­ingi yfir í hósta­köst. Ég hafði reykt frá því ég var þrettán ára gömul og fór end­an­lega yfir þung­lynd­is­strikið eftir að ég hætti að taka lyfið sem hjálp­aði mér að hætta að reykja. Ég átt­aði mig reyndar ekki á því sjálf að ég væri lasin, hélt alltaf að ég myndi taka eftir því ef ég lenti í sjúk­legu þung­lyndi. Ég var að passa mig á að gera allt sem ég átti að gera; fór í rækt­ina þrisvar í viku, mætti á mína sjálfs­hjálp­ar­fundi tvisvar í viku, fór út að ganga þá daga sem ég var ekki í rækt­inni og var að reyna að skrifa. En ein­beit­ingin var engin, ég gat ekki einu sinni lesið, það hlóð­ust upp bækur á nátt­borð­inu því ég komst ekk­ert áfram,“ útskýrir Linda.

Ég átt­aði mig reyndar ekki á því sjálf að ég væri lasin, hélt alltaf að ég myndi taka eftir því ef ég lenti í sjúk­legu þung­lyndi.

„Ég hélt að þetta væru bara svona leið­in­legar bækur en svo fór ég loks til sál­fræð­ings til þess að vinna mig út úr rittepp­unni, hélt að ef ég myndi vinna úr þeim áföllum sem ég hafði orðið fyrir í æsku gengi mér betur að skrifa. Sál­fræð­ing­ur­inn var búin að hafa orð á því þrjár vikur í röð að ég væri ansi þung­lynd og döpur þegar ég kveikti loks­ins á per­unni og spurði hvort henni fynd­ist að ég þyrfti að gera eitt­hvað í því. Ég hélt ég væri bara svo­lítið sorg­mædd og leið. Mamma hafði dáið árið áður og allt hafði verið frekar erfitt.“

Í mögn­uðu for­síðu­við­tali við Vikuna gerir Linda upp þessa erf­iðu tíma, drykkj­una, barn­leysið og hið erf­iða sjálfs­nið­ur­rif er aldrei leiðir til nokk­urs góðs.

Myndir / Hákon Davíð Björns­son
Förðun / Elín Reynis

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Plönturnar fundust í tveimur gróðurkössum í farangursrýminu
Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Peningar

Samkaup semja um kaup á Fjarð­ar­kaupum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Var á reist árið 1979
Myndir
Fólk

Sögu­frægt sýslu­manns­setur við sjó­inn komið á sölu

Fólk

Fimm hlutir sem geta reynt á sam­bandið þegar mak­inn er með ADHD

Viðtal
Fólk

Ekkert minni konur en aðrar konur

Myndir
Fólk

Óvenju­legt sölu­til­boð í Reykja­vík þar sem maka­skipti koma til greina

Fólk

Nabblinn leggur bleyj­una á hill­una