Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Helst vonandi í jólagírnum fram í janúar

Sjón­varps­stjarnan Eva Laufey Kjaran Her­manns­dóttir prófar ávallt nýjar upp­skriftir fyrir hver jól í bland við hinar gömlu góðu sem hún segir ómissandi yfir hátíð­ina. Hún segir sörur, pip­ar­kökur og mar­en­stoppa þó alltaf njóta mestra vin­sælda á heim­il­inu.

Helst vonandi í jólagírnum fram í janúar

Eva Laufey segir mikið hafa verið bakað á sínu æsku­heim­ili og minn­ist hún ljúfra stunda með mömmu sinni og ömmu í eld­hús­inu á aðvent­unni. „Mér fannst æðis­lega gaman að fylgj­ast með þeim baka loft­kökur, ég veit ekki af hverju en í minn­ing­unni er það mesta sportið. Ég hef sjálf ekki prófað að baka þær en ég þarf klár­lega að gera það einn dag­inn. Ég var og er mjög mikið fyrir smákökur og vissi nákvæm­lega hvar köku­boxin voru geymd þegar ég var lítil enda var ég ansi lunkin við að ná mér í eina og eina köku.

Ég var og er mjög mikið fyrir smákökur og vissi nákvæm­lega hvar köku­boxin voru geymd þegar ég var lítil.

Að mínu mati er bakstur eitt af því sem er ómissandi hefð á aðvent­unni, og nóg af kertum. Það er svo nota­legt að baka á aðvent­unni og ég byrja yfir­leitt í nóv­em­ber að baka og skreyti svo heim­ilið strax í byrjun des­em­ber. Ég setti meira að segja jóla­tréð okkar upp í byrjun des­em­ber sem mann­inum mínum fannst til að byrja með svo­lítið galið en ég náði að sann­færa hann að þessi tími er stuttur og það er ein­stak­lega nota­legt að leyfa heim­il­inu að vera í jóla­bún­ingi. Sér­stak­lega þegar dag­arnir eru dimmir og kaldir eigum við að njóta þess að hafa svo­lítið huggu­legt í kringum okkur. Þess vegna ættum við að vera óhrædd við að skreyta miklu fyrr, ég las það í grein fyrir stuttu að þeir sem skreyttu fyrr væri ham­ingju­sam­ari en aðrir. Ég sel það ekki dýrar en ég keypti það, ekki færi Inter­netið að ljúga þessu.“

Aðspurð hvað kalli fram jóla­skapið nefnir Eva Laufey fyrst jóla­snjó­inn.

„Bakstur og heitt súkkulaði með rjóma, og jóla­lög koma mér í jóla­skapið. Það er ótrú­lega fyndið, einn dag­inn ertu í engu jóla­skapi og skilur ekk­ert í þessu áreiti frá búðum að aug­lýsa jóla­vörur og annað slíkt, fussar yfir því hvað þetta byrjar snemma og hinn dag­inn ertu skæl­bros­andi í bílnum að hlusta á hug­ljúf jóla­lög að plana jóla­bakst­ur­inn og aug­lýs­ingar um jóla­ser­íur hitta beint í mark og þú ert rokin í næstu verslun að kaupa jóla­gjafir. Ég er sem sagt komin í þann gír og von­andi helst hann alveg fram í jan­úar.“

Bakstur og heitt súkkulaði með rjóma, og jóla­lög koma mér í jóla­skapið.

Eva deilir með les­endum upp­skrift að þess­ari ljúf­fenfu mar­en­stertu.

Marensterta með ljúffengri Mars-súkkulaðisósu og ferskum berjum

Þetta er upp­skrift að eft­ir­læt­is­maren­stert­unni minni en mér þykir hún ein­stak­lega góð og svo er hún afskap­lega þægi­leg sem er mjög mik­ill kostur, sér­stak­lega um jólin og í raun­inni bara þegar mann langar að gera vel við sig. Þessi terta slær alltaf í gegn og er skot­held. Ég vona að þið eigið eftir að njóta hennar í botn. Svo er hún líka bara svo fal­leg og jóla­leg.

MARENSBOTN

4 eggja­hvítur
2 dl sykur
1 dl púð­ur­sykur
2 dl Rice Krispies

Hitið ofn­inn í 150°C með blæstri. Þeytið eggja­hvítur þar til byrjar að freyða í skál­inni, bætið þá sykrinum smám saman við og þeytið vel saman þar til
mar­ens­blandan er orðin stíf. Merjið Rice Krispies og blandið var­lega saman við deigið í lokin. Setjið mar­ens­blönd­una á papp­írs­klædda ofn­plötu og myndið hring. Bakið við 150°C í 45-50 mín­útur.

MARSKREM

4 eggja­r­auður
3 msk. sykur
150 g Mars-súkkulaði
70 g suðusúkkulaði
70 g smjör

OFAN Á KÖKUNA

300 ml rjómi
fersk ber
Mars-súkkulaði

Þeytið eggja­r­auður og sykur saman þar til blandan verður mjög létt og ljós. Bræðið súkkulaði og smjör saman í potti við vægan hita, kælið aðeins og bætið síðan saman við eggja­r­auð­urnar. Setjið kremið yfir mar­ens­botn­inn og síðan fer þeyttur rjómi yfir og í lokin er kakan skreytt með ferskum berjum og smátt skornu Mars-súkkulaði.

Myndir / Aldís Páls­dóttir

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

„Á ég að koma og taka í þig og ríða þér í rassgatið litla tussan þín“
Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Peningar

Samkaup semja um kaup á Fjarð­ar­kaupum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Fólk

Fólk

Fimm hlutir sem geta reynt á sam­bandið þegar mak­inn er með ADHD

Fólk

Keath Ósk slær í gegn á heims­vísu og segir Ísland hafa mótað sköp­un­ina

Viðtal
Fólk

Ekkert minni konur en aðrar konur

Myndir
Fólk

Óvenju­legt sölu­til­boð í Reykja­vík þar sem maka­skipti koma til greina

Fólk

Nabblinn leggur bleyj­una á hill­una

Myndir
Fólk

Sögu­frægt sýslu­manns­setur við sjó­inn komið á sölu