Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Nístandi frá upphafi til enda

Leik­ritið Fólk, staðir, hlutir segir frá leikkon­unni Emmu sem er alka­hólisti og lyfjafík­ill. Áhorf­endur fylgj­ast svo með ferða­lagi hennar í gegnum tólf sporin í leit að sátt við sjálfa sig.

Nístandi frá upphafi til enda

Verkið er skrifað af hinu marg­verð­laun­aða leik­skáldi Duncan Macmillan en leik­rit hans hafa notið gríð­ar­legra vin­sælda um heim allan.

Þetta er þriðja leik­verkið sem sett er upp eftir skáldið hér á landi en það fyrsta, Andaðu sló eft­ir­minni­lega í gegn þegar það var sett upp í Iðnó. Duncan skrif­aði jafn­framt leik­gerð að verk­inu 1984 sem sýnt var í Borg­ar­leik­hús­inu fyrr í vetur.

Tit­ill­inn, Fólk, staðir, hlutir vísar í það sem fíklum beri að forð­ast eftir að hafa leitað sér hjálpar. Þrennan sem trig­gerar fíkn­ina. Það er óhætt að segja verkið tali beint inn í íslenskan sam­tíma því biðlistar hafa aldrei verið lengri eftir með­ferð­ar­úr­ræðum.

Fíkni­sjúk­dómar fara ekki í mann­grein­ing­ar­á­lit en helm­ingur leik­hóps­ins fer með fleira en eitt hlut­verk. Þannig mynda sögu­per­són­urnar hlið­stæður af hinu fjöl­breytta lit­rófi mann­lífs­ins.

Vest­ur­port hefur fyrir löngu skapað sér sér­stöðu og þó umfjöll­ar­efnið sé þungt og við­kvæmt í vöfum notar hóp­ur­inn húmor óspart til þess að koma sög­unni skemmti­lega frá sér. Leik­stjór­inn Gísli Örn Garð­ar­son hefur fyrir löngu sannað snilli sína og bregst honum ekki boga­list­inn fremur venju.

Hirð­leik­mynda­hönn­uður hóps­ins, Börkur Jónsson hann­aði leik­mynd­ina en hún er ílöng og vekur ósjálfrátt hug­renn­ing­ar­tengsl við töflu­hylki. Þórður Orri Pét­urs­son sá um að flóð­lýsa inn­an­tómt hylkið ásamt því að láta blikk­ljós og aðrar ljósa­lausnir end­ur­spegla líðan fíkils­ins hverju sinni. Tón­listin magn­aði svo atburð­ar­rás­ina og aðskildi snöggar skipt­ingar á milli atriða. Garðar Borg­þórs­son sá um hljóð­mynd og bún­inga hann­aði Katja Ebbel Fred­rik­sen.

Mest mæðir á aðal­leikkon­unni Nínu Dögg Fil­ipp­us­dóttur en hún leikur fíkil­inn Emmu sem neydd er í með­ferð. Í afneitun sinni reyn­ist Emma afar óþekkur sjúk­lingur en smám saman flysj­ast lyga­lögin af fjöl­breyttum frá­sögnum hennar. Áhorf­endur fylgj­ast með neysl­unni, frá­hvör­f­unum og með­ferð­ar­dvöl­inni þar sem Emma líður vít­isk­valir.

Leikur Nínu er hreint út sagt stór­feng­legur en hún túlkar þessa margræðu og eld­kláru konu af mik­illi sann­fær­ingu og öryggi.

Sam­leikur þeirra Nínu og Björns Thors var töfr­andi og trú­verð­ugur en í upp­hafi kynna þeirra er hann fík­ill sem neitar að yfir­gefa með­ferð­ar­stofn­un­ina en tekur við starfi með­ferð­ar­full­trúa eftir því sem líður á leik­ritið.
Hannes Óli Ágústs­son skap­aði sömu­leiðis eft­ir­minni­legan karakter sem hinn kómíski með­ferð­ar­full­trúi er ann­að­ist Emmu í fyrstu inn­lögn sinni. Þær Edda Björg Eyj­ólfs­dóttir og Maríanna Clara Lúth­ers­dóttir leika bæði hjúkr­un­ar­fræð­inga og fíkla og gera báðar vel. Jóhann Sig­urðs­son og Sigrún Edda Björns­dóttir fara með hlut­verk for­eldra Emmu en auk þess túlkar Jóhann tvo ólíka fíkla. Sigrún fer sömu­leiðis með hlut­verk læknis og með­ferð­ar­full­trú­ans sem leiðir Emmu í gegnum sporin tólf. Sigrún var sann­fær­andi að venju og sam­tal mæðgn­anna í lokin hreint út sagt ógleym­an­legt.

Umfjöll­un­ina er að finna í 17.tbl Vikunnar.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

„Á ég að koma og taka í þig og ríða þér í rassgatið litla tussan þín“
Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Peningar

Samkaup semja um kaup á Fjarð­ar­kaupum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Fólk

Fólk

Fimm hlutir sem geta reynt á sam­bandið þegar mak­inn er með ADHD

Fólk

Keath Ósk slær í gegn á heims­vísu og segir Ísland hafa mótað sköp­un­ina

Viðtal
Fólk

Ekkert minni konur en aðrar konur

Myndir
Fólk

Óvenju­legt sölu­til­boð í Reykja­vík þar sem maka­skipti koma til greina

Fólk

Nabblinn leggur bleyj­una á hill­una

Myndir
Fólk

Sögu­frægt sýslu­manns­setur við sjó­inn komið á sölu