Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Upplifir spennuna og gleðina í gegnum dóttur sína

Tara Brynjars­dóttir starfar sem kenn­ari í Lauga­lækj­ar­skóla, þar sem hún kennir meðal ann­ars heim­il­is­fræði. Eitt af helstu áhuga­málum Töru er að dunda sér í eld­hús­inu, sér­stak­lega með dóttur sinni. Þar eiga þær mæðgur margar af sínum bestu gæða­stundum.

Upplifir spennuna og gleðina í gegnum dóttur sína

Ertu mikið jóla­barn? Á fyrri tíð var ég ekki mikið jóla­barn en eftir að ég varð móðir upp­lifi ég spenn­una og gleð­ina í gegnum stelpuna mína.

Ertu með ein­hverjar hefðir sem þér þykja ómissandi á aðvent­unni? Já, við vin­kon­urnar hitt­umst alltaf og bökum sörur sem er orðin ómissandi hefð fyrir jólin. Svo reynum við fjöl­skyldan að fara á eina jólatón­leika.

Hvað ætlar þú að baka fyrir jólin? Ég baka alltaf sörur, súkkulaði­bita­kökur og lakk­rístoppa, og pip­ar­kökur með stelp­unni minni sem við skreytum saman.

Hver sér um elda­mennsk­una á jól­unum? Ég myndi segja að ég sjái almennt um elda­mennsk­una á mínu heim­ili. Við mæðgur eigum einnig miklar gæða­stundir í eld­hús­inu og eldum og bökum mikið saman.

Hvað er ómissandi að þínu mati um jólin? Samveran með fjöl­skyld­unni og vinum, spila­kvöldin, bakst­ur­inn og róleg­heitin í kringum hátíð­irnar.

Frönsk súkkulaðikaka með karamellu og vanillusmjörkremi

„Ég var orðin þreytt á að baka þessa klass­ísku súkkulaði­köku og ákvað að prófa mig áfram og út kom þessi súkkulaði­kara­mellu­bomba sem slær alltaf í gegn. Súkkulaði­trén eru bráðið suðusúkkulaði sem ég spraut­aði á bök­un­ar­pappír og kældi áður en ég skreytti kök­una. Það er ótrú­lega gaman að leika sér með súkkulaði og alls ekki jafn­flókið og maður heldur. Mæli með því að prófa.“

Eitt af helstu áhuga­málum Töru er að dunda sér í eld­hús­inu.

Botn

200 g smjör
200 g suðusúkkulaði
4 egg
2 dl sykur
1 dl hveiti

Bræðið smjör og suðusúkkulaði á lágum hita, á meðan hrærið eggin og syk­ur­inn á hæsta hraða þar til blandan er orðin létt og ljós­gul. Bætið hveit­inu rólega saman við ásamt súkkulað­inu og smjör­inu. Bakið við 180°C, undir- og yfir­hita, í 30 mín­útur. Ég gerði tvö­falda upp­skrift til að kakan yrði hærri.

Krem

250 g smjör
250 g smjör­líki
500 g flór­sykur
1 msk. síróp
1-2 msk vanillu­sykur

Hrærið saman smjör, smjör­líki og síróp. Þegar það er orðið vel þeytt bætið þá flór­sykrinum og vanillu­sykrinum út í. Ef smjörið og smjör­líkið er mjög kalt er gott að nota osta­skera til að skera það niður í þunnar sneiðar og þá tekur það styttri tíma að hrær­ast og hræri­vélin ræður betur við það. Því lengur sem þið hrærið smjörið því ljós­ara verður kremið.

Karamella

1 poki bræddar ljósar kara­mellur

Ég er ekki mikið fyrir að flækja hlut­ina og bræði ein­fald­lega kara­mell­urnar (Töggur) eða kaupi heita kara­mellu­íssósu sem ég set á milli botn­anna.

Myndir / Hallur Karlsson

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Plönturnar fundust í tveimur gróðurkössum í farangursrýminu
Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Peningar

Samkaup semja um kaup á Fjarð­ar­kaupum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Var á reist árið 1979
Myndir
Fólk

Sögu­frægt sýslu­manns­setur við sjó­inn komið á sölu

Fólk

Fimm hlutir sem geta reynt á sam­bandið þegar mak­inn er með ADHD

Viðtal
Fólk

Ekkert minni konur en aðrar konur

Myndir
Fólk

Óvenju­legt sölu­til­boð í Reykja­vík þar sem maka­skipti koma til greina

Fólk

Nabblinn leggur bleyj­una á hill­una