Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

„Allt breyttist þegar ég fór að vera ég sjálf“

Fanney Dóra Veig­ars­dóttir er ein af stærstu sam­fé­lags­miðla­stjörnum Íslands. Þrátt fyrir að glans­myndin á Instagram sýni hana sem bros­andi, ham­ingju­sama unga konu á Fanney Dóra margra ára bar­áttu við kvíða og þung­lyndi að baki. Hún hefur notað hreyf­ingu og heil­brigðan lífstíl sem verk­færi til að takast á við erf­iða daga og hefur náð frá­bærum árangri.

„Allt breyttist þegar ég fór að vera ég sjálf“

Fanney er miðju­barn í hópi fimm systk­ina og er fjöl­skyldan afar sam­heldin. Hún ólst upp á Ísafirði en hefur búið í Reykja­vík und­an­farin ár. Fanney útskrif­að­ist sem förð­un­ar­fræð­ingur árið 2015 og hefur getið af sér gott orð­spor. Hún tekur að sér að farða fyrir ýmis til­efni, auk þess sem hún kennir sem gesta­kenn­ari í Reykja­vík MakeUp School. Nýverið fékk hún það verk­efni upp í hend­urnar að vera „brand ambadassor“ fyrir snyrti­vöruris­ann Maybelinne.

Það má því með sanni segja að Fanney Dóra hafi í nógu að snú­ast, en hún hefur einnig starfað á leik­skóla und­an­farin 3 ár og finnur sig vel í því starfi.

Stolt af því að kalla sig áhrifavald

Þegar vinnu­deg­inum á leik­skól­anum líkur tekur annar, ólíkur heimur við hjá Fanney. Sam­fé­lags­miðla­heim­ur­inn. Þúsundir fylgj­enda fylgj­ast með henni á hverjum ein­asta degi á Snapchat, auk þess sem hún heldur úti virku bloggi, er á Instagram, Youtube og Twitter. „Í raun er ég stolt af því að kalla mig áhrifa­vald, þrátt fyrir að mörgum finn­ist það kjána­legt. Íslend­ingar eru svo­lítið svo­leiðis, þeir elska að gera lítið úr því sem aðrir gera vel. En mér er alveg sama. Ég er áhrifa­valdur þar sem ég er fyr­ir­mynd.“ segir hún.

Mynd / Aldís Páls­dóttir

Það er ekki að ástæðu­lausu sem Fanney Dóra seg­ist vera fyr­ir­mynd. Und­an­farna mán­uði hefur hún farið í djúpa sjálf­skoðun og gert allt sem í sínu valdi stendur til að sigr­ast á van­líðan sem hrjáði hana í mörg ár. Hún var komin á þann stað að kvíði og þung­lyndi stjórn­uðu lífi hennar og sjálfs­traustið var í molum. Hún hefur talað mjög opin­skátt um þessa bar­áttu sína á sam­fé­lags­miðlum og mark­visst unnið að veg­ferð sinni að betra lífi og auknu sjálfs­trausti. Fanney rifjar upp augna­blik sem hún segir hafa verið eitt það besta í sínu lífi.

„Ég var að vinna í verslun í Kringl­unni þegar kona kemur inn með dóttur sína. Hún fer að tala við mig og segir mér að hún væri ekki viss um að dóttir hennar væri á lífi í dag ef ekki væri fyrir mig. Í alvöru, ég get ekki talað um þetta án þess að fá gæsa­húð,“ segir hún og heldur áfram.

„Í raun er ég stolt af því að kalla mig áhrifa­vald, þrátt fyrir að mörgum finn­ist það kjána­legt.“

„Svona fyr­ir­mynd er það sem sem ég hefði þurft þegar ég var yngri, þegar ég hélt að eina leiðin út þegar manni liði svona illa væri að skaða sjálfa sig. Eins mikið og ég hef alltaf verið hrein­skilin og til dæmis sagt mömmu og pabba allt, þá vildi ég ekki að neinn vissi hversu illa mér leið í raun og veru. Ég var svo góð í að setja upp and­lit.“

„Svo ef fólk vill líta á mig sem snapp­ara sem er bara að mála sig eða að fá fríar vörur, þá get ég að minnsta kosti bent þeim á það að það hafi verið mér að þakka að ein­hver fór til læknis og leit­aði sér hjálpar.“

Ég er ekk­ert að segja fólki að vera kaupa eitt­hvað dót, heldur er ég að tala um hvernig okkur líður og hvernig við getum verið besta útgáfan af okkur sjálfum. Þess vegna er ég áhrifa­valdur.“

Fanney Dóra prýddi 19. tölu­blað Vikunnar árið 2018. Í við­tal­inu ræðir hún um áreitið sem fylgir sam­fé­lags­miðla­heim­inum, hvernig hún notar lík­ams­rækt til að takast á við kvíða og þung­lyndi, og hvernig allt breytt­ist þegar hún tók ákvörðun um að vera hún sjálf.

Myndir / Aldís Páls­dóttir
Förðun / Perla Kristín Smára­dóttir
Fatnaður / Vero Moda og Vila

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Plönturnar fundust í tveimur gróðurkössum í farangursrýminu
Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Peningar

Samkaup semja um kaup á Fjarð­ar­kaupum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Var á reist árið 1979
Myndir
Fólk

Sögu­frægt sýslu­manns­setur við sjó­inn komið á sölu

Fólk

Fimm hlutir sem geta reynt á sam­bandið þegar mak­inn er með ADHD

Viðtal
Fólk

Ekkert minni konur en aðrar konur

Myndir
Fólk

Óvenju­legt sölu­til­boð í Reykja­vík þar sem maka­skipti koma til greina

Fólk

Nabblinn leggur bleyj­una á hill­una