Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Auðvelt að gleyma sér í Íshúsi Hafnarfjarðar

Dyr Íshúss Hafn­ar­fjarðar verða opnar almenn­ingi um helg­ina. Þar mun ríkja nota­leg jólastemn­ing. Hægt verður að skoða vinnu­stofur hönn­uða, lista­manna og hand­verks­fólks ásamt því að sötra kaffi og fræð­ast um jólakransa­gerð.

Auðvelt að gleyma sér í Íshúsi Hafnarfjarðar
Mynd/Unnur magna|||

Mikið verður um að vera í Íshúsi Hafn­ar­fjarðar um helg­ina en húsið verður opið á milli klukkan 12 og 17 laug­ar­dag og sunnu­dag. Þá býðst gestum og gang­andi að koma í heim­sókn og drekka í sig ljúfa jólastemn­ingu og skoða vinnu­stofur og hönnun þeirra sem eru með aðstöðu í Íshúsinu.

Anna María Karls­dóttir sem rekur Íshús Hafn­ar­fjarðar ásamt manni sínum, Ólafi Gunnari Sverris­syni, segir við­burð­inn vera full­kom­inn fyrir þá sem vilja koma sér í svo­lítið jóla­stuð. „Hér verður ljúf jólastemn­ing. Fólk getur komið hingað og keypt sér ljúf­fengt kaffi og kakó frá vinum okkur á kaffi­hús­inu Pal­lett­unni sem setja upp pop-up kaffi­hús hjá okkur, skoðað og verslað það sem hönn­uðir og lista­menn Íshúss­ins bjóða upp á, virt fyrir sér mál­verk Jóhann­esar Níelsar Sig­urðs­sonar í gömlum frysti­klefa sem ekki hefur verið opinn almenn­ingi áður og bara notið. Njóta en ekki þjóta er það sem gildir í Hafn­ar­firð­inum,“ segir Anna.

Njóta en ekki þjóta er það sem gildir í Hafn­ar­firð­inum.

„Þá verður Margrét Leó­polds­dóttir, Magga okkar sem rekur Golu og glóru, með örnám­skeið í jólakransa­gerð. Ekki þarf að skrá sig fyr­ir­fram, efni­við­ur­inn verður á staðnum og Magga aðstoðar við kransa­gerð­ina.“

Fólk forvitið um Íshúsið

Anna segir fólk almennt hafa mik­inn áhuga á að skoða það sem ger­ist innan veggja Íshúss­ins. „Í þessu gamla fyrr­ver­andi frysti­húsi hér við smá­báta­höfn­ina eru um 30 mis­stór vinnu­rými sem við leigjum út til skap­andi ein­stak­linga og smærri fyr­ir­tækja. Hér leigir fjöl­breytt flóra fólks aðstöðu og almenn­ingur er mjög áhuga­samur um starf­sem­ina. Okkar lúx­usvand­mál er það að margt fólk vill koma í heim­sókn til okkar og skoða, þannig að við brugðum snemma á það ráð að halda opið hús reglu­lega. Og það er sko auð­velt að gleyma sér í Íshúsinu, fólk týnir sér alveg hérna inni þegar það kemur í heim­sókn, það er svo margt að sjá,“ segir Anna og hlær.

Fjöl­breyttur hópur fólks er með aðstöðu í Íshúsi Hafn­ar­fjarðar, allt frá báta­smiðum til rit­höf­unda. „Það sem er svo skemmti­legt við húsið er hversu opið það er, fæstir eru með aflok­aða vinnu­að­stöðu. Aðal­á­herslan er á ker­amik, mynd­list og grafík á efri hæð­inni og svo er allt frá tré­skipa- og hnífa­smiðum til rit­höf­unda á neðri hæð­inni,“ segir Anna þegar hún er spurð út í fyr­ir­komu­lagið.

Aðspurð hvort fólk geti keypt jóla­gjafir í Íshúsinu um helg­ina svarar Anna ját­andi: „Hér verður hægt að skoða og kaupa en ég tek gjarnan fram að margir í Íshúsinu selja verk sín í Litlu hönn­un­ar­búð­inni, á Strand­götu 19. Þar er alltaf hægt að gera fal­leg og góð kaup.“

Í Íshúsinu er að finna um 30 mis­stór vinnu­rými.

Myndir / Unnur Magna

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Að lokinni fimm vikna þjálfun hafa nemendurnir réttindi til að kafa niður á 30 metra dýpi
Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Peningar

Samkaup semja um kaup á Fjarð­ar­kaupum

Innlent

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina